Þegar við ræðum bankakerfið íslenska, umfang þess og þjónustu, þurfum við að horfa til þess að við erum fámenn og markaðurinn lítill. Við þurfum þrátt fyrir smæðina að koma okkur upp regluverki og eftirliti með fjármálastarfsemi sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og trausts, og það er einnig forsenda þess að rekin sé samkeppnisfær utanríkisverslun. Sjálfstæður gjaldmiðill […]
Allt sem skiptir máli fyrir þróun ferðaþjónustunnar hér á landi skiptir einnig máli fyrir Suðurland, enda vinsælustu ferðamannastaðirnir á því landssvæði. Ferðaþjónustan er á örfáum árum orðin ein af undirstöðu atvinnugreinum þjóðarinnar en enginn hefur almennilega haldið um stjórnartaumana og stýrt þróun hennar eða metið áhrif umfangs hennar, s.s. á aðrar atvinnugreinar, fasteignaverð og þenslu. […]
Formaður Sjálfstæðisflokksins skilur ekki enn hvernig hann skildi eftir lág- og millitekjufólk – 80 prósent landsmanna! – en lækkaði skatta á efnaðasta fólk landsins. Það er svo merkileg þessi mýta um að hægrimenn stjórni betur en aðrir eða hafi meira vit á peningum, því hún stenst enga skoðun. Indriði Þorláksson, fyrrum ríkisskattstjóri, afgreiddi fjármálaráðherrann snyrtilega og […]
Eftir kosningar verða kaflaskil og tækifæri til að gera breytingar sem skipta máli fyrir almenning í landinu. Kjósendur ráða ferðinni og niðurstaðan verður vonandi hagfelld þeim flokkum sem vilja sjá umbætur strax. Samfylkingin er málsvari barnafjölskyldna. Við viljum að þær fái betri stuðning með því að lengja fæðingarorlofið og hækka barnabæturnar. Við þurfum öll að […]
Upplýsingarnar sem greint var frá í gærkvöldi í Kastljósi um mögulegan leka úr Seðlabankanum til starfsmanns Samtaka fjármálafyrirtækja, eru grafalvarlegar og krefjast þess að lekinn og hugsanlegar afleiðingar hans séu rannsakaðar og upplýstar að fullu. Samtal forsætisráðherra og seðlabankastjóra verður að birta. Ekki er síður alvarlegt að sérstakur saksóknari skuli ekki hafa upplýst Seðlabankann um lekann […]
Samfylkingin kynnti á dögunum eina snjalla leið til þess að aðstoða þá sem ekki eiga útborgun í íbúð. Hugmyndin er að fjölskyldur fái fyrirframgreiddar vaxtabætur, en það eru peningur sem leigjendur fengju hvort sem er að hluta í formi húsnæðisbóta og þeir kaupendur sem rétt eiga á vaxtabótum. Þetta er hófleg leið sem gagnast ekki […]
Þriggja milljón króna forskot á fasteignamarkaði fyrir þá sem ekki eiga íbúð er ný leið okkar í Samfylkingunni til að hjálpa leigjendum og ungu fólki á erfiðum fasteignamarkaði. Mikið hefur verið rætt um þessa leið síðan við kynntum hana á þriðjudaginn sem er ánægjulegt. Henni hefur ranglega verið líkt við leiðir ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sem kynntu […]
Samfylkingin tekur undir ákall 87.000 Íslendinga um að stórauka framlög til heilbrigðisþjónustunnar. Það er óásættanlegt að spítalar séu sveltir, á meðan efnahagur er á uppleið. Veikir Íslendingar og fjölskyldur þeirra, eiga að hafa forgang. Við eigum öll að geta gengið að öflugri opinberri heilbrigðisþjónustu um allt land. Og hún á að vera ókeypis. Já, við […]
Stutt ræða á Alþingi 30. ágúst 2016 Herra forseti Ísland er ríkt land og hér á að vera best í heimi að lifa, eldast og eiga gott ævikvöld. Það er samt ekki hægt að segja að þannig sé staða allra sem eldri eru hér á landi. Of margir eldri borgarar lifa eingöngu á lágmarkseftirlaunum sem […]
Við Íslendingar erum ekki sammála um hvernig eigi að skipta arðinum sem auðlindirnar okkar skapa og endalausar deilur eru um málið ár eftir ár. Þó margt hafi tekist vel í sjávarútvegi hér á landi þá vantar enn réttlætistilfinninguna um að samfélagið allt njóti góðs af auðlindanýtingunni eins og best verður á kosið. Kvótakerfi var sett […]