Það er með ólíkindum að í dag skuli vera auðveldara að fá þjónustu fyrir bílinn sinn en líkamann sinn. Eins er með ólíkindum að það skuli verða auðveldara að fá grunn heilbrigðisþjónustu á afskktustu stöðum landsins en í sjálfri höfuðborginni. Eins er með ólíkindum að almenningur skuli ekki vera farinn að gera kröfu um eðlilega […]
Þessa daganna er til umræðu hjá allsherjarnefnd alþingis að breyta íslensku fánalögunum og leyfa fánanum að blakta við hún allan sólarhringinn á sumrin, jafnvel alla daga og síðar jafnvel árið um kring. Flutningsmaður tillögunnar er Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður. En svo segir m.a. í tillögu til þingsályktunarinnar: „Flutningsmaður leggur til það svigrúm að hafa megi fánann uppi allan sólarhringinn yfir […]
Tjáningarfrelsið og er sennilega eitt það dýrmætasta sem við eigum. Það frelsi er hornsteinn lýðræðisins, en vandmeðfarið. Aðgát skal í nærveru sálar og orð geta sært. Frásögnin er líka hluti af tjáningunni og það geta orðið til sögur. Börnin eru sérstaklega góðir hlustendur og ævintýr er þeirra uppáhald. Með sögum er lagður grunnur í þroska þeirra og tjáningu síðar. Þetta köllum við nauðsynleg […]
Nú nálgast 17. júní, þjóðhátíðardags okkar Íslendinga og visst stjórnleysi ríkir í höfuðborginni. Því verður manni hugsað til sögunnar. Eins hef ég alltaf haft dálæti á íslenska fánanum og ungur lærði ég að umgangast hann af mikilli virðingu hjá skátunum. Síðar fékk ég stundum af flagga á hátíðisdögum hjá afa mínum. Mig hefur reyndar alltaf langað til […]
Fá hugtök hafa jafn jákvæða merkingu og „fyrramálið“ enda vísar það til nýs dags með öllum þeim möguleikum og væntingum sem nýr dagur hefur upp á að bjóða. Í fyrramálið er maður væntanlega upplagður og úthvíldur. Fullur orku til að takast á við vandamál dagsins. Góðar ákvarðanir ru best teknar að morgni. En fyrst þarf […]
Í gærkveldi fór ég í minn venjulega göngutúr með hundana mína. Það sem var e.t.v frábrugðið því venjulega var að veðrið var einstaklega gott. Kvöldsólin í vestri yfir Snæfellsnesinu og það grillti í tunglið yfir Úlfarsfellinu. Blankalogn og sól á heiði en klukkan samt tveimur tímum fyrir miðnætti. Mikil óveðursblika hefur verið í lofti í […]
Hingað til hefur maður staðið í þeirri trú að heilbrigðisyfirvöld teldu að heilsugæsluþjónustan væri nauðsynlegur hornsteinn heilbrigðisþjónustunnar, ekki bara úti á landi heldur einnig á höfuðborgarsvæðinu. Þannig er það að minnsta kosti í nágrannalöndunum. Heilbrigðisráðherra hefur einnig tjáð sig um málið að undanförnu og telur að tryggja þurfi mönnun í heilsugæsluþjónustunni í náinni framtíð, ekki […]
Mikill skjálfti virðist kominn í lyfjaframleiðendur erlendis ef marka má fréttir síðustu daga. Haft er eftir framkvæmdastjóra lyfjarisans Roche að íslenski örmarkaðurinn sé það lítill að hann skipti fyrirtækið ekki máli og það íhugi að hætta sölu lyfja til landsins vegna óstöðugs lyfjaverð á algengustu lyfjum. Eins er farið er að bera á því að lyfjafyrirtæki hætti […]
Það er ekki laust við að maður fyllist ákveðinni svartsýni og kvíða á þessum svarta föstudegi þegar yfir okkur rignir eldi og brennisteini og sem nú nálgast sjálft höfuðborgarsvæðið. Sumir hafa þurft að yfirgefa húsin sín á suðurlandi sl. vikur, ekki síst undir Eyjafjöllum. Mikill fjöldi húsa og íbúða standa hins vegar yfirgefin og tóm þessa daganna […]
Það hefur lengi blundað í mér að koma orðum að því og lýsa hvernig manni líður í og eftir hafa verið viðstaddur jarðarför ættingja, vins eða samferðarmanns. Undanfarið hefur þessi tilfinning ,eða réttara sagt hughrif, sótt meira og meira á mig, einkum hvað samferðarmennina varðar. Það er ekki vegna þunglyndis heldur dapurleika þess hvernig komið er fyrir þjóðfélagi sem ég átt […]