Miðvikudagur 21.11.2012 - 10:19 - 2 ummæli

Um Álfheiði í boði NOVA

Álfheiður Ingadóttir er stórmerkilegur stjórnmálamaður. Hún fagnar því þegar ráðist er á lögregluna ef hún sjálf styður ástæður þess ofbeldis. Það er ógleymanlegur hápunktur á hennar ferli. Svo er hún Álfheiður alltaf svo reið.

Og húmorslaus. Hún er gamaldags kommi og þeir geta vissulega haft sinn sjarma. Nú er henni talsvert niðri fyrir. Það er vegna þess að strákarnir í hraðfréttum er fyndnir. Það finnst henni grunsamlegt og líklega kostað af einhverjum. 

Þetta er ekki frétt um það hversu húmorslaus Álfheiður er og er auðvitað fyndin á sinn hátt. Álfheiður heldur að hún sé kommissar í ráðstjórnarríki. Þetta atriði hennar er eiginlega svona íslenskt Pussy Riot afbrigði.

Álheiður Ingadóttir situr á löggjafarþingi en heldur greinilega að hún sé eftirlitsstofnun með því að fólk sé ekki að reyna að vera skemmtilegt. 

Uppistand hennar nú er jöfnun á norðurlandameti í húmorsleysi innanhúss án atrennu. 

Ég tek það skýrt fram að þessi færsla er í boði NOVA og ÁTVR.

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Anonymous

    GóðurEn getur verið að Álfheiður hafi fengið greitt frá Nova fyrir að vekja athygli á þessu

  • Anonymous

    Bráðfyndið húmorsleysi þessa ömurlega þingmanns.Afhjúpar innræti viðkomandi. Vænisýki og fasismi er eitruð blanda.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og sjö? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur