Leiðtogar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins eru ásamt Morgunblaðinu að gera mál úr svokölluðu fyrirsvari í Icesave-málinu. En þetta fyrirsvar er alveg skýrt: Utanríkisráðherra sér um samskipti við önnur ríki, gerir samninga og tekur til varna í málarekstri fyrir hönd Lýðveldisins Íslands. Fyrir kemur að aðrir ráðherrar vinna mikilvæg utanríkisverk á sínu fagsviði, t.d. sjávarútvegsráðherra í hvalamálum […]
Fyrirspurnir alþingismanna eru sumar einsog skot að marki í fótboltanum, sumar langt framhjá, aðrar lenda í vörninni, enn aðrar grípur ráðherrann fimlega á lofti — en stundum fer boltinn líka beint í mark. Það er sjaldgæft að ná með fyrirspurn þeim árangri að ráðherra segist ætla að beyta kerfinu, en þetta gerðist samt í gær […]
Á fundi í utanríkismálanefnd í morgun var sagt frá því að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ætluðu ekki að standa með öðrum nefndarmönnum að jákvæðu áliti um viðurkenningu Palestínu. Von mun vera á séráliti – og er því hér með spáð að þar telji þau Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir að enn sé ekki rétti tíminn til […]
Þyngra er en tárum taki að horfa upp á aðförina að Berlusconi á Ítalíu. Bíræfnir stjórnmálamenn – aðalforsprakkinn á vegum Alþjóðabankans (og heitir Mont) – hafa nú hrakið Berlusconi frá völdum og ómerkilegir svokallaðir rannsóknardómararar reyna síðan sem þeir geta að klekkja á honum fyrir upplognar sakir. Hinn farsæli leiðtogi til margra ára stendur hinsvegar […]
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkurinn á alþingi hefur gripið til óvenjulegs ráðs: Að eyðileggja atkvæðagreiðslur með því að mæta ekki í þær. Til að atkvæðisgreiðsla sé gild þarf meirihluti þingmanna að taka þátt í henni. Þetta er sjálfsögð lýðræðisregla á þessum vettvangi og útheimtir þá auðvitað að atkvæðagreiðslum sé hagað þannig að sem flestir þingmenn eigi sem auðveldast með að […]
Fátt lýsir betur ótta og eymd Sjálfstæðisflokksins en nýjasta nýtt úr átökunum um formennskuna: Bjarni og Hanna Birna neita í kór að svara ellefu spurningum Fréttablaðsins um afstöðu til brýnna úrlausnarmála í samfélaginu – um gjaldmiðilinn, fiskveiðistjórnina, velferðarniðurskurð, bankafyrirtækin, skuldavanda heimilanna, stjórnarskrárbreytingarnar og svo framvegis og svo framvegis – að ógleymdri lykilspurningu um ábyrgð Flokksins […]
Ef ég væri á Facebook — þá mundi ég núna eftir erfiðan dag á þinginu setja í statusinn þessa tilvitnun sem ég fann um daginn á netinu hjá Kjartani Ólafssyni, háskólakennara á Akureyri: Saga íslenskrar byggðastefnu er allt fram á síðustu ár saga markvissrar vannýtingar á vísindalegri þekkingu um eðli nútímasamfélags. En sannir karlmenn eru ekki […]
Opinn fundur um Vaðlaheiðargöng í morgun í umhverfis- og samgöngunefnd: Niðurstaðan að einhver óháður fari yfir útreikninga ríkiseinkafyrirtækins Vaðlaheiðarganga h.f., vonandi að minnsta kosti Ríkisendurskoðun. Þetta var fróðlegur fundur – þótt áætlanir gangamanna, sem fjármálaráðuneytið blessar, stangist svo ævintýralega á við mat FÍB að maður nær ekki botni. Þarna var meðal annars fulltrúi MP-banka sem […]
Formaður Vinstrigrænna og þingmenn liggja undir ágjöf um að hafa brugðist kjósendum sínum og stefnuskrá vegna Evrópusambandsumsóknarinnar. Og auðvitað er það skrýtin staða fyrir kjósendur VG og flokksmenn að ríkisstjórn á þeirra vegum standi fyrir þessari umsókn, ekki síst þegar á þeim dynja dagleg svikabrigsl – frá Framsóknar- og Sjálfstæðismönnum. Nú er ég enginn ofuraðdáandi […]
Hvalaskoðunarmenn hafa nú lagt til að Faxaflói verði friðaður fyrir hvalveiðum. Menn geta deilt um það alveg þangað til við göngum í Evrópusambandið hvort þjóð sem fær peninga af að sýna hvali á líka að tapa peningum af að drepa þá. (Því hvar er gróði Kristjáns Loftssonar? Og hvar er hagur landsbyggðarinnar af hrefnuveiðunum frá […]