Fimmtudagur 09.09.2010 - 10:51 - 3 ummæli

Svavar og Icesave

Svavar Gestsson gefst ekki upp í baráttu sinni fyrir Icesave samningnum sínum. Karlinn er pikkfastur í tíma sem er liðinn og missti af fjörinu öllu þegar þjóðin hafnaði klúðrinu hans eftirminnilega og afgerandi. Svavar veit greinilega ekkert hvar víglínan í þessari baráttu liggur núna og þusar bara um gamla tíð.

það sem er auðvitað verst í þessu er að gamli allaballinn á sér dygga stuðningsmenn í ríkisstjórninni. Ef eitthvað er að marka félaga Svavar er þetta fólk enn sannfært um að Icesave samningurinn sér stórsigur.

Hvað þarf til að opna augu þessa fólks?

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • Anonymous

    Uppreisn.Byltingu.En friðsamlega.Ekki byltingu eins og Svavar og hans félaga dreymdi um þegar hann var í „námi“ í Alþýðulýðveldinu.Nú hræðist hann fólkið sem hann þóttist áður vinna fyrir.Og er orðinn ofurlaunamaður á framfæri skattgreiðenda.Tíminn breytist en óheilindin ekki.

  • Anonymous

    svavarssamningurinn er sá besti sem við höfum gert hingað til.í honum er m.a. ákvæði um að við megum borga hann upp ef við fáum lán á betri kjörum annarstaðar.ég er ekki að segja að hann sé „góður“ eða „slæmur“. það er hinsvegar staðreynd að samningsaðilar voru tilbúinir í að samþykkja.kannski fáum við betri samning. kannski ekki. kannski töpum við málinu fyrir dómstólum og lendum í miklu verri aðstöðu. kannski.eina sem er í hendi í dag, er að þetta var skásti samningur sem við höfum náð enn sem komið er

  • Anonymous

    Það verður alveg sama hvernig fer í Iceavemálinu. Íslendingar munu aldrei viðurkenna að þeir hafi tapað. Hvorki ærunni né peningunum. Þeir eru einsog riddarinn hugumstóri sem hikaði ekki við að gera árás á vindmyllur. Annar frækinn riddari í Monthy Python kvikmynd barðist þar til búið var að höggva af honum alla útlimi, samt hætti hann ekki að rífa kjaft á meðan blóðið spýttist í allar áttir. Þessi þjóð er sætust. Það er ekki hægt annað en að elska okkur.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og þremur? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur