Miðvikudagur 23.1.2008 - 12:08 - 1 ummæli

Þegar rykið sest.

Þá fer rykið að setjast. Mesti móðurinn af og raunveruleikinn fer að sýjast inn. Þetta fer misjafnlega í fólk.

Ég er einungis ánægður með að vera kominn í meirihluta aftur. Aðferðin sem var notuð finnst mér jafn óforskömmuð og síðast, hvorki meira né minna. Þetta er sjálfsagt stöðluð aðferð. Villi er eftir sem áður afleitur kostur í borgarstjórann. Það hefur ekkert breyst. Ekki frekar en borgarstjórnarflokkurinn allur. Er ekki spenntur.

Dagur eins og móðguð prímadonna út um allan bæ. Á því ekki að venjast að fólk ljúgi en var sjálfur einn aðalleikarinn í því þegar síðast var logið. Nú situr hann við samsæriskenningasmíðar. Fólk vorkennir honum, hann er góði drengurinn sem var svikinn. Fjölmiðlar spila með algerlega án þess að velta því fyrir sér hvort hann hafi á einhvern hátt átt þátt í því að Ólafur fór.

Fílhraustur forseti borgarstjórnar er nú skyndilega heilsulaus ef ekki hreinlega geðbilaður verðandi borgarstjóri. Maðurinn er þó með vottorð öfugt við hina sem virðast þó á köflum þurfa vottun.

Margrét er að mýkjast eins og ég spáði. Þeir sem héldu að hún myndi slíta í hvert skipti sem Ólafur skryppi frá eru nú að átta sig á það gerist auðvitað ekki. Hún mun líklegast ganga um borð því kuldinn og valdaleysið í minnihlutanum hentar ekki hennar pólitík. Auk þess sem ekki finnst nein góð ástæða fyrir hana að vera í fýlu. Ekki eru málefnin þar að þvælast fyrir frekar en fyrri daginn hjá henni.

Svandís segir ekki orð. Sem er stílbrot. Hún hefur væntanlega mjög góða ástæðu til þess. Hver ætli hún sé?

Björn Ingi má ekki vera að þessu. Hann hefur í nógu öðru að snúast. Hefur einfaldan smekk drengurinn. Óskaplega held ég að hann vildi að fyrri meirihluti hefði ekki sprungið. Hann réði því ekki einn.

Þetta er einn stór brandari. Mínir menn verða nú að gera lúsaleit að almennilegum frambjóðendum fyrir næstu kosningar. Ekki er hægt að bjóða uppá svona æfingar.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Þriðjudagur 22.1.2008 - 19:09 - 3 ummæli

„Norskar kéllingar og hálfvitar“

Hvernig er það, skiptir engu máli hvað íþróttafréttamenn láta út úr sér við lýsingar? Frægt varð það í sumar þegar Adolf Ingi sagði fáránlegan brandara um þeldökkan spretthlaupara sem heitir Gay að eftirnafni.

Þessi sami maður missti sig enn og aftur þegar hann reyndi að lýsa leik Íslands og Þýskalands á EM í dag. Nú voru það dómararnir sem voru“norskar kéllingar“.

Í seinni hálfleik voru norsku kéllingarnar hins vegar „hálfvitar“! Þvílík framkoma segi ég. Algert stjórnleysi sem á í besta falli heima upp í stúku hjá orðljótum áhorfendum.

Hér vantar fagmennsku og fágun. kannski er hennar ekki krafist hjá rúv í dag. kannski er öllum sama.

Ekki mér.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Þriðjudagur 22.1.2008 - 09:07 - Rita ummæli

Borgaróstjórn.

Nú er líf og fjör. Sárafáir sem ég hef heyrt eða lesið virðast geta fjallað um atburðarásina í borginni án þess að vera með pólitísk gleraugu á nebbanum. Ég sennilega engin undantekning.

Allir halda með einhverjum og svo taka menn sig til við heilagar réttlætingar. Sumir þykjast sjá eðlismun á þessari atburðarás og þeirri sem varð síðast. Í hverju sá munur liggur er mér ekki ljóst nú á þessari stundu. Dagur er eins og stórmóðguð prímadonna alveg eins og Gisli Marteinn var á sínum tíma.

Veikur meirihluti er hrópað. það blasir við en jafnljóst virðist að sá gamli var líka fárveikur. Það vissi bara enginn fyrr en í gær. Dagur vanmat Ólaf og kröfur hans um málefnasamning og völd. Ólafur sem var svo fílhraustur samstarfsaðili í fyrradag þykir í dag fársjúkur maður. Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn.

