Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Föstudagur 04.01 2008 - 23:48

Skemmtilegur Jón Viðar.

Ég hef áður lýst því að Jón Viðar gangrýnandi finnst mér ljómandi skemmtilegur. Ég sæki leikhús að vísu ferlega stopult en les allt sem karlinn skrifar með bestu lyst. Mér finnast greinar hans matarmiklar. Hann er að sönnu fremur neikvæður oft og þá getur hann orðið verulega kjarnyrtur. Súsanna Svavarsdóttir var í svipuðum vandræðum á […]

Föstudagur 04.01 2008 - 09:41

Kristján Möller samkvæmur sjálfum sér.

Nú er hamast á Kristjáni Möller. Af því að hann leyfir sér að reyna að hafa þá skoðun að að göng úti á landsbyggðinni skipti meira máli en sundabraut. Kemur þetta á óvart spyr ég. Hann er hér samkvæmur sjálfum sér og engin ástæða til þess að skammast yfir því. Hann hefur oft haldið því […]

Fimmtudagur 03.01 2008 - 19:06

Hvað kom fyrir leikhússtjórann?

Hvað hefur komið fyrir leikhússtjóra leikfélags Reykjavíkur? Hvernig dettur honum í hug að taka gangrýnanda af boðsgestalista þó honum mislíki gagnrýnin? Þetta er ekki ein af hans sterkari ákvörðunum. Hann segist ekki líða dónaskap í sínum húsum. Þetta finnst mér verulega hrokafullt. Jón Viðar stendur bara og fellur með sínum skrifum. Það er ekkert nýtt. […]

Þriðjudagur 01.01 2008 - 20:38

Siðlaus þjóð.

Við erum enn kotbændur á mörgum sviðum. Okkur leiðast reglur. Grundvallaratriði og prinsipp stundum við helst ekki. Í stað þess að hafa eina reglu sem gildir jafnt um alla alltaf og allsstaðar þá tökum við afstöðu frá einu atviki til annars. Þá koma við sögu hlutir eins og hvort einhver kunni hugsanlega að hafa verið […]

Mánudagur 31.12 2007 - 18:13

Óbirtir tölvupóstar.

Fréttablaðið sagði frá því að Jón Gerald hafi nú sent fjölmiðlum útskiftir af tölvusamskiptum sínum við baug. Margt af því áður óbirt segir hann þó hluti póstanna hafi verið dómsskjöl í málarekstrinum. Hann fullyrðir að þessi samskipti varpi ljósi á hvers vegna hann hafi talið sig með gott mál í höndunum. Auðvitað er margir orðnir […]

Mánudagur 31.12 2007 - 00:01

Meira um Bhutto.

Björgvin Valur eyjubloggari virðist kominn á þá skoðun að í raun og veru hafi Benazir Bhutto verið úlfur í sauðargæru. Hún hafi verið úr yfirstétt og menntuð erlendis og því ekki verðug. Hún hafi ekki verið í tengslum við þjóðina sem þó dáði hana að stórum hluta. Tónninn finnst mér óþægilega nálægt því að enginn […]

Sunnudagur 30.12 2007 - 14:56

Oftalin handboltamörk.

Áhugaverð staða er kominn upp í handboltanum. Taplið úrslitaleiks karla í deildarbikarkeppninni hyggst kæra framkvæmd leiksins. Svo viðist sem sigurliðið hafi fengið einu marki of mikið skráð en leikurinn vannst með tveimur. Fullkomlega er eðlilegt að menn láti reyna á dómstóla við þessar aðstæður. Þekki ekki reglur handboltans en mig minnir að hjá okkur í […]

Sunnudagur 30.12 2007 - 13:12

Silfur Egils í dag.

Sit hér og horfi á silfur Egils. Rífandi skemmtilegt eins og oftast. Rétt í þessu mætti Hanna Birna í gin ljónsins. Sat til borðs menn þremur spunameisturum af vinstri kantinum með hinn stórskemmtilega Hallgrím Helgason í fararbroddi. Hallgrímur blessaður er fyrir löngu orðin lið ónýtur í allri pólitískri umræðu vegna áunnins haturs í garð Davíðs […]

Laugardagur 29.12 2007 - 12:22

Íþróttamaður ársins.

Margrét Lára er íþróttamaður ársins. Því ber að fagna og engin ástæða til þess að þusa yfir því að hinn eða þessi eigi þetta betur skilið. Þetta er ekki vísindalega valið og því er ekki hægt að krefja neinn um rökstuðning. Eitt vekur samt furðu mína. Af hverju þarf bikarinn að vera svona stór? Salurinn […]

Föstudagur 28.12 2007 - 16:46

Bhutto lést af slysförum.

Þá vitum við það. Bhutto lést af völdum höfuðhöggs. Nánast vinnuslys. Ekkert skot eða sprengjubrot. Innanríkisráðuneytið hefur sagt þetta og þá er engin ástæða til þess að draga fréttina í efa. Leyniþjónustan hefur svo rakið símtal frá háttsettum aðila al kaida sem heyrist óska öðrum til hamingju mað drápið. Þessi sami sími var greinilega ekki […]

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur