Föstudagur 28.09.2012 - 14:08 - 16 ummæli

Beint lýðræði í eldhúsinu

Vikan er búin að vera viðburðarrík og fjölskyldan hefur eilitið setið á hakanum.  Því er ætlunin að bretta upp ermar og elda eitthvað ofsalega gott fyrir kallinn og dæturnar á morgun.

Það verður þó að vera smá pólitík í þessu og því hef ég ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um hvað á að vera í matinn.

Valið stendur á milli:

Heimatilbúins cannelloni með spínati og ricotta osti (heimagerðum, að sjálfsögðu) og ítalskri kjötsósu

 

eða

hægeldaðir lambaskankar að hætti Lorraine Pascale með chorizo pylsu og hvítlauki og silkimjúkri kartöflumúsar (tvísíuð, til að tryggja enga kekki).

Kosningin stendur til 9.00 í fyrramálið (…svo ég komist í búð) með því að setja inn ummæli hér á blogginu eða á Facebook.

Sönnunargögnin verða birt hér á vefnum og á Facebook síðunni ásamt umsögnum á sunnudaginn 🙂

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (16)

  • Einstaklega girnilegt hvoru tveggja þótt lambaskankarnir kveiki betur i bragðlaukunum mínum akkúrat núna.
    Lambaskankar #1

  • Heil og sæl!
    Nú kemur ekki fram hvejir eru atkvæðisbærir, hvort það er bara fjölskyldan eða allir lesendur, en ef ég hef atkvæðisrétt vel ég lambaskankann.
    kv.Jónatan 😉

  • Eygló Harðardóttir

    Allir eru atkvæðisbærir sem eru með tölvu og netaðgang 🙂

  • Hvað eru „keggir“?

  • Eygló Harðardóttir

    Leiðrétt, takk 🙂

  • Bjarnveig

    Ég vel lambaskankana, þó bæði sé girnilegt.

  • Hva, kunna karríerkerlingar eitthvað að elda?

  • Eygló Harðardóttir

    Lágmark að kjósa ef menn ætla á annað borð að setja inn athugasemd 🙂

  • Hlynur Þór Magnússon

    Mæli með pastarúllunni – og þá einna helst af sögulegum ástæðum! Þegar ég var ungur í skóla á Ítalíu borðaði ég mjög oft pasta með sugo di carne – bæði ódýrt og mjög gott fyrir minn smekk. Man hins vegar ekki til þess að hafa smakkað ricotta-ost.

  • Er ekki boðið upp á smakk til þess að maður geti tekið rækilega upplýsta ákvörðun?

    Verði ykkur að góðu og góða helgi 🙂

    P.s. er þetta svo ekki fín æfing fyrir beint lýðræði í stjórnmálaflokkunum þar sem allir félagsmenn geta tekið þátt í að velja sér forystu og taka afstöðu til málefna! Nota mætti t.d. vef ríkisskattstjóra sem verkfæri til þess að taka afstöðu til hinna ýmsu málefna innan flokkanna og annarra málefna sem leitað er til alls almennings með.

    Ef viljinn er fyrir hendi er allt hægt!

  • Heyrðu já, krafist var atkvæðis…

    Miðað við þær upplýsingar sem ég hef á þessari stundu þá myndi ég greiða lambaskönkunum atkvæði mitt sem fyrsta val en cannelloni réttinum atkvæði til vara 🙂

  • Margrét Tryggvadóttir

    Lambaskankar en ég hefði viljað smakk með Kristbjörgu til að geta tekið upplýsta ákvörðun.

  • Veldu vefjurnar. Pólitík í vafningsanda er einkennismerki Framsóknarflokksins.

  • Eygló Harðardóttir

    Eftir mjög spennandi kosningar þá er niðurstaðan:

    Cannelloni = 7 atkvæði (mjög vinsælt á Facebook)
    Lambaskankar = 8 atkvæði

    Þannig að lambaskankar eru það.

    Ég þakka öllum fyrir þátttökuna og svo verðum við að sjá hvernig tekst til með að efna kosningaloforðið 😉

  • Allir sem kusu með lambaskönkunum geta verið ánægðir, þeir áttu úrslitaatkvæðið!

    Eins og við vitum skiptir máli að taka þátt því hvert einasta atkvæði skiptir máli 🙂

  • Ingi Gunnar Jóhannsson

    Framsóknar eftir fyllerí
    fóru á hausinn bankar.
    Ráðið sem Eygló á við því
    eru lambaskankar.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og átta? Svar:

Höfundur

Eygló Harðardóttir
og lífið eftir pólitík.
RSS straumur: RSS straumur