Nýjustu tækin eru ekki á Landsspítalanum heldur hjá Landsbankanum. Það er nefnilega ekki sama Jón og séra Jón hjá ríkinu. Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að endurreisn fjámálastofnanna hefur kostað ríkið um 250 ma kr. Þar af er líklega um 190 ma kr. vegna Landsbankans og SpKef. Fáar stofnanir hafa fengið jafnmikið fjármagn frá skattgreiðendum frá […]
Góðu fréttirnar eru að stefnt er að hallalausum fjárlögum, en varla er hægt að tala um að það sé gert á sjálfbæran hátt. Á tekjuhliðinni eru það þrotabú gömlu bankanna sem standa undir stærstu tekjuaukningunni. Hvað aðhaldsaðgerði snertir eru það tilfærslur, viðhald og ný verkefni sem bera þungann. Að þrotabú gömlu bankanna skuli 5 árum […]
Flestir sjá að núverandi heilbrigðiskerfi gengur ekki upp. Setja verður hagsmuni sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna ofar pólitískri hugmyndafræði. Á morgun taka Bandaríkin stærsta skrefið í átt til “opinbers” heilbrigðiskerfis þegar “Affordable care act” gengur í garð. Þar með fá allir Bandaríkjamenn aðgang að sjúkratryggingum og heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og sjúkrasögu. Kerfið sem Bandaríkjamenn hafa valið er […]
Íslensku bankarnir eru ekki í stakk búnir til að bjarga heilbrigðiskerfinu þrátt fyrir að sýna “háar” hagnaðartölur á síðasta ári. Áætla má að íslenska ríkið hafi lagt að núvirði inn í viðskiptabankana þrjá um 200 ma kr. frá hruni, þar með er talinn kostnaður við SpKef. Miðað við 6% vexti er vaxtakostnaður ríkisins af þessari […]
Dómur Hæstaréttar að þrotabú eiga að gera upp í krónum á gengi Seðlabankans á ákveðnum degi, og megi greiða út í krónum getur orðið dýr fyrir næstu kynslóðir. Núverandi hrunkynslóð gæti grætt á þessum dómi með því að reyna að taka snúning á kröfuhöfum í einsskiptisuppgjöri á þrotabúum gömlu bankanna. Það verður þó ekki eins […]
Á meðan forsætisráðherra segir að Ísland hafi ekkert til ESB að sækja eru kaupmáttamiklir ESB borgarar ólmir að komast til Íslands og spranga um í fínustu og dýrustu íbúðum og sumarhúsum landsins með láglauna Íslendinga stjanandi í kringum sig. Þúsundir Íslendinga eru á harkhólum í eigin landi því húsaleiga er farin að taka mið af […]
Það er varla hægt að hugsa sér meiri mun en á Þjóðverjum og Íslendingum þegar kemur að leiðtogavali. Þjóðverjar velja hagsýna húsmóður sem kann að spara og fer vel með peninga. Á því heimili ríkir agi, raunsæi og vinnusemi. Íslendingar eru hins vegar ginkeyptir fyrir kjánum sem eru enn á mótþróaskeiðinu og hugsa um lítið […]
Nú segir stjórnarmaður hjá Hörpu að horfa verði á þann möguleika að loka Hörpu að hluta til eða öllu, fjárhagslega dæmið gangi hreinlega ekki upp. Öllum mátti vera ljóst að Harpa var byggð á bjartsýni eins og svo margt annað sem fór í gang fyrir hrun. Ekkert bólar á hótelinu sem átti að byggja við […]
Ólafur Ragnar er góður í að mála glansmyndir. Engin þörf er fyrir Ísland að ganga í ESB því Ísland er eins og Noregur og Grænland – býr yfir náttúruauðlindum – segir hann. Ólafur Ragnar gleymir að það er ekki það sama að vinna olíu í Norðursjóð eða úraníum í Grænlandi og skipta á rúmum eftir […]
Tölur sem morgunblaðið birtir um þróun ársverka hjá ríkinu frá 2007 eru um margt athyglisverðar. Þar kemur fram að fækkun hefur aðeins átt sér stað hjá æðstu stjórn ríkisins og tveimur ráðuneytum, velferðarráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu, í hinum ráðuneytunum hefur ársverkum fjölgað um rúmlega 500. Þetta segir okkur tvennt, í fyrsta lagi að mikið vantar upp […]