Færslur fyrir október, 2011

Fimmtudagur 27.10 2011 - 07:55

Björgum bönkunum…

Pétur Blöndal segir á Facebook síðu sinni um stækkun björgunarsjóðs ESB í 1.300 milljarða evra: „Vonandi skilur Merkel töluna? Íbúafjöldi Evrulands er 333 milljónir. Þetta eru 3.900 evrur á hvern íbúa eða 620 þkr. eða 2,4 mkr. á hverja 4 manna fjölskyldu. Á öllu svæðinu, ríkar fjölskyldur og fátækar.“ Um allan heim safnast fólk saman […]

Miðvikudagur 26.10 2011 - 12:59

Evrugrín hjá RÚV

Uppröðun frétta hjá RÚV sýnir stundum að þar hafa menn góða kímnigáfu. Í hádegisfréttunum var fyrst haft eftir Gylfa Arnbjörnssyni að hann vildi taka einhliða upp evruna.  Krónan væri búin að vera.  Evran væri framtíðin.  Vandi hennar væri aðeins tímabundinn og ESB yrði að styðja okkur í þessu framtaki. (… bara um leið og þeir […]

Laugardagur 22.10 2011 - 11:07

Bjartar vonir brostnar

Þann 6. október 2008 sat ég ásamt manni mínum í sófanum heima og hlustaði á ávarp Geirs H. Haarde. Eftir að orðunum Guð blessi Ísland sleppti sátum við og horfðum hvort á annað og veltum fyrir okkur hvað maðurinn átti eiginlega við. Hvað var að gerast? Öll vitum við hvað gerðist í framhaldinu. Hrunið var […]

Föstudagur 21.10 2011 - 10:30

Ekkert týnd

Hópur áhugamanna um bættar samgöngur auglýsir eftir þingmönnum Suðurkjördæmis í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að lítið sé vitað um ferðir þingmanna síðan í aðdraganda síðustu þingkosninga í Eyjum, og þeir sem getið gefið upplýsingar um ferðir þeirra eru beðnir um að hafa samband við íbúa Vestmannaeyja. Ég er eflaust týnd í mörgu en ekki […]

Fimmtudagur 20.10 2011 - 14:36

Lífeyrir eða lægri skuldir?

Í grein Ólafs Margeirssonar Saga sjóðsfélaga er borin saman ávöxtun á séreignasparnaði í Almenna lífeyrissjóðnum og láni hjá sama sjóði.  Niðurstaðan var sláandi, en á tímabilinu 2008 til 2011 var 10 sinnum minni nafnávöxtun á séreignasparnaðinum (1,2%) en á vaxtagreiðslur (12%) af láninu. Á grundvelli þessa ráðlagði hann fólki að taka frekar út séreignasparnaðinn og […]

Fimmtudagur 20.10 2011 - 08:13

Plan B á verðtrygginguna

Fyrir nokkrum áratugum varð til hin fullkomna íslenska aðferð til að steypa fólki í skuldir með hjálp verðbólgunnar. Verðtryggingu var komið á. Eftir sitja íslenskir skuldarar að drukkna í feni þess fyrirbæris. Fjölmargir íslenskir stjórnmálamenn hafa talað fyrir afnámi verðtryggingarinnar. Þrátt fyrir það gerist afskaplega lítið. Þegar meira að segja Jóhanna Sigurðardóttir fékk gullið tækifæri […]

Mánudagur 10.10 2011 - 10:51

Guðrún Ebba

Viðtalið við Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur snerti mig djúpt. Ég trúi henni. Það var tvennt sem gerði það sérstaklega að verkum.  Skýring hennar á því af hverju hún varði föður sinn þegar hann var sakaður um kynferðisbrot árið 1996 og lýsing hennar á því þegar faðir hennar braut aftur á henni á fullorðinsárum. Þarna var engin […]

Miðvikudagur 05.10 2011 - 12:53

Meiri tekjur, meiri afskriftir

Opni fundurinn í efnahags- og viðskiptanefnd var um margt fróðlegur. Eitt af því sem þar kom fram var ábending um athyglisverða útfærslu Landsbankans á 110% leiðinni. Allir bankarnir draga eignir frá niðurfærslu á einhvern hátt, en eru jafnframt með ákveðið fríeignamark á móti (líkt og frítekjumark skattkerfisins). Er þar í flestum tilfellum miðað við fasta […]

Miðvikudagur 05.10 2011 - 07:39

Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar

Efnahags- og viðskiptanefnd verður með opinn fund kl. 9.30 með efnahags- og viðskiptaráðherra um áherslumál ráðherrans í vetur. Vonandi verður þar fjörleg umræða um bankana, peningastefnu, gjaldeyrishöft, afskriftir lána og síðast en ekki síst verðtrygginguna! Verður í beinni útsendingu á vef Alþingis.

Þriðjudagur 04.10 2011 - 12:40

Birtum afskriftir

Mikil tortryggni ríkir í samfélaginu um starfsemi fjármálastofnana, afskriftir og niðurfærslur lána.  Öll þekkjum við hvernig sögur og orðrómar geta verið magnaðri en raunveruleikinn sjálfur. Því tel ég að birta eigi upplýsingar um hverjir hafa fengið afskriftir. Þess vegna hyggst ég endurflytja frumvarp mitt um birtingu afskrifta. Frumvarpið leggur til að skattkerfið verði nýtt til […]

Höfundur

Eygló Harðardóttir
og lífið eftir pólitík.
RSS straumur: RSS straumur