Hvar er Framsóknarflokkurinn og hans kjaftagleiði formaður? Nú heyrist ekki múkk vikum saman og það þýðir að öllu jöfnu bara eitt. Flokkurinn stendur frammi fyrir möguleikanum á að komast í ríkisstjórn og þreifingar þar um eru í gangi.
Ætli Össur viti af þessu?
Röggi
Eða ekki. Kannski að flokkurinn sé frekar að skoða hvernig best sé að tala til kjósenda í höfuðborginni – og þýðir þá lítið að vera með stælana sem annars hefur einkennt flokkinn hingað til.Landsbyggðin er örugg, skv. sveitarstjórnarkosnngum, nú þarf að rífa upp fylgið í Reykjavík. Slíta sig frá xD og hætta undirlægjuhætti með þeim hræsnurum.