Nú virðist mörgum sem allt líf hangi á Margréti Sverrisdóttur. Ekki víst að það viti á gott. Enginn veit beinlínis fyrir hvaða pólitík hún stendur. Kosin frálslynd, bauð sig fram fyrir Íslandshreyfinguna og er nú óháð. Þarna fer konan sem skammaði Gunnar Örlygsson hástöfum fyrir að skipta um póltískan verustað á miðju kjörtímabili! Vistin í glerhúsinu getur verið nöturleg.

Hún getur slitið meirihlutanum ef Ólafur forfallast og Ólafur þá væntanlega slitið til baka þegar forföllum lýkur. Hvurslagsa ástand er það sem boðið er uppá? Sjálfstæðismenn sem voru hársbreydd frá því að losa sig við Villa standa nú hnarreystir að baki honum.

Allt fyrir völdin. það er það eina sem telur. Fyrri meirihluti hafði engin málefni önnur en að sitja við völd og nýji meirihlutinn virðist bara til í hvað sem er til að komast að og ná fram hefndum.

Borgarfulltrúunum 15 ber skylda til þess að mynda meirihluta sem er á vetur setjandi. Mín spá er sú að Margrét muni kokgleypa stóryrðin þegar af henni rennur reiðin. Hún hefur aldrei verið prinsippmanneskja og þegar við henni blasa völd og stólar þá finnur hún leið. Leið til að snarsnúast í afstöðunni því það er illskárra en að hírast í minnihluta og bíða eftir því að Ólafur tapi heilsu svo hún geti komið og búið til enn meiri glundroða.

Svo er alltaf möguleiki á ríkisstjórnarmeirihluta í borginni….

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Mánudagur 21.1.2008 - 22:55 - 1 ummæli

Ólafur heim á ný?

Það skyldi þó ekki vera að þjösnagangurinn í kringum heilsu Ólafs og efasemdir um að hann geti klárað það að fá Margréti til liðs við sig endi með því að Ólafur skili sér heim á ný?

Gangi bara í sjálfstæðisflokkinn. það er engin leið til baka fyrir hann ekki ósvipað og með Björn Inga sem mátti til að láta samstarfið ganga upp því hann átti ekki í nein hús að vernda önnur.

Ég er ekki viss um að Ólafur ætli sér að vera í gíslingu Margrétar því hann verður að klára þetta verkefni alla leið úr því að hann lagði af stað. Hann hefur alltaf verið fremur barnalegur í sinni pólitík og það sést hér enn því hann trúir því í einlægni að hann geti höfðað til málefna þegar hann sest niður með Margréti. Þar munu stólar telja meira en annað.

Gangi það ekki upp mun hann hugsanlega skila sér heim.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Mánudagur 21.1.2008 - 22:06 - Rita ummæli

Ríkisstjórnin springur ekki.

Jú ekki vantar að grautfúlir samfylkingarmenn eru strax byrjaðir að heimta að ríkisstjórninni verði slitið. Á hvaða forsendum er reyndar látið liggja milli hluta. Sennilega af því bara.

Vandi vinstri manna í gegnum tíðina kristallast einmitt í þessu kjánalega viðhorfi. Heitar tilfinningar ráða frekar en yfirveguð rökhugsun. Nánast var leitun að sjálfstæðismönnum sem lögðu til að ríkisstjórn yrði slitið eftir að samfylkingin fór aftur í meirihluta samstarf í borginni.

Hvernig ætla þessir blóðheitu samfylkingarmenn að búa til ríkisstjórn? Með framsókn? Með vinstri grænum? Hver treystir sér til þess að svara þessum spurningum játandi.

Ég held að meira að segja félagi Ösuur geri sér fulla grein fyrir því að samfylkingin þarf á stöðugleika að halda. Ekki upphlaupum til þess eins að ná sér niður á sjálfstæðisflokknum sem er aukinheldur að virka svona ljómandi vel í samstarfi.

Samfylkingin þarf að ná ró og yfirvegun. Stöðugleika en ekki upphlaupum í tilfinningaróti. Þess vegna held ég að Ingibjörg muni ekki leiða hugann að slitum.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Mánudagur 21.1.2008 - 20:56 - Rita ummæli

Hver klúðraði núna?

Nú tíðkast þau breiðu spjótin. Fyrstu viðbrögð mín við hinum nýja meirihluta voru að mér fannst þetta allt að því hlægilegt. Hvurslags lið hafa íbúar höfuðborgarinnar kosið yfir sig? Eru engin prinsipp til í stjórnmálum?´Veit ekki en ekki eru menn langræknir svo mikið er víst.

