Mánudagur 23.01.2012 - 23:47 - 10 ummæli

Metnaðarlaust síðdegisútvarp

Síðdegisútvarp rásar 2 fjallaði um vonum um landsdómsmálið í dag. Þetta er mál málanna og allt er upp í loft vegna þess og því ekki óeðlilegt að um málið sé fjallað.

Þetta er afar viðkvæmt mál og örugglega ekki ofmælt að það sé eitt umdeildasta mál sem við höfum staðið frammi fyrir lengi með öllum sínum öngum og ranghölum þar sem pólitík spilar stóra rullu. Þess vegna skiptir matreiðsla þeirra sem tala í útvarpi allra landsmanna miklu.

Í kynningu á efninu var ekki annað að heyra á þáttastjórnendum en að þau hafi leyst lífsgátuna og komið sér upp skoðun á viðfangsefninu og fóru ekki mjög leynt með niðurstöðuna. Nú ætla ég fjölmiðlafólki alls ekki að það megi ekki og kunni ekki að hafa skoðanir en þetta er vandmeðfarið eins og flestir ættu að geta skilið.

Og þá var komið að því að kynna til leiks þá sem stjórnendur þáttarins hefðu valið til að hjálpa okkur að glöggva okkur á þessu annars flókna álitamáli sem klýfur hið minnsta tvo flokka niður í rætur.

Margrét Tryggvadóttir, Eygló Harðardóttir og síðast en ekki síst Magnús Orri Schram. Allt hið mætasta fólk sem er svo sannarlega með kjöt á beinum þegar kemur að því að rökræða pólitík og allt gott um það að segja.

En allt fólk með sömu sýn á stöðuna og allt fólk sem tilheyrði óánægðum minnihlutanum. Og þarna var sem sagt vinalegt spjall eintóna og umræðan öll á eina lund einhvernvegin og allir svo glaðir og sammála.

Hvurslags metnaður er þetta? Hvar er fagmennskan í þessu? Á ég að þora að segja hlutleysið?

MIg langar að trúa því að þetta sé leti. Að stundum hreinlega nenni þáttastjórendur ekki að raða saman fólki sem getur og þarf að skiptast á skoðunum heldur sé miklu þægilegra að fólk sé bara í léttu dúlleríi með þeim sem eru á sömu skoðun.

En ég viðurkenni að ég þarf að beita mig hörðu til að trúa á þannig skýringar ekki bara vegna þess að annar stjórnandinn er glerharður Samfylkingarmaður heldur vegna þess að ég hef nú þrátt fyrir allt þá trú að allir vilji gera vel og vera metnaðarfullir.

En hvað á maður að halda?

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (10)

  • Anonymous

    Ömurlegt útvarp og hlutdrægt í pólitík.

  • Anonymous

    Kannski áttu trúbræður þínir í FLokknum Röggi, ekki heimangengt.Eða treystu sér ekki í rökræður um málið.ÞÚB

  • Eins og það getur nú gaman að skiptast á skoðunum við alvöru fólk sem kann og hefur styrk til þess að vera það sjálft en ekki nafnlaust….Við sem tökum þátt í umræðunni og fylgjumst með vitum hverjir það voru sem ekki vildu taka þátt í rökræðunni….

  • Anonymous

    Fyrir viðkomandi þáttastjórnendur þá langar mig að vitna hér aðeins í Salman Rushdie:“Ef þú ert ekki tilbúin til að verja það sem þér finnst óviðeigandi, þá trúir þú ekki á málfrelsi. Þá trúir þú bara á málfrelsi þeirra sem þú ert sammála og eru sammála þér „- Salman RushdieKv. Grétar Thor.

  • Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

  • Já þetta var frekar lömuð samsetning viðmælenda flokkspólitískt í viðkvæmu máli, Röggi, vissulega. En markmiðið var að reifa málefnalega mörk valdþáttanna þriggja, ekki flokkspólitískt álitaefni. Við heyrum í Bjarna Ben um þetta í þættinum í dag.

  • Anonymous

    Það er ekki sama minnihluti og minnihluti. Ég er ekki viss um að þau séu í minnihluta þjóðarinnar í þessu máli.

  • Anonymous

    Ríkisbatteríið er orðið algerlega til skammar þá meina ég í öllu tilliti!!!!!!!!!

  • Anonymous

    Spegilinn á RÚV er að A-Þýskri fyrirmynd og þjónar sama tilgangi, að réttlæta núverandi stjórnvöld og haldi úti áróðri fyrir sjónarmiðum þeirra.Landsmenn eru pýndir með lögum til að greiða skatta til RÚV, þetta apparat með mikilli vinstrislagsíðu og ALLS ekki óhlutlaust.Spegillinn, Silfur Egils og Kiljan eru sorglegir þættir.

  • Anonymous

    Ég er sama sinnis og þú, nema hvað mér finnst Reykjavík síðdegis sökka big time!

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og einum? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur