Miðvikudagur 12.05.2010 - 21:20 - 3 ummæli

Nei, Jón Ásgeir. Við töpuðum…

Jón Ásgeir þykist vera kominn að fótum fram. það er flott taktík og fer vel í landann sem vill sjá blóð renna. Mér dettur ekki í hug að þannig sé um hann farið. Vígstaðan hefur breyst og hann berst nú fyrir öðrum málsstað. Sú barátta á að snúast um að við trúum því að hann sé búinn að vera og eigi ekkert.

Vissulega hefur nafn hans skaðast og hann gæti þurft að nota sömu aðferð erlendis og hann notar hér heima með eftirtektarverðum árangri. það er hin sígilda aðferð að nota leppa. Við sjáum þetta glöggt á fjölmiðlarisanum hans sem eiginkonan ásamt þöglum andlitslausum aðilum á. Haga ætlar pabbi hans að eiga ásamt útlendingum.

Gott fólk. Þetta er honum að takast beint fyrir framan nefið á okkur. Samningsstaða fjölskyldu Jóhanneasr Jónssonar í bönkunum Íslensku hlýtur bráðum að fara að laskast. Gleymum ekki sögunni og gleymum ekki stóryrðum kaupmannsins sem situr í yfirveðsettri „eign“ sinni fyrir norðan á meðan þjónar skottast um í nýju glæsivillunni í útlöndunum.

„þeir unnu“ sagði svikahrappurinn í dag og vísaði í Davíð en hjörðin sem dansaði með öll árin er að missa trúna. Þarna skjöplast Jóni Ásgeir stórlega. það er nefnilega þannig að „VIÐ TÖPUÐUM“.

Íslensk þjóð tapaði kæri Jón Ásgeir. Stríðið sem þú háðir við andstæðinga þína var háð til að geta fengið að ræna Íslenska þjóð óáreittur. Vonandi tekst Jóni Ásgeir ekki að telja meðvirka þjóð trú um að hann sé píslarvottur núna.

En verið þið viss. Það mun hann reyna….

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og tveimur? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur