Sunnudagur 09.09.2012 - 23:57 - 9 ummæli

Falleinkun Inga Freys

Fréttastjóri DV skrifaði pistil í blaðið sitt um daginn. Þar skrifar Ingi Freyr eins og hann sé hlutlaus fagmaður um mál er tengjast Gunnari Andersen ákærðum fyrrverandi forstjóri FME. 

Getur Ingi Freyr fréttastjóri DV sem leikur hlutverk í þessari sögu litið á sig sem áreiðanlegt vitni í þessu máli eða hlutlaust? Slíkir smámunir þvælast ekki fyrir blaðinu eins og stundum fyrr.

Fréttastjórinn ákveður að taka órökstuddar fabúleringar Gunnars um leka til kastljóss í gegnum Guðlaug þór sem sannleikann og byggir þennan afleita pisltil á sögunni sem hinn ákærði forstjóri talar um. 

Svo er þvælt um sölu eignar Guðlaugs Þórs eins og þar hafi átt sér stað stórglæpur sem skilað hafi miklum og þá væntanlega óeðlilegum hagnaði. Hvorutveggja er frétt um ekki neitt og hagnaðar hluti sögunnar fjarri sannleikanum.

Fréttastjóri DV hefur tekið sér ákveðna stöðu gegn manni og með öðrum og ætlar sér hvað sem hver segir að reyna að koma glæp sem nú er verið að fjalla um á hendur „hans“ manni yfir á þann sem saksóknari telur með nokkuð vel rökstuddum grun fórnarlamb í málinu.

Ingi Freyr fær falleinkunn fyrir þetta og enn einu sinni hendir það að blaðið sem borgar honum laun gerist bert að því að kunna ekki að taka menn af aftökulistanum hafi þeir á annað borð verið settir á þann lista.

Hér gékk maður undir manns hönd þegar stjórn FME ákvað að leysa Gunnar frá störfum og framleiddu mergjaðar samsæriskenningar um mann og annan. Þeir eru flestir þögulir mjög núna þegar þetta mál ber á góma og vottar jafnvel fyrir skömm hjá sumum.

En þó ekki öllum…

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (9)

  • Anonymous

    það er öllum skítsama hvað þér finnst. Enda ertu ömurleg manneskja.

  • Anonymous

    Jahá. Það eitt er ljóst að höfundur þessarar bloggfærslu fær falleinkunn í stafsetningu. Einkunn er með tveimur n-um.

  • Anonymous

    Kæri nafnlausiÞað eru ekki tvö n í einkun bara eittþað er hún einkuninLæra betur heima

  • Anonymous

    Kórrétt hjá þér Röggi, Ingi Freyr fær algera falleinkunn fyrir þennan „pistil“.

  • Anonymous

    Við verðum að hafa í huga, að DV er í heilögu stríði við Sjálfstæðisflokkinn enda er þessi snepill hreinlegar gerður út til þess af ákveðnum öflum hér í samfélaginu.

  • Anonymous

    „Nafnlaus said…Kæri nafnlausiÞað eru ekki tvö n í einkun bara eittþað er hún einkuninLæra betur heima10. september 2012 06:21″http://bin.arnastofnun.is/leit.php?q=Einkunn

  • Anonymous

    EinkunnMiskunnVorkunnForkunn

  • Anonymous

    Ad Hominem, orðhengilsháttur, útúrsnúningar, afneitun og þvarg yfir stafsetningu. Örfá merki um rökþrot í umræðu.Takk fyrir bloggið, Röggi. Þú hittir naglann sannarlega á höfuðið.

  • Anonymous

    Frjálshyggjufól væru ekki að fjargast yfir DV væri Óli Björn Kárason enn ritstjóri þar.hræsnarar

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og þremur? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur