Alþingi skipaði upp á nýtt í fastanefndir og alþjóðanefndir Alþingis á laugardaginn. Eftir að forseti hafði lesið upp nefndarmenn í einstökum nefndum lá fyrir að Alþing hefur enn á ný náð að skipta kynjum bróðurlega á milli nefnda.
Þær nefndir sem fara með fjár-, atvinnu- og utanríkismál eru skipaðar körlum að mestu, á meðan konur sitja frekar í nefndum sem fara með velferðar-, mennta- og dómsmál.
Ég hafði áhyggjur af því að þetta gæti orðið niðurstaðan þegar lá fyrir að skipa ætti á ný í nefndir þingsins og lagði áherslu á að formenn þingflokka yrðu að tala saman um skipan í nefndir m.a. út frá kynjasjónarmiðum.
Ástæðan var að ég tel best að sjónarmið beggja kynja fái að heyrast jafnt, -líka þegar kemur að fjár-, atvinnu- og utanríkismálum. Þess vegna hef ég t.d. stutt kynjaákvæði í lögum Framsóknarflokksins og félagarétti.
Því miður virðist það ekki hafa verið forgangsatriði.
Af hverju ætlar þetta að reynast okkur svona erfitt?
PS. Vinsamlegast ekki segja að skipunin byggist á hæfni eða að konur gefi ekki kost á sér. Hvorugt á við í þessu tilviki.
Hefur hlutfall kynjanna á Alþingi engin áhrif á hlutfall kynja í hinar ýmsu nefndir? -Er kynjaskipting þessa þings jöfn?
Kveðja,
-þ
Mikið mundi mitt gamla Framsóknarhjarta hrífast segði síðuhöfundur sig frá flokknum eins og ég hef gert.
Það er leitt að missa verðugan þingmann úr hinni mikilvægu viðskiptanefnd. Það er full mikil bankalykt af mörgum sem nú skipa nefndina, en aðrir eiga kannski á hættu að verða úti á þekju í störfum nefndarinnar.
Eygló, er það rétt skilið að þú takir í staðinn sæti í allsherjar- og menntamálanefnd? Ef svo er þá treysti ég því að þar látirðu til þín taka í neytendamálum ekki síður en öðru. Ég minni þig á að bróðurparturinn af skuldum almennings falla undir lög um neytendalán, sem auk viðskiptamála gerir þau líka að neytendamálum sem heyra þannig undir allsherjarnefnd, innanríkisráðuneytið og neytendastofu.
Þetta er auðvitað einn stór brandari Eygló. En fjárlaganefnd þarf auðvitað á sínum strákum úr héraði eins og alltaf. Breytir engu þó flokkar sem kenna sig við „kvenfrelsi“ og jöfnuð stjórni. Ekki það þinn flokkur og Te-hreyfingin (flokkurinn sem farinn er að ákalla drottinn sínkt og heilagt) eru ekki að fara að breyta þessu – far from it. Ég botna ekkert í ykkur Siv að hanga með þessu „gúgú“ liði…
Það er sorglegt að horfa upp á þessa nefndarskipun hjá Alþingi. Auðvita mun nefndarskipun að einhverju leyti endurspegla kynjahlutföllin á þingi en að viðskipta- og efnahagsnefnd sé EINGÖNGU skipuð körlum, utanríkisnefnd með 8 karla og 1 konu og velferðarnefnd með 8 konur og 1 karl, er náttúrulega út í hött.
Á sama tíma skylda sveitarstjórnarlög sveitarstjórnir til að tryggja jafnt hlutfall kynja þegar skipað er í nefndir (reyndar á það ekki við um nefndir þar sem aðeins bæjarfulltrúar eru kjörgengir). Það eru 63 þingmenn á þingi og það hlýtur að vera hægt að tryggja það að í 9 manna nefnd sé a.m.k. 2-3 af hvoru kyni.