Færslur fyrir júní, 2011

Fimmtudagur 30.06 2011 - 10:39

Berlínarmaraþon 2006

Í Berlín þegar Marþonhlaup var þar fyrir nokkrum árum.  Fjarlægur djúpur niður færðist nær, stöðugt sterkari. Datt í hug að ,,nazhyrningarnir“ væru að koma.  Óræður glampi í augunum á fólki sem þyrptist að.  Loks kom hjörðin.  Fyllti breiðgötuna, endalaus straumur sveittra léttklæddra karla og kvenna á öllum aldri. Magnað magnificient upp á að horfa, heilan […]

Miðvikudagur 29.06 2011 - 09:55

Mismunun í Bláa lóninu?

,,DV sendi sjö spurningar á innanríkisráðuneytið vegna málsins…Ráðuneytið vísaði á iðnaðarráðuneytið, sem vísaði hins vegar aftur á innanríkisráðuneytið“ Í nær öllum 47 ríkjum Evrópuráðsins er aðili sem almenningur getur snúið sér til telji hann sig verða fyrir mismunun vegna uppruna, litarháttar, þjóðernis, trúar etc.  Mælt er með því (ECRÍ) að umboðsmaður þessi, eins og embættið […]

Þriðjudagur 28.06 2011 - 09:58

Ásakanir Guðjóns um rasisma!

„Ég veit ekki hvort dómurunum líkar ekki litarhátturinn á senternum mínum. Það er allavega geysilega mikið veiðileyfi sem fæst á þann mann. Hann er búinn að fá fjögur spjöld og það er búið að sparka hann niður síðan við byrjuðum mótið og það ætlar engan endi að taka.“  Þessi ummæli Guðjóns Þórðarsonar ber að taka […]

Þriðjudagur 14.06 2011 - 20:55

Hver hefur sinn djöful að draga!

 Ekki líkur vanda kirkjunnar við þetta Kirkjuþing.  Kerfið er ekki nógu gott. Í upphafi flytur forseti þingsins, mætur maður og viðurkenndur lögspekingur, vel undirbúna ræðu þar sem hann leggur upp niðurstöðuna.  Síðan tekur sjálfur biskupinn við og lýsir góðum vilja sínum. Hierarkíið á fremsta bekk.  Allt öndvegisfólk.  Hver getur fengið að sér að spilla svona veislu, eyðileggja […]

Mánudagur 13.06 2011 - 10:22

Yfirlýsing frá Baldri Kristjánssyni.

 ,,Rannsóknarnefnd sú sem Kirkjuþing stofnaði til til þess að rannsaka viðbrögð kirkjunnar við ásökunum á hendur Ólafi Skúlasyni  gerir sérstakar athugasemd við það að ég skuli hafa tekið ákvörðun um að sitja fundi stjórnar Prestafélags Íslands  í febrúar og mars 1996 þegar málefni sem snertu kynferðisafbrot þáverandi  biskups  voru til umfjöllunar.  Málið var þá til […]

Sunnudagur 12.06 2011 - 12:12

Á Hvítasunnu….!

Það þýðir lítið að tala um Hvítasunnudag og ræða bara um lærsveinana sem gripnir voru af heilögum anda og fóru að tala tungum – eða föðurinn á himnum sem mun tryggja það að við munum lifa og sendi heilagan anda sinn til okkar.  Það þýðir ekkert að víkja sér undan því að íslenska kirkjan á […]

Föstudagur 10.06 2011 - 08:56

Hugur Guðna er ESB hugur!

Harðna nú dagarnir hjá hinum mikla jöfri Guðna Ágústssyni.  Hallur Magnússon hefur sýnt fram á að Guðni er á móti ESB vegna misskilnings. Í DV í dag gagnrýnir Guðni þann íslenska nývakta bændasið að láta ekki kýrnar út sér til hagræðis heldur halda blessuðum skepnunum innan dyra allt sitt líf.  Guðna er mikið niðri fyrir […]

Fimmtudagur 09.06 2011 - 08:57

Góð ríkisstjórn á réttri leið!

Ég settist niður fyrir framan sjónvarpið í gær tilbúinn til að gerast stjórnarandstæðingur enda hef ég fengið Moggann í tilraunaáskrift þennan mánuðinn og hélt satt að segja að hér væri allt í kaldakoli.  Allt á leið til andskotans og skrýmslið ESB væri auk þess við landsteina tilbúið að gleypa landið með húð og hári til […]

Miðvikudagur 08.06 2011 - 08:58

Össur leiðbeinir Framsóknarmönnum!

Of snemmt er að tilnefna merkustu stjórnmálamenn í upphafi 21. aldar þó að vissulega verði nöfn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar framarlega. En liprasti stjórnmálamaðurinn nú um stundir er án efa Össur Skarphéðinsson.  Það er eins með hann og Jón Baldvin, talaður niður af andstæðingunum og saklausir Framsóknarmenn fjarri höfuðstöðvunum hafa það fyrir satt […]

Þriðjudagur 07.06 2011 - 09:16

Höfuðglæpur Geirs!

Það verður sennilega ekki aftur snúið með málshöfðunina á hendur Geir Haarde eins og hún er nú ankanaleg.  Úr því sem komið er verðum við að líta á hann sem fulltrúa þeirra stjórnarhátta sem þróuðust á íslandi frá lýðveldisstofnun og fram  að Hruni og þá sérstaklega eftir 1990 þegar einn flokkur var við völd að […]

Höfundur