Verðtryggingarnefnd skilar skýrslu sinni til efnahags- og viðskiptaráðherra í dag kl. 9.00. Hlutverk hennar var að kanna forsendur verðtryggingar á Íslandi og meta kosti og galla þess að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi án þess að fjármálastöðugleika væri ógnað. Í nefndinni sátu fulltrúar allra þingflokka, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis, auk áheyrnarfulltrúa frá […]
Menn hafa töluvert rætt beljur síðustu daga. Ég hef verið kölluð belja af misjafnlega skynsömum mönnum og hef aldrei skilið af hverju þetta orð er skammaryrði. Kýr eru yndislegar skepnur, skapgóðar og umburðarlyndar gagnvart mannskepnunni. Aðeins einu sinni óskaði ég kúm alls ills, og þá voru það léttlyndar kvígur. Ég og vinnukonan sáum um mjaltirnar […]
Viku 1 er lokið samkvæmt plani og ég hljóp/gekk samtals 16 km. Æfingarplanið var sunnudagur 4, 8 km á 40 mín (hljóp og gekk), mánudagur 40 mín á skíðavél, þriðjudagur 4,8 km á 36 mín (þurfti að ganga e 20 mín aðeins) og miðvikudagur 40 mín á skíðavél og æfingar fyrir efri hluta líkamans. Fimmtudagurinn var […]
Ég hef ákveðið að hlaupa 21,1 km í Reykjavíkurmaraþoninu þann 20. ágúst nk. Þetta var ekki auðveld ákvörðun þar sem ég er ekki neinn íþróttagarpur, – þoldi ekki leikfimi í grunnskóla og fór ekki að hreyfa mig fyrr en ég var komin á þrítugsaldurinn og þá með hléum. En stundum verður maður að leggja eitthvað á […]
Í fyrrakvöldi birti RÚV niðurstöður Capacent könnunar um fylgi flokka. Aðalfréttin varað Framsóknarflokkurinn mælist með 16% fylgi, að Vinstri Grænir eru með 15% og fylgi stjórnarflokkanna heldur áfram að minnka. Því var hálf fyndið að fylgjast með fjölmiðlum fela þessa frétt. RÚV birti niðurstöðurnar í seinni fréttum (á vefnum 22.26), ég hef aldrei séð jafn […]
Íslenska orðið heimskur á uppruna sinn í heimaalinn, sbr. heimskt er heimaalið barn. Því hefur það lengi verið talið vera kostur að ferðast út fyrir landsteinana, kynnast nýjum menningarheimum og mennta sig erlendis. Æ meiri áhersla varð þó i íslenska menntakerfinu á að bjóða upp á sem fjölbreyttast nám hér heima. Nýjar námsbrautir spruttu upp […]
Í nótt var tilkynnt um dráp á Osama bin Laden og fögnuður Bandaríkjamanna virðist vera mikill. Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn? Ég vil frekar huga að fórnarlömbum þessara átaka, – í Bandaríkjunum, Afghanistan og Írak. Og hvernig eitt dráp réttlætir ekki annað.
Ég var hugsi eftir leiðarann Áróðurstækni Davíðs. Þar skrifar Jón Trausti Reynisson: „Vandi íslenskrar umræðuhefðar verður varla betur greindur en með orðum Davíðs Oddssonar um sjálfan sig í bókinni Í hlutverki leiðtogans, eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur. „Ég gerði öll mál tortryggileg og fylgdi þeirri reglu veiðimannsins að maður má ekki einungis kasta flugu sem manni […]