Færslur fyrir flokkinn ‘heilbrigðismál’

Miðvikudagur 19.05 2010 - 22:40

Hvers eiga höfuðborgarbúar að gjalda?

Hingað til hefur maður staðið í þeirri trú að heilbrigðisyfirvöld teldu að heilsugæsluþjónustan væri nauðsynlegur hornsteinn heilbrigðisþjónustunnar, ekki bara úti á landi heldur einnig á höfuðborgarsvæðinu. Þannig er það að minnsta kosti í nágrannalöndunum. Heilbrigðisráðherra hefur einnig tjáð sig um málið að undanförnu og telur að tryggja þurfi mönnun í heilsugæsluþjónustunni í náinni framtíð, ekki […]

Þriðjudagur 18.05 2010 - 22:47

1+1=2

Mikill skjálfti virðist kominn í lyfjaframleiðendur erlendis ef marka má fréttir síðustu daga. Haft er eftir framkvæmdastjóra lyfjarisans Roche að íslenski örmarkaðurinn sé það lítill að hann skipti fyrirtækið ekki máli og það íhugi að hætta sölu lyfja til landsins vegna óstöðugs lyfjaverð á algengustu lyfjum. Eins er farið er að bera á því að lyfjafyrirtæki hætti […]

Föstudagur 14.05 2010 - 14:01

Tómu húsin

Það er ekki laust við að maður fyllist ákveðinni svartsýni og kvíða á þessum svarta föstudegi þegar yfir okkur rignir eldi og brennisteini og sem nú nálgast sjálft höfuðborgarsvæðið. Sumir hafa þurft að yfirgefa húsin sín á suðurlandi sl. vikur, ekki síst undir Eyjafjöllum. Mikill fjöldi húsa og íbúða standa hins vegar yfirgefin og tóm þessa daganna […]

Sunnudagur 09.05 2010 - 12:33

Kvikan og vísindin

Mikil öskumengun eins og íbúar í Vík í Mýrdal og öðrum stöðum undir Eyjafjallajökli og Vestur-Skaftafelssýslu mega nú þola getur breytt degi í nótt auk þess að geta valdið miklum búsifjum. Landlæknisembættið hefur gefið út ráðleggingar varðandi hugsanlegt heilsutjón sem kann að hljótast af öskumengun sem leggst ílla í öndunarfærin og augun. Auk þess getur […]

Mánudagur 03.05 2010 - 23:02

Afmæli og jarðarfarir

Það hefur lengi blundað í mér að koma orðum að því og lýsa hvernig manni líður í og eftir hafa verið viðstaddur jarðarför ættingja, vins eða samferðarmanns. Undanfarið hefur þessi tilfinning ,eða réttara sagt hughrif, sótt meira og meira á mig, einkum hvað samferðarmennina varðar. Það er ekki vegna þunglyndis heldur dapurleika þess hvernig komið er fyrir þjóðfélagi sem ég átt […]

Föstudagur 30.04 2010 - 16:46

Langri eyrnabólgusögu að verða lokið!

Loks grillir í bólusetningu gegn algengasta heilsumeini barna á Íslandi, miðeyrnabólgunni. En að mörgu þarf að hyggja þar sem aðeins er verið að tala um bólusetningu gegn alvarlegustu meinvöldunum og meðhöndlun miðeyrnabólgu þarf að vera miklu markvissari en hún hefur verið hingað til. Flestir foreldrar kannast við þann vanda sem fylgir því að eiga eyrnaveikt barn. Ætla má að um […]

Miðvikudagur 28.04 2010 - 16:34

Hjarðáhrif og hjarðónæmi

Ég hlustaði á athyglisvert viðtal við Dr. Huldu Þórisdóttur, félagssálfræðing í mannlegri hegðun í gær, í Kastljósþætti RÚV. Þar var fjallað um hugsanlegar skýringar á því sem gerðist fyrir hrun og sem reyndar var komið inn á í siðferðiskafla Rannsóknarskýrslu Alþingis. Hjarðhegðun var mikil hjá einsleitinni og fámennri þjóð sem auk þess var stoltust allra Evrópuþjóða. Það var […]

Mánudagur 26.04 2010 - 22:37

Að byrja á vitlausum enda

Sum mál er erfiðara að tala um en önnur.  Kynferðisglæpir eru því miður allt of algengir í okkar þjóðfélagi, ekki síst kynferðisofbeldi gagnvart börnum. Tölur á Íslandi ná aðeins til um 10-20% allra barna og þá frekar stúlkna en drengja. Ofbeldið er greinilega svínslegt í allri sinni ómynd og nær ógerningur er að átta sig á […]

Fimmtudagur 22.04 2010 - 14:36

Skín við sólu…

Það veit á gott á sumar þegar það frýs saman við vetur eins og gerðist í nótt. Náttúran hefur ekki brugðist okkur í vetur og sýnt allar sínar hliðar. Við fáum allan skalann og þurfum ekki að kvarta, en sem komið er a.m.k.. E.t.v. er það þess vegna sem við leyfum okkur svo margt, eins […]

Þriðjudagur 20.04 2010 - 13:35

Áhyggjur formanns Læknafélags Íslands

Verulega ber að hafa áhyggjur af atgerfisflótta  íslenskra lækna ef marka má áhuga þeirra á að vinna erlendis í fríum, til lengri eða skemmri tíma. Þetta kom meðal annars fram í hádegisðviðtali við Birnu Jónsdóttur, formanns Læknafélag Íslands í fréttatíma RÚV í gær. Uppsöfnuð frí, m.a. vegna mikillar vinnu á vöktum eru ætluð til að taka sér […]

Höfundur

Vilhjálmur Ari Arason
Höfundur er heimilislæknir (1991) en starfar nú á Slysa- og bráðamóttöku LSH. Doktorspróf frá Læknadeild HÍ 2006 og klínískur dósent við Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins frá 2009 - 2015. Sérstaklega annt um gott og réttlátt heilbrigðiskerfi og skynsamlega notkun lyfja. Hef átt sæti í Sóttvarnaráði sem fulltrúi LÍ, skipaður af heilbrigðisráðherra árið 2013 og 2017.
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn