Laugardagur 19.11.2011 - 15:35 - 18 ummæli

jonas.is og umræðuhefðin

Jónas Kristjánsson er athyglissjúkur maður sem heldur að vægi skoðana hans aukist í réttu hlutfalli við svívirðuna sem hann getur soðið saman. Karlanginn æpir á athygli og fær hana en er nákvæmlega sama á hvaða forsendum sú athygli er.

Þegar rætt er um þennan gamla blaðamann og hans ritstjóraferil er hægur vandi að týna til óhemjusorgleg tilfelli þar sem skrif hans og stílbragð hafa haft alvarlegar afleiðingar en það hefur ef eitthvað er forhert kallinn.

Efnistökin eru þráhyggjukennd þegar kemur að stjórnmálum og ekki verður betur séð en að maðurinn telji sig verða að toppa sjálfan sig í ruddaskap í hvert sinn sem hann sest niður.

Og alltaf skulu þeir fjölmiðlamenn vera til sem sjá tilgang í því að dreifa mykjunni. Það er í raun magnað og segir manni hvað pólitík getur ruglað jafnvel bestu menn í ríminu. Stundum meira að segja menn sem á fínum stundum segjast hafa óbeit á því hvernig pólitísk umræðuhefð okkar er þróast.

Sorglegt.

Röggi

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (18)

  • Anonymous

    Þú mættir laga tengilinn. Http er tvítekið hjá þér. Og já, kallinn á það til að fara hressilega yfir strikið.

  • Anonymous

    Hér er fágætt myndband af karlinum við ritstörf:http://www.youtube.com/watch?v=-VN2KRxTdjEHey, það er föstudagur! Að öllu gríni slepptu er ég sammála hverju orði í þessum pistli.Eyjólfur

  • Anonymous

    Jónas er flottur og bráðnauðsynlegur til að hræra í heilabotnfallinu og froðunni sem hér fyllir síðurnar. Hann hefur ekki alltaf rétt fyrir sér sjónarmið hans eru bæði gild og skýr.

  • Anonymous

    Jónas er einn leiðanlegasti bloggari landsins sem leggur illa til fólks sem honum líkar ekki við.Illskan, hatrið og heiftin skín úr skrifum hans svo hann minnir einna helst á geðvont og biturt gamalmenni.

  • Anonymous

    Jónas skrifar sannleikann um Sjálfstæðisflokkinn nokkrum sinnum í viku og hvílíkt böl hann er búinn að vera á þessari þjóð í meira en 80 ár.

  • Anonymous

    Já, Jónas pirrar marga og flestir eiga það skilið. Hann hefur verið nauðsynlegur í umræðunni um spillinguna þar sem hann ítrekar stöðugt það sem illa er og var gert. Íslendingar hafa ekkert minni en Jónas sér um að þeir gleymi ekki.

  • Anonymous

    Sé ekki betur en Jónas fari með rétt mál, sérstaklega ef horft er á forysturæðurnar á landsþingi Flokksins – þar sem Flokksmenn reyna að hvítþvo sig frá ábyrgð á hruninu. Það er sorglegt. Svipað og Nazistaflokkurinn hefði reynt að hvítþvo sig frá glæpaverkum sínum.Fólkið í Sjálfstæðiflokknum hefur ekki manndóm til að viðurkenna mistök sín og ábyrgð Flokksins í hruninu. Þeir reyna frekar að klína því á alla aðra og þá helst vonda útlendinga. Þetta reynir Flokkurinn þótt að það sé sannað að forystumenn hans og fjölmargir embættismenn og útrásarvíkingar sem tengjast Flokknum bera mesta ábyrgð á hruninu.

  • Anonymous

    Þegar maður les heilaprump Jónasar öðru hvoru lærir maður að meta kraftaverk skilnings. Í hvert einasta skipti.Því það er skilningur sem veldur því að vel lundað og andlega heilbrigt fólk eins og ég og Röggi umberum fólk eins og Jónas.

  • Anonymous

    Einu aðilarnir sem eru að gera athugasemdir við skrif Jónasar á netinu, eru félgar í glæpagenginu innan sjálfstæðisflokknum !Þú býrð þér til það sem þú átt skilið !Ef þú villt tilheyra glæpagenginu innan sjálfstæðisflokkunum , þá ertu búinn að búa þér til þinn stað !Ekki sakast við Jónas !!!Veit ekki hvort maður þorir í stólinn hjá þér ?Kveðja JR

  • Anonymous

    Ég tek heilshugar undir með Jónasi sem segir skýrt það sem oftast hefur mikilvægan sannleikskjarna. Þegar maður er ósammála honum er það ergilegt vegna þess hve hvass hann er — sjónarmiðhans eru nær undantekningalsut réttmæt — líka þegar mikilvæg mótrök eru ósögð, það er þá annarra að bera þau fram.Þjóðrembur og Sjálfstæðismenn þola hann vafalaust illa síðustu misserin enda á hann létt með að afhjúpa sjálfmiðað og eigingjart hugarfar þeirra og hve langt þeir ganga til að fela það.

  • Jónas segir bara sannleikann og aldrei neitt annað.Jónas er bestur.

  • Anonymous

    Ósammála þér hér. Ný umræða, byggð á heiðarleika og hugrekki, þarf að taka við að heigulshætti sem hér hefur ríkt undir járnhæl DO og SjálfstæðisFLokks. Jónas er kóngurinn.

  • Anonymous

    Jónas er endaþarmur íslenskrar blaðamanna stéttar og bara viðeigandi að hann þorir ekki að leyfa fólki að svara sé beint!

  • Anonymous

    Þá er Jónas frá og AMX næstir. Bíð spenntur.

  • Anonymous

    Jónas er í opinni umræðu á Facebook.

  • Anonymous

    Jónas segir einfaldlega sannleikan um mafíuna sem hefur tröllriðið íslensku samfélagi.

  • Jónas er mótvægi við stæðstu fjölmiðla landsins sem flestir eru í eigu mafíunnar eða á annan hátt undir hennar stjórn.

  • Anonymous

    Sammála. Karlinn er illgjarn og svolítið skrýtið að svona rugludallar eins og hann hafi svona mikið vægi í umræðunni.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og fjórum? Svar:

Höfundur

Rögnvaldur Hreiðarsson
Nánar um höfundinn......Hann er faðir og afi. hann er rakari og hann elskar golf og dæmir körfubolta ef hann er ekki úti að hjóla. Maðurinn hefur skoðanir á flestu og hefur á stundum þörf til þess að koma þeim á framfæri. Hann er kristinnar trúar, hvítasunnumaður, og lætur það skipta miklu máli..

Og hann er allskonar auðvitað....
RSS straumur: RSS straumur