Þriðjudagur 07.10.2008 - 09:26 - 2 ummæli

Reisn.

Þá er Landsbankinn fallinn. FME tók hann barasta yfir í nótt og stjórnin hætt að reka bankann. Þetta gerðist allt í fullri sátt og samvinnu. Hagsmunir heildarinnar skipta öllu og eigendur bankans greiða götu þeirra sem koma að rústunum og reyna að bjarga því sem bjargað verður.

Auðvitað er litil reisn yfir því að reka bankann svona kylliflatan en þeir Landsbankamenn hafa allavega ekki enn ráðist á yfirvöld með stóryrðum og ásökunum. Kannski kunna þeir að skammast sín og biðjast fyrirgefningar. Sýna auðmýkt og iðrun. Þannig mönnum er auðveldara að fyrirgefa…

Ólíkt hafast mennirnir að í þesum efnum. Munurinn á því hvernig eigendur Landsbankans og Glitnis bregðast við er ótrúlegur. En kemur ekki á óvart…

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Anonymous

    Hún er lárétt þessi Landsbankareisn.

  • Það er alltafa sama sagan hjá heittrúðum Davíðsmönnum, góðu og vondu auðmennirnir. En við venjulega fólkið sjáum það sama hvort sem það er Bjöggi eða Jón Ásgeir. Það er enginn munur á kúk og skít

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og fjórum? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur