Miðvikudagur 19.10.2011 - 11:36 - 3 ummæli

Þegar Björn Valur snappar

Björn Valur Gíslason er með Ólaf Ragnar á heilanum. Reyndar hafa vinstri menn verið með hann á heilanum lengi. Lengi vel voru gaurar eins og Björn Valur í klappstýruhlutverkinu. Það var þegar félagi Ólafur Ragnar gerði það sem Birni Val og hans liði fannst fallegt. Það eru einu prinsippin sem Björn Valur telur þess virði að verja þegar kemur að forseta Íslands.

Kannski þarf að halda því skilmerkilega til haga að Ólafur Ragnar er ekki minn maður. Var það ekki sem stjórnmálamaður og enn síður sem forseti. Leðjuslagur gömlu kommana núna um embætti forseta er aumkunarvert og í raun dapurlegt að þurfa að heyja þetta innanhússtríð vinstri manna úr þingflokksherbergjum VG og Samfylkingar til Bessastöðum. Stríð sem snýst í raun sama og ekkert um embættið heldur meira um persónuna Ólaf Ragnar.

Björn Valur hefur eftir því sem ég best fæ séð enga grundvallarskoðun á embætti forseta. Hann veit ekkert hvað þrískipting valds er. Honum finnst í aðalatriðum að forsetinn eigi að vera með réttar skoðanir. Og botnar hreint ekkert í því að forsætisráðherra skuli ekki ráða því hvernig embætti forseta fúnkerar.

Í dag skrifar Björn Valur grein um forsetann sinn. Grútmáttlaus grein og samhengislaus og ljóst að þingmaðurinn getur vart á heilum sér tekið af pirringi og það er ekki gott vegarnesti eingöngu þegar menn ryðjast fram undir þeim formekjum að þeir hafi eitthvað fram að færa.

Þessi áunni pirringur út í persónuna Ólaf Ragnar tók að gera vart við sig þegar hann ásamt allri þjóðinni að undanskilinni ríksstjórninni hans Björn Vals hafnaði Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem sumir ráðherrar lýðræðiselskandi töldu sig ekki þurfa að taka þátt! Talandi um að hæðast að þjóð….

Þann „glæp“ getur Björn Valur ekki fyrirgefið og það er eina ástæða þess hvernig þingmaðurinn ólmast. Dýpra ristir þetta nú ekki.

Og þegar Björn Valur snappar þá skrifar hann reiðigreinar og rífur kjaft. Þessir tveir eiga hvorn annan nefnilega skilið.

Öfugt við þjóðina…..

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Anonymous

    Hér eru niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis um ÓRG :Ályktanir og lærdómarÞegar horft er til baka yfir þá atburði sem leiddu til hruns í íslensku efnahagslífivekur þáttur forseta Íslands sérstaka athygli. Þótt stjórnkerfið í heild berimeð margvíslegum hætti ábyrgð á því sem gerðist verður ekki hjá því komistað skoða embætti forseta Íslands sérstaklega, svo hart gekk forsetinn fram íþjónustu sinni við útrásina og þá einstaklinga sem þar voru fremstir í flokki.Forsetinn kom ekki að stjórnvaldsákvörðunum en hann ber ásamt fleirumsiðferðilega ábyrgð á því leikriti sem leikið var í kringum foringja útrásarinnarog fyrirtæki þeirra. Þau reyndust ekki vera í neinu frekar en keisarinn ísögu H.C. Andersen.Ljóst má vera að forsetinn gekk mjög langt í þjónustu við einstök fyrirtækiog einstaklinga sem stýra þeim eins og hann hefur sjálfur viðurkenntnokkrum sinnum eftir hrunið.766 Forsetaembættið var óspart nýtt í þágu einstakraaðila til að koma á tengslum víða um lönd. Þegar lýðræðislega kjörinnforseti lands talar á opinberum vettvangi sem fulltrúi þjóðar sinnar er jafnanhlustað og því skiptir máli hvað hann segir og við hverja hann talar. Þar liggurábyrgð forseta Íslands. Forsetinn beitti sér af krafti við að draga upp fegraða,drambsama og þjóðerniskennda mynd af yfirburðum Íslendinga sem byggðustá fornum arfi. Það er athyglisvert að nokkrir þeirra eiginleika sem forsetinntaldi útrásarmönnum til tekna eru einmitt þeir þættir sem urðu þeim ogþjóðinni að falli. Í ljósi sögunnar hefði þurft mun meiri aga og reglufestu viðákvarðanatöku, hófsemi í framkvæmdagleðinni, reglur um skráningu fundargerðasem og óæskileg tengsl milli einstaklinga. Þrátt fyrir að kenningarforsetans væru harðlega gagnrýndar hélt hann áfram að lofa útrásina. Hanntók þátt í að gera lítið úr þeim röddum sem vöruðu við hættulega miklumumsvifum íslenskra fyrirtækja.Lærdómar:• Skýra þarf hlutverk forseta Íslands mun betur í stjórnarskránni.• Setja þarf reglur um hlutverk og verkefni forseta Íslands og samskipti hans við önnurríki.• Æskilegt væri að forsetaembættið setti sér siðareglur þar sem meðal annarsyrðu ákvæði um það með hvaða hætti er eðlilegt að hann veiti viðskiptalífinustuðning.

  • Björn Valur er búrtík LÍÚ.

  • Anonymous

    Takk fyrir að benda á fína grein Björns Vals.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og þremur? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur