Mánudagur 01.09.2008 - 20:29 - 5 ummæli

Fúsk hjá rúv.

Sit hér og horfi á fótboltaleik í kassanum. Spenna í undanúrslitum á fínum velli í flottu veðri. Allt gott og blessað þannig séð.

Eitt finnst mér þó undarlegt. Valtýr Björn hefur sér til fulltingis gæðapiltinn Kristján Guðmundsson. Hann hefur að sönnu mikið vit á fótbolta og sér margt sem við leikmenn sjáum ekki. Akkúrat þannig eiga lýsendur að vera…

Spurning er þó hvort þeir eiga að vera starfandi þjálfarar í efstu deild. Þarna situr hann og talar um vinnu starfsbræður sínna og keppinauta og störf dómara. Gefur leikmönnum einkunnir og heimtar á þá spjöld og hvað eina.

Þetta finnst mér fúsk og ófaglegt bæði hjá rúv og Kristjáni. Mikið óskaplega búum við illa að geta ekki fengð aðra en starfandi þjálfara til að lýsa leikjum hjá liðum sem þeir eru að jafnaði í keppni við.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (5)

  • Anonymous

    Mér finnst nú meira fúsk að láta menn eins og Valtý Björn lýsa leikjum, maðurinn er algerlega óhæfur. Kristján er aftur á móti skemmtilegur og svo er um flesta þjólfarana sem eru fengnir fréttamönnunum til hjálpar. Ekki veitir af.

  • Anonymous

    Ég á ekki orð til að lýsa því hve mjög mér finnst skrif þín upplýsandi og greindarleg. Gáfurnar hreinlega stirna úr augum þínum á myndinni hér til hliðar.

  • Anonymous

    Mesta fúskið er að vera með fótboltaleik á besta útsendingartíma!

  • Anonymous

    Sæll!Algerlega sammála þessu. Það virðist því miður vera þannig að RUV getur ekki lengur séð sómasamlega um íþróttaviðburði. Hvorki sýnt fjölbreytni né gert það á faglegan hátt. Set líka spurningarmerki um starfandi þjálfara að þeir mæti í útsendingu sem þessa. Hef ekki séð það t.d. í Englandi.

  • Ég er mest gáttaður á Kristjáni að hafa verið svona hlutdrægur. Hvað gengur honum eiginlega til? Ég hélt í einfeldni minnni að þjálfari í þessum gæðaflokki væri yfir svona lagað hafinn.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og fjórum? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur