Færslur fyrir febrúar, 2012

Þriðjudagur 28.02 2012 - 14:14

Aðildarferlið sjálft gagnast okkur!

Hrunið sýndi fram á mikilvægi þess að taka til í íslenskri stjórnsýslu, betrumbæta löggjöf og taka upp fagleg vinnubrögð.  Aðildarferlið að ESB ætti að styrkja okkur á öllum þessum sviðum.  Það ferli ætti að leiða til þess  að vinnubrögð okkar og regluverk færist í áttina að því sem er með nágrannaþjóðum og þá hefur strax […]

Mánudagur 27.02 2012 - 14:09

Lög sem banni mismunun!

Þar sem of fáir sjá hið sögufræga og vel skrifaða blað Morgunblaðið set ég grein sem ég fékk birta þar einnig hér. ,,Innan Evrópuráðsins er nefnd ECRI (European Commision against Racism and Intolerance) sem aðildarrríki Evrópuráðsins settu á laggirnar fyrir miðjan tíunda áratug síðustu aldar í þeim tilgangi að halda vakandi baráttunni gegn kynþáttafordómum Nefndin […]

Föstudagur 24.02 2012 - 11:26

Passíusálmar og gyðingahatur!!

Eg sé hjá Agli Helga og Vilhjálmi Erni Vilhjálmsyni að Wiesenthal stofnunin hefur ritað Páli Magnússyni bréf og krafist þess að Passíusálmarnir væru ekki lesnir í útvarp því að þeir væru uppfullir af gyðingahatri. Sem er alveg rétt.  Hallgrímur leggr það upp þannig að Gyðingar hafi drepið Jesú  og komandi kynslóðum muni hefnast fyrir. Og […]

Miðvikudagur 22.02 2012 - 15:45

ECRI: Útlendingalög uppfylla ekki alþjóðleg viðmið!

ECRI gagnrýnir málsmeðferð gagnvart hælisleitendum þrátt fyrir breytingar sem urðu á árunum 2009 og 2010.  Nýju ákvæðin segir ECRI nokkuð flókin og skortir skýrleika.  ECRI ítrekar fyrri tilmæli um að hælisumsækjendum verði gert kleyft að kæra ákvarðanir um hælisumsóknir til óháðs og óhlutdrægs úrskurðaraðila., Harmað er að ekki skuli vera breytingar á 45. grein Útlendingalaga sem […]

Þriðjudagur 21.02 2012 - 09:43

ECRI um moskur og mismunun!

Skýrsla ECRI um kynþáttafordóma á Íslandi er birt í dag. Þrjú megintilmæli ECRI eru þau að úthluta skuli samfélögum múslima landi og veita þeim byggingarleyfi fyrir moskur svo að þeir fái notið réttar síns skv. 9. grein mannréttindasáttmála Evrópu.   Þá eru íslensk stjórnvöld hvött til þess að að ljúka smíði lagafrumvarps um mismunun og […]

Mánudagur 20.02 2012 - 11:39

Einar og Eva vekja upp höfuðsnilling!

Einar Steingrímsson og Eva Hauksdóttir hafa beint til mín og nokkurra annarra presta spurningunni hvers vegna við afneitum ekki því að Biblían sé heilög og tökum upp eitthvað annað eins Mannrêttindayfirlýsingu SÞ. Góð spurning atarna og svaraverð og er um leið spurning um eðli trúar og lögmál í fêlögum manna.  Þetta svar er aðeins fyllra […]

Fimmtudagur 16.02 2012 - 09:49

Tjáningarfrelsi böðulsins!

Kolbrún Bergþórsdóttir, Davíð Oddsson (leiðarahöfundur 16/2), Árni Johnsen og jafnvel Eygló Harðardóttir halda fram þeirri bernsku afstöðu til tjáningafrelsis að í skjóli þess megi hrauna yfir viðkvæma minnihlutahópa á grundvelli  uppruna þeirra, kynferðis eða kynhneigðar, trúar eða annars slíks. Menn hafi t.d. frelsi til þess að halda því fram á opinberum vettvangi að líf tiltekinna minnihlutahópa sé […]

Mánudagur 13.02 2012 - 19:26

Tvískinnungur okkar gagnvart samkynhneigðum!

Snorri Óskarsson  er með afstöðu sinni gagnvart samkynhneigðum að velta stærri steinum en hann gerir sér grein fyrir.  Ég fæ ekki séð hvernig íslensk stjórnvöld geti í framtíðinni viðurkennt  sem lögaðila söfnuði  með það  viðhorf til samkynhneigðra sem hann lýsir.  Að samkynhneigð sé synd og laun hennar dauði.  Þessi afstaða flýgur í fangið á mannréttindasáttmála […]

Mánudagur 13.02 2012 - 09:00

Minnisvarði um nýfrjálshyggju og hrun!

Fimmtán til tuttugu íbúðir, flestar fokheldar standa í þorlákshöfn auðar og rýrna að verðgildi dag frá degi. Þessar íbúðir, minnisvarði um nýfrjálshyggju og hrun, eru sennilega í eigu íbúðarlánasjóðs og banka. Á þetta bara að vera svona?  Er ekki lengur hægt að þróa mál áfram með hagsmuni fólks og byggðar í huga. Um víða veröld […]

Sunnudagur 12.02 2012 - 00:35

Í tilefni (bókstafs?) Biblíudags 12. Febrúar!

  Það var eins gott að Jesú kom fyrir daga Gutenbergs áður en bækur urðu markaðsvara.  Sjáiði fyrir ykkur Matteus koma inn með Matteusarguðspjall til  forleggjarans sem hafnar bókinni með þeim orðum að Markús nokkur hafi fengið gefna út samskonar bók fyrir nokkrum árum. Bók með sama söguþræði, heilu kaflarnir séu meira að segja orðréttir […]

Höfundur