Færslur fyrir flokkinn ‘Matur’

Þriðjudagur 02.10 2018 - 16:43

Hvað er íslenskur matur?

Hvað er íslenskur matur í þínum huga? Mínar hugmyndir um hvað er íslenskur matur voru mótaðar af því sem eldað var í litlu eldhúsi ömmu minnar í Hlíðunum og ævintýramatarferðum í næsta nágrenni Reykjavíkur með afa og ömmu.

Sunnudagur 23.09 2018 - 11:17

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

Talið er að Þingeyjarsveit, eitt sveitarfélaga á landinu, bjóði upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Fjarðabyggð hefur tekið ákvörðun um að hætta gjaldtöku í skrefum en tillaga þess efnis bíður nú afgreiðslu í Reykjavík.

Laugardagur 06.04 2013 - 12:27

Eplakaka og spjall

Mánudagur 04.02 2013 - 10:55

Af hverju skipta skólamáltíðir máli?

Hollari og bragðbetri skólamáltíðir leiða til betri árangurs í prófum, 14% minni fjarvista og hærri tekna út ævina vegna betri lestrarkunnáttu.  Rannsóknir sem unnar voru á áhrifum átaks Jamie Olivers fyrir hollari skólamáltíðum í breskum skólum leiddu þetta í ljós. Hollur matur fyrir börn er því fjárfesting til framtíðar. Engin samnorræn stefna Samnorrænt verkefni um […]

Miðvikudagur 16.01 2013 - 10:32

Beggi og kartöflublómin

Beggi frændi var einn af þessum yndislegu litríku einstaklingum sem auðga samfélagið á Eyjunni grænu. Til dæmis sá hann lítinn tilgang í skrautblómum í beðum. Beðin hans stóðu þó ekki auð heldur risu þar árlega falleg kartöflugrös. Bónusinn var svo úrvalsuppskera að hausti, sem hans nánustu nutu góðs af. Um jólin horfði ég á stórskemmtilegan […]

Föstudagur 14.09 2012 - 08:35

Kökumeistarar 2012

Í fyrra bað frumburðurinn um lopapeysuköku í afmælið.  Enn og aftur komst ég að því hversu vel gift ég er.  Eiginmaðurinn gúglaði sykurmassaskreytingar, sat yfir youtube myndböndum og ég veit ekki hvað og Voila! Lopapeysukakan varð að raunveruleika.   Í ár var ákveðið að sameina afmæli dætranna og bjóða fjölskyldu og vinum saman.  Enn á […]

Mánudagur 30.01 2012 - 08:00

Nammidagur…

Einu sinni var stungið upp á laugardegi sem nammidegi.  Nammidagurinn átti að bæta tannvernd og draga úr sykurneyslu. Eitthvað hefur þetta skolast til hjá okkur. …var hugsun mín þegar ég stóð  í röð kl. 20.30 á laugardagskvöldi ásamt æsku þessa lands við nammibarinn í Hagkaup.      

Laugardagur 24.12 2011 - 09:26

Rauðar jólakúlur, Stollen og Jamie.

Jólin eru að koma.  Vindurinn gnauðar fyrir utan, Herjólfur siglir ekki en það er hlýtt og notalegt inni í gamla húsinu mínu. Bergsson og Blöndal í útvarpinu.  Jólatréð er skreytt rauðum jólakúlum. Trönuberjasósan ilmar af eplum, kanil og appelsínum. Stollen hvílir í hvítum sykurhjúpnum á eldhúsborðinu og kalkúninn bíður eftir að komast að í ofninum. […]

Mánudagur 12.09 2011 - 08:03

Græn súpa og hafragrautur

Velferðarvaktin vakti í vikunni athygli sveitarstjórna á mikilvægi þess að halda verði á skólamáltíðum niðri.  Staða barna sem áttu í vanda fyrir hrun er síst minni nú.  Því þyrfti að tryggja öllum börnum í leik- og grunnskóla hádegisverð alla skóladaga. Tilraunir ýmissa skóla með hafragraut í morgunmat eru einnig athyglisverðar. Við eigum að geta tryggt […]

Sunnudagur 11.09 2011 - 13:11

Smalað í Skaftárhreppi

Gærdagurinn var mögnuð upplifun sem hófst í Skaftárréttum.  Sauðfé er þá fjölmennara þar en mannfólkið. Eftir að búið var að draga í dilka var lagt af stað með hóp nokkurra hundruða kindna og á þriðja tug tvífætlinga yfir hraunið í átt að Hraunkoti. Sólin skein, útsýnið var stórkostlegt og félagsskapurinn skemmtilegur.  Gosið í Grímsvötnum og […]

Höfundur

Eygló Harðardóttir
og lífið eftir pólitík.
RSS straumur: RSS straumur