Nefndin sem einhverjum snillingnum datt í hug að kenna við sættir hefur nú skilað af sér og segist hafa fundið upp tvær leiðir til að framkalla réttlæti og skynsemi í sjávarútvegi. LÍÚ, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur fara fyrir annarri leiðinni, sem hefur fengið hið skáldlega heiti samningaleiðin, en hin er einsog munaðarlaus í nefndinni enda heitir […]
Nú hef ég tekið mér viðurnefnið Velheyrandi. Heyri í Lindu gegnum þrennar dyr. Heyri í símanum inní stofu. Heyri allt sem allir segja á nefndafundunum. Heyri suð og hvísl og vindinn hvína í lauftrjám hinumegin götu. Heyri skýrt hvellar athugasemdir og lágmæltar spurningar frá stuðningssyninum sem varð sex ára síðustu helgi. Heyri dyn kattarins og […]
Þorsteinn Pálsson segir í Fréttablaðinu í dag að alþingi eigi að afgreiða sem fyrst þingsályktunartillögu Heimssýnarbandalagsins um að hætta viðræðum við Evrópusambandið. Sammála. Helst í lok septemberþingsins. Mætti lengja það um nokkra daga til að afgreiðslan tefji ekki önnur mál. Í fyrsta lagi vegna þess að alþingi á að afgeiða sem allra flest mál sem […]
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur fundið út að samningaviðræðurnar við Evrópusambandið séu allsekki samningaviðræður heldur sé Evrópusambandið undir yfirskini samninga að véla Íslendinga til hættulegra breytinga á stjórnkerfinu – sem einmitt hefur reynst okkur svo vel – undir yfirskini samninga. Ætlunin sé að fimmta herdeildin veiki svo varnirnar innan borgarmúra stjórnarráðsins að ekki verði nein […]
Það verður alltaf erfiðara og erfiðara að átta sig á því afhverju útvarps- og sjónvarpsstöðin RÚV hefur heitið Ríkisútvarp – þar virðist ekki rekin nein sú stefna sem eigi skylt við almannaútvarpsstöð einsog þær eru skilgreindar í grannlöndunum, og hefðir hins gamla þjóðarútvarps áttatíu ár aftur í tímann eru einsog hafðar upp á punt á […]
Málið kringum Gylfa Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra hefur nokkrar hliðar, og sumar þeirra eru ekki upplýstar að fullu þegar þetta er skrifað – þá einkum hver vissi hvað og hvernig í ráðuneytinu. Því er svo haldið fram að Gylfi hafi ekki sagt satt við þingið um gengistryggðu lánin. Virtur stjórnmálafræðingur telur að hann hafi „afvegaleitt“ þingið. Nokkrir háttvirtir […]
Nú er ljóst að Einar K. Guðfinnsson og aðrar þjóðhetjur sem hneykslast á erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi – vissu fyrir allt um þessa fárfestingu og þar með að hún má samkvæmt lögum nema allt að 49,9%. Að minnsta kosti að áliti sjávarútvegsráðherra Sjálfstæðisflokksins 1999–2005. Upphrópanirnar núna eru pólitískur blindingsleikur. Þeim er ætlað að þeyta upp […]
Einar K. Guðfinnsson sagðist í gær vera steinhissa á umræðunni um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi. Hann væri algerlega á móti erlendri fjárfestingu í sjávarútvegi. Hefur ekki Einar K. setið á þingi á nokkur ár? Og meira að segja verið sjávarútvegsráðherra? Góður félagi sendi mér þessa tilvitnun í flokksbróður Einars og fyrirrennara – umræða á alþingi október árið 2000, […]
Það þarf að vernda sjávarútveginn fyrir erlendu fjármagni, var haft eftir Jóni Bjarnasyni í kvöldfréttum Sjónvarps. Kannski finnst Jóni að það ætti að vernda atvinnuvegina frá fjármagni yfirhöfuð? En það er rétt – það þarf sannarlega að vernda sjávarútveginn fyrir erlendu fjármagni – sérstaklega erlendu lánsfjármagni. Skuldar hann ekki hérumbil 600 milljarða?
Ég heyri í fjölmiðlum að nokkrir þingmenn ætla að hætta að styðja ríkisstjórnina ef Magma-málið leysist ekki. Svo stórum orðum þyrfti að vísu að fylgja nánari leiðbeining um lausnina – á ríkið að kaupa Magma út? Rifta samningnum – og þá hvernig? Hvað má lausnin kosta og hvaðan á að taka það fé? Hitt veldur […]