Færslur fyrir október, 2013

Þriðjudagur 15.10 2013 - 07:27

Írland útskrifast

Forsætisráðherra Íra hefur tilkynnt að í desember muni alþjóðleg neyðaraðstoð við Íra hætta og Írland standa á eigin fótum á hinum alþjóðlega fjármálamarkaði. Írar telja að þeir muni ekki þurfa á sérstakri lánalínu að halda frá AGS þegar þeir útskrifast.    Þeir benda á að NTMA, þ.e. írska lánasýslan, hafi um 25 ma evrur í reiðufé. […]

Mánudagur 14.10 2013 - 07:33

Vextir og höft

Mikið er talað um að létta þurfi gjaldeyrishöftum en margt bendir til, því miður, að slík aðgerð hafi fjarlægst landið á síðustu misserum. Einn helsti vandinn er aukin áhætta og óvissa í íslensku efnahagslífi.  Innan hafta er áhættumat farið að brenglast sem getur hafi slæmar afleiðingar fyrir fjárfestingarákvarðanir og stöðu bankanna til framtíðar. Skuldabréfamarkaðarnir sýna […]

Sunnudagur 13.10 2013 - 08:40

„Chillax“

Í dag er dagur enskunnar – “lingua franca” okkar tíma.  Á þessu degi 1362 var enska notuð í fyrsta sinn við opnun breska þingsins, en áður höfðu þingstörf farið fram á frönsku. Tvisvar sinnum fleiri tala ensku sem sitt annað mál en hafa hana sem móðurmál. Fyrir litlar þjóðir sem búa við tungumál sem fáir […]

Laugardagur 12.10 2013 - 17:20

Klúðruðu menn 400 ma kr. svigrúmi?

Það virðist vera ákveðinn ruglingur í umræðunni um hvað gerðist í hruninu um eignarhald á nýju og gömlu bönkunum og hver seldi hverjum hvað? Íslenska leiðin Þegar bankarnir féllu töpuðu hluthafar öllu og eignir sem bankarnir áttu fóru til kröfuhafa í samræmi við að þeir voru einkafyrirtæki.  Þannig eignuðust kröfuhafar lán og aðrar eignir föllnu […]

Föstudagur 11.10 2013 - 12:50

Versnandi kjör

Seðlabankinn sagði nýlega að viðskiptakjör á erlendum fjármálamörkuðum væru þau verstu í áratugi. Þetta sést einna best ef gögn frá Bloomberg, um íslenskt ríkisskuldabréf í dollurum sem er á gjalddaga 2022, eru skoðuð. Í maí 2013 var ávöxtunarkrafa á þetta bréf 3.81% en var komin upp í 5.71% í september.  Miðað við bandarísk skudabréf af […]

Fimmtudagur 10.10 2013 - 18:27

Krónan + hvíl í friði

Íslendingar hafa tvo kosti: krónuna eða evruna. Krónunni fylgir krónískur gjaldeyrisskortur, höft, gengisfellingar og lág laun.  Hver skýrslan á fætur annarri lítur dagsins ljós, þar sem erlend fjármálastaða landsins gerir lítið annað en að versna.  Ísland er nú að nálgast þá stöðu sem Glitnir var í fyrir hrun að eiga ekki fyrir erlendum skuldbindingum.  Við […]

Sunnudagur 06.10 2013 - 10:27

5 ár frá hruni

Rétt eftir hrunið kom Svíi að máli við mig og sagði, „það mun taka Íslendinga 25 ár að vinna sig upp úr þessu hruni“. Því er viðeigandi að minnast orða Churchill´s þegar hann sagði í frægri ræðu: Now this is not the end. It is not even the beginning of the end. But it is, […]

Laugardagur 05.10 2013 - 17:25

Á fjárlagamó

Forsætisráðherra segir að matarskattur sjúklinga muni verða felldur niður finnist 200 m  kr. Sem sagt fjárlagagerð er eins og að vera á berjamó. Þetta er athyglsiverð nálgun hjá ráðherra. Hvernig væri að lækka fjárframlög til landbúnaðarins úr 300m í 100m kr. –  þar með er málið leyst, ekki satt?

Föstudagur 04.10 2013 - 22:14

Amerískur spítalakostnaður?

Fréttir um að krabbameinssjúklingur hafi þurft að borga tæplega 850,000 kr á einu ári í meðferð eða um $7,000 afhjúpar hið íslenska heilbrigðiskerfi sem nú siglir hraðbyr vestur í átt.  Ég þori að fullyrða að aðeins í tveimur OECD löndum þurfa sjúklingar að borga slíka upphæð úr eigin vasa, Íslandi og Bandaríkjunum. En ekki mikið […]

Fimmtudagur 03.10 2013 - 22:25

Vængstýfður Seðlabanki

Sú ákvörðun fjámálaráðuneytisins í fjárlagafrumvarpinu að leggja til að fjármögnunarskuldabréfi Seðlabankans verði breytt í bréf sem beri núll vexti eru bein afskipti af efnahagsreikningi Seðlabankans og dregur úr sjálfstæði hans. Það er óheppilegt að fjármálaráðuneytið sé með þessum hætti að “skipta” sér af Seðlabankanum.  Þá skapar þetta ákveðna óvissu um hvar vaxtaákvörðunarvaldið liggi og getur […]

Höfundur

Andri Geir Arinbjarnarson
Höfundur er verkfræðingur.
RSS straumur: RSS straumur