Þegar rætt er um húsnæðisvandann hljóta tölur um fjölda íbúða í byggingu að skipta miklu máli. Sveitarfélög fara með skipulagsvaldið, úthluta lóðum, afgreiða byggingarleyfi og skrá hjá sér byggingarstig framkvæmdanna. Því hefur ekki verið til á einum stað hversu margar íbúðir eru í byggingu á hverjum tíma. Stjórnvöld þ.m.t. Seðlabankinn, Hagstofan, fjármálaráðuneytið og stjórnmálamenn hafa […]
Við hjónin erum að byggja hús. Í þessu verkefni tókum við ákvörðun um að ég myndi sjá um samskipti við hönnuði, iðnaðarmenn og flesta birgja. Ég vissi fyrir að byggingarbransinn væri mjög karllægur. Í skýrslu sem ég lagði fram á Jafnréttisþingi kom fram að konur eru aðeins um 3% í starfsstétt iðnaðarmanna og sérhæfðs verkafólks […]
Fyrsta skóflustungan að fyrsta húsinu sem við hjónin byggjum sjálf var tekin í síðustu viku. Í dag erum við því stoltir eigendur að stórri holu, sem verður fyllt með frostfríu efni á næstu dögum. Gleðin var mikil enda langur aðdragandi að þessari fyrstu skóflustungu. Lóðin var keypt fyrir ári síðan. Ég hringdi í leigusalann minn […]
Auglýsingum Íslandsbanka (viðskiptabanki minn), um að með því að skipuleggja og gera áætlanir sé hægt að eignast húsnæði, hefur víða verið tekið illa. Þetta eru sömu viðbrögð og þegar ég skrifaði pistil fyrir nokkru um að lán væri ekki lukka. Á sama tíma segir umboðsmaður skuldara að umsóknum um greiðsluaðlögun frá ungu fólki á leigumarkaðnum […]
Árin 2018 / 2019 verða væntanlega árin sem byggingariðnaðurinn verður farinn að framleiða þann fjölda íbúða sem þarf til að mæta árlegri þörf markaðarins skv. áætlun Samtaka iðnaðarins. Árin 2018/2019 eru einnig árin sem Bjarg íbúðafélag, nýtt leigufélag í eigu ASÍ og BSRB, áætlar að fyrstu leigjendurnir muni flytja inn í íbúðir þeirra. Á sama tíma […]
Mikið er rætt um húsnæðisvandann þessa dagana og ekki hvað síst vandann á almenna leigumarkaðnum. Eitt af því sem talið er hafa mikil og neikvæð áhrif á hann er leiga íbúða til ferðamanna á vefsíðum á borð við Airbnb. Fleiri hundruð herbergja, íbúða og húsa má finna til útleigu á vefnum og líklega gera flestir […]
Heimilum landsins vegnar betur. Um mitt ár 2009 voru skuldir heimilanna 126% af landsframleiðslu, en eru í dag lægri en þær hafa verið í aldarfjórðung. Þetta er árangurinn af markvissri baráttu framsóknarmanna fyrir því að taka á skuldvanda heimilanna allt frá bankahruni. Hvort sem um var að ræða yfirdráttarlán, gengislán eða verðtryggð lán þurfti að […]
Fyrsti umsóknarfresturinn vegna Leiguheimilanna í nýju almennu íbúðakerfi rann út þann 15. október. Nýja kerfið fer vel á stað því fjórtán aðilar sóttu um stofnframlög úr ríkissjóði til byggingar eða kaupa á 571 íbúð sem ætlað er að slá á húsnæðisvanda tekjulægri einstaklinga og millitekjuhópa. Íbúðalánasjóður mun kanna hvar þörfin fyrir hagkvæmt leiguhúsnæði er mest […]
Íbúðalánasjóður óskar eftir þátttöku þinni á morgunverðarfundi um stofnframlög ríkisins og almennar íbúðir, sem fram fer í Háteig A á Grand hóteli, þriðjudaginn 27. september kl. 9:00-10:00. Morgunverður er borinn fram frá kl. 8:30. Markmið með veitingu stofnframlaganna er að bæta húsnæðisöryggis efnaminni fjölskyldna og einstaklinga með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi […]
Lög um almennar íbúðir voru samþykkt á vorþinginu. Með lögunum er komið á nýju félagslegu húsnæðiskerfi þar sem ríki og sveitarfélög munu veita allt að 30% stofnframlög til fjölgunar leiguíbúða á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda þ.m.t. námsmenn, ungt fólk, aldraðir, fólk í félagslegum og fjárhagslegum vanda og fatlað fólk […]