Miðvikudagur 11.03.2009 - 11:58 - 2 ummæli

Hvað hræðist Jóhanna?

Merkilegt að fylgjast með Samfylkingunni reyna að galdra Jóhönnu til formennsku. Maður gengur undir manns hönd og stuðningurinn virðist alger. Þetta ætti í venjulegu árferði að vera hið fullkomna veganesti. En þannig er það nú samt ekki.

Konan hefur klárlega engan áhuga á djobbinu. Hún mun þó taka það að sér þvert gegn vilja sínum enda þrýstingurinn orðinn óbærilegur. En það getur varla orðið til langframa og því hlýtur enn eitt plottið að vera í pípunum.

Jóhanna verður látin sigla með laskað skipið í gegnum kosningar og svo verður hönnuð atburðarás svo hún losni við þennan kaleik sem hún hefur alls engan áhuga á. Þetta er auðvitað strangheiðarlegt gagnvart þjóð og flokki.

Nú er bara hugsað um koma sér upp einhverju trúverðugu svona rétt yfir kosningar. Og helst ekki að gera neinar mannabreytingar þó þjóðin öll æpi hástöfum á slíkt. Gamla liðinu er bara skákað til hingað og þangað eftir útgefinni forskift elítunnar.

Ég finn eiginlega til með Jóhönnu sem virðist vera dæmd til að taka flokkinn að sér þangað til annað kemur í ljós þvert gegn vilja sínum.

Röggi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (2)

  • Anonymous

    Alveg ótrúlegt hvað Sjálfstæðismenn hafa miklar áhyggjur af formannsvali í Samfylkingunni. Á sama tíma fer fram formannsval í Sjálfstæðisflokknum sem enginn talar um. Hvers vegna skyldi það nú vera?

  • Anonymous

    Og alveg makalaust hvað Sjálfstæðismenn sjá hannaðar atburðarásir í hverju horni. Sá sem byrjar að tala um hannaða atburðarás í dag getur allt eins hrópað: „Ég er sjálfstæðismaður!“ Hver þarf hannaða atburðarás á þessum síðustu og verstu?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og þremur? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur