Leikskólinn er að koma í Kirkjuheimsókn. Að frumkvæði leikskólans. Þetta hefur gengið svona fyrir sig síðan ég kom hér. Leikskólinn kemur á aðventunni. Ég spjalla við krakkana í svona tuttugu mínútur, síðan syngjum við nokkur lög. Við kunnum marga sameiginlega söngva, mörg hafa verið í sunnudagaskólanum, önnur lög eru úr sameiginlegum jóla eða aðventuarfi þjóðarinnar. […]
Það liggur við að ég verði trúaður þegar líður að jólum, barnatrúaður. Trúi bæði á Jesú og jólasveinana. Í þriðja bekk Grunnskólans í Þorlákshöfn eru menn á því að jólasveinarnir séu ekki til lengur en hafi verið til í gamla daga. Þeir, spekingarnir þar, eru ekkert farnir að velta fyrir sér Jesú. Hann er ennþá […]
Framarlega á aðventunni var ég viðstaddur í Skálholtsdómkirkju útför sómamanns, Sigurðar Sigurðarsonar vígslubiskups og er það svo sem ekki í frásögu færandi þar sem Sigurður er látinn og ég þekkti hann nægilega vel til þess að bregða mér í Skálholt til að fylgja. Sigurður hafði bæði útlit, yfirbragð og menntun til að verða biskup og […]
Ég hef í tvígang hrósað ríkisstjórninni sem ég tel að standi sig mjög vel við að vinna úr þeim ósköpum sem voru á borðum þegar hún tók við. Sumir verða ofsareiðir og virðast á þeirri skoðun að ríkisstjórnin sé slæm. Oft eru þetta ungmenni alin upp í ást á flokki og trúa því sem forustumenn […]
Enn skal ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hrósað. Það er mín skoðun að þessi ríkisstjórn eigi eftir að fara inn í söguna sem einhver sú albesta sem við höfum haft. Tekur við versta búi sem nokkur ríkisstjórn hefur tekið við. Hér stefnir nú allt í rétta átt. Atvinnuleysi minna en spáð var. Hagvöxtur meiri. Skuldir minnka hraðar […]
Lútherskur prestur er kallaður öfgasinni fyrir það að lýsa yfir ánægju með ríkisstjórn lands síns. Miðaldra karlar skrifa óhróður undir stelpunöfnum. Prestar mega ekki hafa skoðanir. Þeir mega samt örugglega vera í flokksráðum eða á flokkslínum, en þeir mega ekki hafa skoðanir. Samræmdur nafnlaus áróður virðist stundaður gegn mönnum. Á netinu eru menn ekki að […]
Í hvert skipti sem maður skrifar eitthvað annað en skógrækt, hrósar ríkisstjórn, skýtur á flokksræðið já eða spillingu fyllist athugasemdakerfið af rætnum skrifum um léleg gæði undirritaðs, hrakleg orð um menntun hans og það sem versta er, atvinnumissi er hótað með þeim hætti að sóknarbörn muni nú ekki láta sér það lynda að viðkomandi hafi […]
Óneitanlega einn af albestu köflunum í hinni helgu bók, Bíblíunni: ,,Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. 32Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum og hann mun skilja þær að eins og hirðir skilur sauði frá höfrum. 33Sauðunum skipar hann sér til hægri handar […]
Sennilega eigum við núna bestu ríkisstjórn frá stríðslokum og verstu stjórnarandstöðu frá landnámi. það fer hrollur um flesta þegar hún tekur til máls. Hreyfingin er þó með áhugaverð sjónarmið á köflum. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er með þrautseigju og þolinmæði að snúa erfiðu tafli við. Íslendingar eru nú á leið upp úr kreppunni les ég í breskum blöðum. Icesave […]
Sunnlendingar eru afar feitir. Sérstaklega Árnesingar. Af Árnesingum eru Selfyssingar feitastir. Ég hafði orð á þessu þegar ég kom til starfa við Sunnlenska fréttablaðið fyrir tíu árum. Hafði búið Í Reykjavík og á Höfn og sá strax að þetta fólk var öðruvísi. Sérstaklega eru ungar konur feitar. Offita er sem faraldur meðal þeirra. Fólkið fékk sér […]