Íslenska útrásin náði til Kína svo það er ekki óeðlilegt að kínverska útrásin nái til Íslands. Það ætti ekki að koma neinum á óvart. Kínverska útrásin er hins vegar engin kjánaútrás eins og sú íslenska var. Lykilinn að kínverskri útrás er gjaldeyrir. Kínverjar eiga stærsta gjaldeyrisforða í heimi og hann er hornsteinn í þeirra útrás. […]
Vandamál heilbrigðiskerfisins eru vel þekkt en fátt heyrist um raunhæfar lausnir. Í raun er tabú að viðra róttækar lausnir – nema þá helst hvort eða hvenær eigi að byrja að steypa nýjan spítala. Enginn stjórnmálaflokkur hefur heistæða stefnu í heibrigðismálum sem byggir á mannauðskerfi sem er sjálbært og gefur íslenskum sjúklingum val. Á meðan íslenska […]
Kanada er ólíkt betri fyrirmynd fyrir Ísland en Argentína. Það var því ánægjulegt að lesa að sterkt kanadískt fyrirtæki skuli vera að fjárfesta beint í fyrsta flokks íslensku fyrirtæki. Þó fjárfestingin hafi ekki verið stór, aðeins $5m, er mjór mikils vísir. Það eru einmitt svona beinar erlendar fjárfestingar sem Íslendingar þurfa. Með þeim kemur erlend […]
Það gustar af Eygló Harðardóttur í nýjum pistli hennar um skuldaleiðréttingu Framsóknar. Hér virðast Íslendingar hafa eignast sína eigin Cristina Kirchner. Eygló segir: Stjórnvöld telja rétt að þeir sem orsökuðu hækkun verðtryggðra skulda greiði fyrir leiðréttinguna. Þetta er athyglisverð nálgun sem virðist snúa lögmálum hins kapítalíska fjármálakefis á höfuðið um hlutverkaskiptingu á milli hluthafa og […]
Sjálfstætt mat S&P að það séu þriðjungslíkur að Ísland lendi í ruslaflokki á næstu 2 árum mun gera erlenda fjármögnun erfiðari og dýrari fyrir alla á Íslandi. Flestir erlendir viðskiptabankar lána aðeins aðilum sem eru með lánshæfiseinkunn í fjárfestingaflokki og fáir bankamenn munu vilja taka þá áhættu að lána landi sem hefur færst yst á […]
Nær öll lönd sem lenda í lækkuðu lánshæfismati hjá S&P eða Moody´s mótmæla slíkri ákvörðun. Þegar S&P lækkaði lánshæfismat Bandaríkjanna mótmæltu stjórnvöld þar, en án árangurs. Matsfyrirtækin gerðu stór mistök fyrir hrun sem þau ætla greinilega ekki að endurtaka. Þau virðast hafa lært af reynslunni. Í dag leggja þau áherslu á að veita fjárfestum tímanlegar […]
Enn ein skammstöfunarstofnunin sendir frá sér neikvætt álit um skuldaleiðréttingu Framsóknar. Svo virðist sem enginn nema framsóknarmenn skilji þessa skuldaleiðréttingarleið. Er ekki kominn tími til að framsóknarmenn leysi frá skjóðunni og útskýri hvernig þetta á allt að reddast? Matsákvörðun S&P er áfall fyrir ríkisstjórnina, horfur fara úr stöðugum í neikvæðar og hætta er á að […]
Aðeins fáeinum dögum eftir að starfsmenn ríkisbankans fá hlutabréf í bankanum er byrjað að agitera fyrir einkavæðingu bankans. Nú þegar starfsmenn ríkisbankans eru orðnir hluthafar verða þeir að gæta sín þegar þeir fjalla um hluthafamál opinberlega. Eru þeir að tala sem starfsmenn eða hluthafar? Þetta þarf að koma skýrt fram. Þá verða starfsmenn að gæta […]
Það er ekki traustvekjandi þegar formaður fjárlaganefndar kallar hlutabréfaútgáfu til starfsmanna ríkisbankans “siðlausa”. Eitthvað virðast samskiptaleiðir á milli yfirstjórnar bankans og endanlegra eigenda vera stirðar – svona “blautum tuskum” á ekki að kasta opinberlega. Þá munu margir fjárfestar hugsa sig tvisvar um áður en þeir ákveða að kaupa hlut í svona stofnun. Það er áhættusamt […]
Kjararáð er klassísk séríslensk lausn sem á endanum verður að vandamáli. Tilraunir stjórnmálamanna til að handstýra launum og kjaraþróun eru dæmdar til að renna út í sandinn. Síðasta ríkisstjórn setti upp reglur um hvernig ætti að takmarka launagreiðslur án þess að hugsa málið til enda. Hvernig og við hvaða aðstæður væri hægt að lyfta ákvæðum […]