Ég sé ekki neinn reginmun á þessari aðferð sem notuð var en hinn fyrri sem Björn Ingi beitti. Það liggur í eðli málsins að logið er að borgarstjóra í einhvern tiltekinn tíma enda sé ég ekki annað en að Dagur sé álíka móðgaður yfir því eins og Villi síðast.

Dagur reyndar alveg búinn að gleyma að hann var hinn helmingur síðustu svika. Svona gerast þessi kaup á eyrinni og ekki á annan hátt. Eitt og annað virðist líkt með þessum byltingum.

Báðir þeir sem út undan sér hlaupa segjast hafa fyrir því gildar ástæður. Og báðir segjast trúa því að þeir muni hafa sitt fram. Munurinn hér gæti verið að Björn Ingi náði því ekki en Ólafur er þó með sitt á pappír. Getur verið að Dagur hafi klúðrað á því að nenna ekki að gera málefnasamning? Bar hann ekki næga virðingu fyrir Ólafi?

Ætli félagi Össur tali nú um sögulegt klúður sexmenninganna? Ólafur yrði þar með svikarinn þó Björn Ingi hafi ekki verið það á sínum tíma. Mér finnst þetta dapurlegt, fannst það síðast og finnst það nú. Þetta er samansafn fólks sem er ekki nógu sterkir stjórnmálamenn.

Hlutur Margrétar jafn absúrd og hann var síðast. Ef að líkum lætur mun hún spila með og fá að launum sama díl og síðast. Þægilegan og ylvolgann stól einhversstaðar. Hún hefur ítrekað hagað seglum eftir vindi og gerir það hér líka.

Nú er Birni Inga ekkert að vanbúnaði að yfirgefa borgina og taka slaginn við Guðna. Hlálegt að Guðni skuli vera búinn að eyða öllum deginum að lýsa stuðningi við Björn Inga!

Trúnaðarbrestur og svik eru að verða daglegt brauð í þessari aumu borgarstjórn. Spái því að nú verði nánast orðrétt sama tuðið í hinum kokkáluðu og var síðast.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Mánudagur 21.1.2008 - 12:26 - 1 ummæli

Svekktur og þreyttur Alfreð.

Þá erum við komin í milliriðil á EM á handbolta. Fyrsta markmiðinu náð en samt eru óverðský yfir liðinu. Hin stóru markmið hópsins virðast svo fjarri. Þau eru það vissulega, ekki bara stærðfræðilega heldur líka handboltalega.

Þessi ferð virðist ekki veita neina gleði. Flestir einblína á það sem ekki er að virka og mikið talað um neikvæða þætti. Þar fer þjálfarinn fremstur og hann virðist alveg laus við bjartsýnina sem fékk hann til að stefna raunhæft á verðlaun.

Nú rennur skyndilega upp fyrir honum að lykilmenn liðsins eru ekki í leikformi. Menn eru staðir og spila ekki kerfin. Logi Geirsson kann þau ekki segir hann eða hreinlega vill ekki spila þau. Þá er að setja hann á bekkinn eða út í horn eins og vinnuveitendur hans gera því þar reynir fer minna fyrir þessum eðlisgöllum hans.

Mér finnst eins og Alfreð líði llla með þetta lið núna. Virðist fúll og laus við baráttu. Ég veit vel að ekki er á vísan að róa hjá þjálfurum. Hann getur lítið að því gert að stór hluti hópsins er ekki í nógu góðu ástandi. Þar er hann óheppinn. En uppgjafartónninn er samt of mikill.

Nú er um að gera að hann bretti upp ermar og berji sínum baráttu í brjóst. Tali kannski af og til um það sem er að virka. Við erum oft skratti seigir þegar á móti blæs. Ef við getum unnir Frakkland með 8 mörkum í fyrra þá er varla við öðru að búast en að þeir geti eitthvað svipað. Þetta er enginn heimsendir.

Grautfúllt reyndar. Og það er kannski að hluta til vegna þess að þjálfarinn sjálfur talaði upp miklar væntingar fyrir mót. Við lékum úrslitaleikinn í fyrst leik. Og svekkelsi hans er öllum augljóst.

það veldur mér vonbrigðum. Nú má ekki gefast upp enda hljóta keppnismenn að spyrna sér frá veggnum. Kannski dugar það ekki að þessu sinni en þá er það bara þannig. En við hljótum að reyna að þá gæti verið sniðugt að reyna að hafa pínu gleði í þessu og hætta að væla.

