Er ástæða til að breyta, – enn á ný, fjármögnun stjórnmálaflokka á Íslandi? Fyrir 2006 voru engar sérstakar skorður við fjárframlögum til stjórnmálaflokka og þeir fjármagnaðir fyrst og fremst með framlögum lögaðila og einstaklinga. Árið 2006 voru sett lög um fjármál stjórnmálaflokka, nr. 162/2006. Þar var samþykkt að allir stjórnmálaflokkar sem fengju a.m.k. 1 mann […]
Eina bestu grein síðasta árs átti Karl Sigfússon undir fyrirsögninni Ég er kúgaður millistéttarauli. Í henni lýsir hann reynslu sinni af kúgun lánastofnana og stjórnvalda. Hvernig stjórnvöld hafa verðlaunað þá sem skuldsettu sig í topp á kostnað þeirra sem lögðu fram sparifé sitt við fasteignakaup og stilltu skuldsetningu í hóf. Hvernig þeim hefur verið refsað […]
Ég vil óska landsmönnum farsæls komandi árs og þakka fyrir innlitin og góðar athugasemdir við pistla mína. Hlakka til góðs bloggárs 2012 🙂
Engum dylst að samfélögin á Suðurnesjum eiga í vanda. Hafi einhver verið í vafa um það ætti nýleg skýrsla samstarfshóps á vegum Velferðarráðuneytisins að vera þeim hinum sama holl lesning. Helstu niðurstöður hennar voru sláandi. Hlutfall atvinnuleysis er langhæst á Suðurnesjum af landinu öllu. Hlutfall barna á Suðurnesjum sem eiga foreldra á atvinnuleysisskrá er tæp […]
Skiptir máli hver fjölmiðilinn er varðandi fjölda fréttaumfjöllunar um formenn stjórnmálaflokkanna? Er munur á umfjöllun Fréttablaðsins og Morgunblaðsins? Stundum finnst mér þessi blöð vera að fjalla hvort um sitt Ísland. Er RÚV að túlka hlutleysi sitt þannig að fjalla eigi sem mest um valdhafana? Á hverjum hefur DV.is mestan áhuga þegar kemur að umfjöllun […]
Samskipti fjölmiðla og stjórnmálamanna eru flókin. Einhvers konar ástar/haturs samband. Þeir þurfa á hvor öðrum að halda til að fylla hvíta dálka og auðar mínútur og ná til almennings. En svo er kvartað. Stjórnmálamenn undan því að fjölmiðlar sýni ekki „rétta“ mynd af stjórnmálunum. Fjölmiðlar telja sig vera að flytja fréttir, ekki sinna ímyndarsköpun fyrir […]
Í lok árs er við hæfi að líta yfir farinn veg. Hér má því finna þau 10 blogg sem flestir lásu á árinu. Nr. 10 Að velja sér lagaumhverfi Einn af þeim sem hafði samband við mig í gær lýsti því hvernig hann hefði greitt inn á bílinn sinn meirihluta kaupaverðsins, og gert bílasamning um […]
Lífeyrissjóðirnir bera sig aumlega þessa dagana yfir að hafa ekki fengið að kaupa hlut í Landsvirkjun, Landsneti eða Landsbankanum. Sérfræðingarnir Ásgeir Jónsson og Sigurður Jóhannesson lögðu nýlega til að Landsvirkjun og önnur orkufyrirtæki yrðu gerð að almenningshlutafélögum og hluti einkavæddur. Sambærilegt ferli var viðhaft á sínum tíma þegar bankarnir voru einkavæddir. Þessi umræða vekur upp […]
Forval Repúblikana í Bandaríkjunum tekur á sig ýmsar myndir eftir því sem örvænting frambjóðenda eykst. Rick Perry byrjaði forvalið með miklum lúðrablæstri og væntingum. Eftir frekar misjafna frammistöðu í kappræðum hefur stuðningur við hann nánast horfið. Lausnin? Að fullyrða nánast að Obama hafi stolið jólunum og noti samkynhneigða hermenn til þess að stoppa bandarísk börn […]
Í dag er alþjóð alnæmisdagurinn. Dagur til að íhuga og skoða hver staða málefna tengd HIV og alnæmi er. Á árinu sem er að líða hafa 17 einstaklingar greinst HIV-jákvæðir, þrír af þeim með alnæmi og lést einn þeirra á árinu. Þetta eru ívið færri en í fyrra, en þó sami fjöldi og greindist árið […]