Vorið 2001 var ég í Norman, Oklahoma og upplifði hvirfilbyl í návígi. Þegar viðvörunarflauturnar fóru í gang var ég í símanum að tala við eiginmanninn heima á Íslandi. Flauturnar heyrðust því skýrt og greinilega alla leið til Íslands. Ég kvaddi í flýti, rauk yfir til nágrannanna og spurði hvað ætti að gera. „Kveikja á sjónvarpinu, […]
„Framkvæmdastjórn Landssambands Framsóknarkvenna lýsir yfir algjörri vanþóknun á skopmyndateikningu þá er birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 16. apríl síðastliðinn þar sem Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknar var teiknuð sem vændiskona. Stjórnin telur teiknarann og Morgunblaðið hafa farið langt yfir velsæmismörk og vega með afar ósmekklegum hætti að þingkonunni. Stjórnin fer jafnframt fram á það við ritstjórn Morgunblaðsins […]
Í stað þess að sofa út var ég komin fram um 8 leytið og farin að lesa heimspressuna. Með morgunkaffinu velti ég upphátt fyrir mér efni næsta bloggpistils út frá lesefninu. Kjarasamningar í háalofti vegna kröfuhörku SA, lánshæfismat Írlands að falla, evran á brauðfótum… Eiginmaðurinn hætti að lesa pistlana á blogggáttinni, leit upp og horfði […]
Eitt helsta umfjöllunarefni fjölmiðla í gær var menntun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins. Því var haldið fram að hann hefði orðið fjórsaga um menntun sína og gert tortryggilegt að hann hefði ekki hlaupið til og gefið Fréttatímanum leyfi til að fá upplýsingar um námsferil hans við Oxford háskóla. Ég verð að segja að mér fannst þetta […]
Í gær hitti ég unga konu í Reykjanesbæ sem sagðist vera að flytja til Suður Jótlands í von um bjartari framtíð. Við áttum gott samtal um stöðuna á Íslandi og vonbrigðin leyndu sér ekki í rödd hennar þegar hún spurði mig í lok samtalsins: „Af hverju verða allir óheiðarlegir við að fara inn á Alþingi?“ […]
Agnes Bragadóttir ákvað að fjalla um Framsóknarflokkinn í Morgunblaðinu í gær og þá sérstaklega stöðu tveggja þingmanna okkar í framhaldi af flokksþinginu um síðustu helgi. Ég er mjög ósátt við efni greinarinnar og vangaveltur um að Siv Friðleifsdóttir og Guðmundur Steingrímsson séu á leið út úr Framsóknarflokknum. Að fólk vilji jafnvel sjá þau fara. Siv […]
Hér er ræða mín og rökstuðningur fyrir afstöðu til vantrausttillögu á ríkisstjórnina: Virðulegi forseti, við erum hér komin til að ræða tillögu um vantraust á ríkisstjórnina. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur nú setið í ýmsum myndum frá febrúar 2009. Á þeim tíma hafa henni verið mjög mislagðar hendur, burt séð frá því hverjir vermt hafa ráðherrastólana. […]
Framsóknarflokkurinn er í stjórnmálum til að koma hugsjónum sínum og málefnum í framkvæmd til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Við erum ekki í stjórnmálum til að vera pólitískt uppfyllingarefni fyrir aðra flokka. Í umræðum um ríkisstjórnarsamstarf höfum við lagt áherslu á að stjórnmálaflokkar landsins taki höndum saman og sameinist um ákveðin brýn viðfangsefni; sérstaklega að koma […]
Flokksþing Framsóknarmanna samþykkti nýja sjávarútvegsstefnu. Hún er svohljóðandi: Framsóknarflokkurinn leggur mikla áherslu á að ná sem víðtækustu sátt meðal þjóðarinnar um stjórnun fiskveiða. Til að nauðsynleg sátt og stöðugleiki náist þarf að móta skýra stefnu til lengri tíma, segir í ályktun Flokkþings Framsóknarflokksins um sjávarútvegsmál. Sú stefna byggir m.a á eftirfarandi; 1. Framsóknarflokkurinn hafnar fyrningarleiðinni […]
Ályktun sem Framsóknarmenn samþykktu er svohljóðandi: „Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Nú sem fyrr standa auðlindir þjóðarinnar undir velferð hennar og fullt og óskorað forræði á þeim er forsenda farsældar til framtíðar. Framsóknarflokkurinn telur að þjóðin skuli ætíð eiga beina aðkomu með þjóðaratkvæðagreiðslu að ákvörðunum um stórmál eins og aðild […]