Vælið hefur aldrei skilað okkur neinu.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Mánudagur 21.1.2008 - 09:11 - Rita ummæli

Framsóknarblús.

Ég er bara ekki einn af þem sem trúir á tilviljanir. Ég trúi því til að mynda alveg að Guðjón Ólafur sé óhress með að vera ekki lengur þingmaður og honum leiðist að sjá fyrrum vin sinn Björn Inga komast til sífellt aukinna metoðra rétt á meðan.

Einnig trúi ég því að Ólafur hafi áhyggjur af því að Björn Ingi muni velta formanni sínum af stalli við næsta hentugleika. kannski er það þess vegna sem hann sest niður við bréfaskriftir. Formannsslagurinn er hafinn og hann af skítugri gerðinni ef eitthvað er að marka byrjuninna.

Ég tilheyri reyndar ekki þeim hópi manna sem telur að átök um formannsstólinn sé óeðlilegri í framsókn er annarsstaðar. Veit ekki betur en að aðrir flokkar hér hafi verið sárir, og sumir mjög sárir lengi, eftir átök um formanninn.

það sem er sérstakt núna er að flokkurinn er í þannig ástandi að ekki er víst að hann lifi stórátök af og sér í lagi ef þau ætla nú að vera skítug mjög.

Svoleiðis stríðsrekstur mun einungis verða vatn á millu Valgerðar og Syfjar sem gætu endað með pálmann í höndunum á meðan drengirnir berast á banaspjótum.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Fimmtudagur 17.1.2008 - 22:16 - Rita ummæli

Horft yfir Slóvaka.

Sá því miður ekki leikinn í kvöld. Var í öðru. Hef því ekki skoðun á honum þannig séð. Hitt finnst mér ekki ólíklegt að sú áætlun þjálfarans að spenna væntingar og kröfur upp og setja mikinn þrýsting á þennan leik hafi kannski komið honum í bobba.

Mér finnst stundum vafasamt í móti eins og þessu að gera úrslitaleik úr fyrsta leiknum. það er líf eftir hann en kannski líður öllum núna eins og allt sé fyrir bí. Fall getur vissulega orðið fararheill.

Svo er annað. Í síðasta stórmóti gerðum við þau mistök á horfa hreinlega yfir Úkraínu. Aldrei var talað um þá eins og alvöru andstæðing. Enda fór það svo að þeir tóku okkur en við redduðum svo lífinu með afreki gegn Frökkum.

Við förum nákvæmlega eins í þetta mót. Slóvakía hefur aldrei komist á dagskrá. Kannski hefði verið betra að setja sér það einfalda markmið í upphafi að vinna þá. Sá einhvern spá því að annað hvort ynnum við þrjá leiki eða töpuðum þremur.

Það held ég ekki eða vona allavega ekki en mér finnst upplegg þjálfarans bjóða uppá akkúrat þannig mót. Allt eða ekkert og það fellur frekar en allt á fyrsta leik.

Við erum oft bestir með bakið uppað veggnum og vonandi hristum við þetta af okkur. En er von sama hvað hver segir. Íþróttir eru sem betur fer ekki raunvísindi og því getur allt gerst.

Andlegur undirbúningur og spennustjórnun eru vanmetnir þættir. Mér finnst ekki gott að byggja upp hræðslu. Mig grunar að það hafi gerst.

Vona samt ekki og hef fulla trú á mínum mönnum.

Áfram Ísland.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Fimmtudagur 17.1.2008 - 15:47 - 1 ummæli

Klám og handbolti.is

Stórmerkilegt viðtal við stjórnarmann HSÍ á sem heldur úti handbolti.is. Hann hefur fullkomlega eðlilega verið sakaður um að vera klámfenginn í viðtölum við ungt handboltafólk.

Þetta framferði ver hann með því að það séu hvort sem er allir farnir að sofa hjá 14 ára. Get með engu móti séð hvernig það réttlætir að taka klámfengin viðtöl við stúlkurnar í landsliðinu þar sem flest snýst um tala um kynlíf þeirra þótt þær vilji augljóslega ekki ræða það við þennan mann.

Klikkir svo út með því að til þess að ná vinsældum geti þetta verið hagnýtt. Þetta sé mest lesið. Skil hvorki upp né niður í viðtalinu við manninn.

Veit HSÍ af þessu?

Viðtalið er á visi.is

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur