Færslur fyrir júní, 2013

Laugardagur 29.06 2013 - 11:16

Konur og peningar

Nýlega fjallaði ég um hvað kyn virðist hafa mikið með gildi okkar og verðmætamat að gera.  Þetta virðist endurspeglast m.a. í því hvaða nefndir Alþingis eru taldar eftirsóknaverðar af körlum og hverjar af konum og hversu mikið við borgum fyrir stjórnarsetur í velferðarmálum annars vegar og fjármálum hins vegar. Í samtali fyrir stuttu var mér […]

Þriðjudagur 18.06 2013 - 08:22

Innflytjendur gefa til samfélagsins

Ný skýrsla OECD sýnir að fá OECD ríki græða jafnmikið á innflytjendum og Ísland.  Þeir auka landsframleiðslu hér um tæpt eitt prósent. Ég tel þetta staðfesta enn á ný mikilvægi virkrar þátttöku innflytjenda í atvinnulífinu og samfélaginu í heild.  Að vinna er og verður forsenda vaxtar og velferðar í samfélaginu, óháð uppruna. Þessu til viðbótar […]

Mánudagur 17.06 2013 - 12:37

Dorrit og lögheimilið

Töluvert hefur verið fjallað um lögheimilisskráningu Dorritar Moussaieff, forsetafrúar okkar.  Það sem ég hef saknað úr þeirri umræðu er umfjöllun um lögin um lögheimili (nr. 21/1990).  Ættum við ekki að spyrja okkur að því hvort tími sé kominn til að endurskoða lögin út frá auknum fjölbreytileika fjölskyldna í nútíma samfélagi? Það skal viðurkennast að lög […]

Sunnudagur 09.06 2013 - 10:29

Létt á ríkissjóði

Við höfum lofað skattlækkunum og að skerðingar á kjörum aldraðra og öryrkja verði afturkallaðar. Fjármálaráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp um afnám hækkunar vsk á gistingu sem kostar 1,5 milljarða á ársgrundvelli og sjávarútvegsráðherra boðar breytingar á lögum um sérstakt veiðigjald.  Frumvarp mitt um afnám skerðinga til aldraðra og öryrkja er svo í kostnaðarmati hjá […]

Föstudagur 07.06 2013 - 19:35

Alþingi og kyn

Alþingi skipaði í nefndir.  Enn á ný endurspeglar skipanin þá kynjaskiptingu sem er til staðar í íslensku samfélagi. Karlar eru líklegri til að fara í nefndir sem hafa með fjár-, atvinnu- og utanríkismál á meðan konur sitja frekar í nefndum sem fara með velferðar-, mennta- og dómsmál. Ég hef áður bent á þetta og lýst yfir […]

Miðvikudagur 05.06 2013 - 18:23

Álit umboðsmanns skuldara komið

Ég óskaði eftir því að umboðsmaður skuldara myndi vinna álit um dóm Hæstaréttar um Landsbankann og Plastiðjuna.  Álitið liggur nú fyrir og er hægt að nálgast það á vef Velferðarráðuneytisins. Þar kemur fram að umboðsmaður skuldara telur ljóst af niðurstöðu dómsins að endurreikna beri meginþorra skammtímalána í samræmi við uppgjörsaðferð Hæstaréttar í máli nr. 464/2012. Í […]

Höfundur

Eygló Harðardóttir
og lífið eftir pólitík.
RSS straumur: RSS straumur