Þessa spurningu fékk ég á göngutúrnum mínum úti í snjónum í gær þegar sól skein á skjannahvíta heiðina og maður gat ekki hugsað sér neitt fegurra og hreinna en nákvæmlega umhverfið þar sem ég stóð. Spurningu sem tengist mannanna verkum og afleiðingu viss sóðaskaps í heilbrigðismálum undanfarin ár. Vissa samlíkingu höfum við í öðru nærumhverfi og sem við höfum verið […]
Umræðan í dag um bankastjóranna er ansi eldfim og púðrið er heitt og þurrt. Fólki blöskrar græðgi þeirra sem fara með og geyma þá fáu peninga sem eftir eru í landinu. Og allra mest blöskrar fólki þróun mála miðað við það sem á undan er gengið og almenna launaþróun í landinu. Hvað halda þessir menn […]
Í nótt gekk á með þrumum og eldingum meðan ég svaf svefni hinna saklausu. Á morgungöngunni fékk ég hins vegar mikið stormél í fangið, svo mér stóð ekki á sama. Síðastliðnar vikur hef ég fylgst með morgunbirtunni á austurhimninum sem varla er nema örlítil glæta svo snemma morguns. Í morgun þegar ég kom heim var hins […]
Í vikunni fór ég út að borða með konunni minni af sérstöku tilefni. Fyrir valinu varð veitingarstaður sem mig hefur lengi langað til að heimsækja og sem heitir Sjávarkjallarinn. Ástæðan var ekki sú að ég væri góðkunnugur í Geysishúsinu í gamla daga, þegar ég var eins og grár Vesturbæjarköttur að reyna að selja fréttablöð eða […]
Í vikunni gekk ég upp á heiði sem klædd var að mestu dúnhvítum snjó sem var svo vinsamlegur að koma aftur nú í vetrarlokin. Engin spor eða neitt sem minnti á nýlegar mannaferðir. Aftur var ég aleinn og fótsporin mín mörkuðu landslagið svo ekki var hjá því komist að veita þeim athygli á bakaleiðinni. Og það var […]
Í dag er ég feginn að veturinn er kominn aftur og allt er orðið hvítt. Vorið var ekki tímabært og í raun algjör tímaskekkja enda margir farnir að hlaupa út undan sig eins og kálfar. Við höfum vel tíma til að fara yfir málin áður en vorið, tími væntinga og vona kemur. Vegna umræðunnar nú […]
Í Fréttablaðinu í morgun er heilsíðugrein „Í labbitúr með hjálm?“ eftir hinn ágæta pistlahöfund, stærðfræðinginn Pawel Bartoszek sem samt hefur ekki alveg áttað sig á einu auðskiljanlegasta lögmáli náttúrunnar sem kennt er við eðlisfræðinginn Newton og er um samspil aðdráttarafls jarðar, þyngdar og fallhraða og við lærðum um í barnaskólanum í gamla daga. Að minnsta kosti virðist […]
Það er margt sameiginlegt með umræðunni í dag og myglunni. Hún lyktar illa og það getur verið erfitt að greina skemmdu eplin í körfunni nema taka þau öll upp og skoða þau vel og vandlega. Ef til vill kemur myglufnykurinn samt annars staðar frá, jafnvel að utan. Sjálfur tel ég mig næman að finna myglulykt, ekki síst þegar […]
Nú er flensutími og mikið um kvefpestir og jafnvel inflúensur. Margir leita allra ráða til að láta sér batna fyrr og sumir naga sig nú í handarbökin að hafa ekki látið bólusetja sig við svínaflensunni. Undanfarin ár hefur í vaxandi mæli verið leitað lausna á ýmsum líkamlegum kvillum svo sem pestum ýmisskonar með hráefnum sem koma beint frá […]
Við búum í landi öfga, elds og ísa. Sannkölluðum hulduheimi og margir eins og undir álögum. Ég er líka aðeins hjátrúarfullur, hvernig ætti annað að vera. Vísindin ráða auðvitað mestu hvernig ég vinn daglega sem heimilislæknir, en ekki sem maður. Þar kemur reynslan oft að meira gagni. Og vísindin vita því miður oft svo mikið um lítið. Lífið sjálft er oftast stærsti […]