Ég starfaði í nokkur ár sem námsráðgjafi í grunnskóla. Í skólanum komu oft upp mál er snertu líðan nemenda, félagstengsl, stríðni og nám. Í skólanum vann ég verkefni í tengslum við stríðni vegna holdafars sem mig langar að deila með ykkur.
Kennari hafði áhyggjur af stríðni meðal nemendanna vegna holdafars eins þeirra. Stríðnin virtist hafa slæm áhrif á líðan allra sem að málinu komu. Kennarinn óskaði eftir aðstoð samstarfsmanna sinna og vildi stöðva stríðnina og um leið bæta líðan og líkamsmynd nemendanna.
Við fórum af stað með verkefni og fræðslu í bekknum. Nemendur voru beðnir um að velta fyrir sér kostum mismunandi útlita. Ákveðið útlit var tekið fyrir í einu og kostir eða jákvæðir eiginleikar þess útlits kortlagðir, til að mynda kostir þess að vera hávaxinn, lágvaxinn, grannur eða feitur. Þegar nemendur voru búnir að nefna marga jákvæða eiginleika eða kosti áttu þeir að nefna fyrirmyndir sem pössuðu inn í hvern flokk. Sem dæmi má nefna það að ef nemendur nefndu að þeir sem væru hávaxnir gætu orðið góðir í körfubolta hentaði vel að nefna góðan körfuboltaleikmann sem fyrirmynd.
Dæmi um verkefni nemenda:
Hávaxinn |
Lágvaxinn |
Grannur |
Feitur |
Kostir:
Góður í körfubolta Góður í fótbolta Góð í handbolta Góð í marki Getur hjálpað öðrum t.d. náð í hluti sem eru hátt uppi Góður í frjálsum íþróttum Sterk Sér vel á tónleikum Góður leikari Góður söngvari |
Kostir:
Góður í dansi Góður í fimleikum Getur falið sig vel í feluleik Góð í handbolta Góður í fótbolta Góður í marki Góður í frjálsum íþróttum Góð í ballet Góður söngvari Góður leikari Liðugur Góð barnapía |
Kostir:
Góð í fimleikum Góður í ballet Góður í karate Kemst á milli þröngra staða Góður í að fela sig í feluleik Góður í frjálsum íþróttum Liðugur Góður í jazzballet Sterkur Góður söngvari Góður leikari |
Kostir:
Sterk Góður í fótbolta Góð í marki Góður í handbolta Góður í glímu Góð í karate Góður söngvari Góður leikari Góður í lyftingum Góður í frjálsum íþróttum Góð í júdó Góður í boxi Liðugur |
Fyrirmyndir:
Ólafur Stefánsson Nicole Kidman Uma Thurman Jón Arnór Stefánsson Liv Tyler
|
Fyrirmyndir:
Justin Bieber Bjarki Sigurðsson Gróttu stelpurnar Tom Cruise Johnny Galecki |
Fyrirmyndir:
Justin Bieber Gróttu stelpurnar Karate Kid Kári Steinn Selena Gomez |
Fyrirmyndir:
Adele Ólafur Darri Margir júdómenn Auðunn Jóns. Christina Aguilera Lauren í Glee |
Út frá verkefninu komu skemmtilegar umræður. Til að mynda fannst nemendum áhugavert að sjá hve marga góða kosti útlitin áttu sameiginleg og töluðu nemendur um að útlit, kyn eða aðrir þættir höfðu greinilega ekki mikil áhrif á það hvað krakkar gætu gert, æft eða haft gaman af. Í þessum hópi nefndu nemendur til dæmis að það vera feitur eða grannur hafði lítið um það að segja hvort viðkomandi gæti orðið góður í frjálsum íþróttum. Í framhaldinu er gagnlegt fyrir kennara að draga fram fleiri atriði þar sem holdafar og líkamsstærð skiptir engu máli. Allir geta dansað, sungið, synt, o.s.frv. og leggja áherslu á að flest færni er óháð því hvort við erum hávaxin eða lágvaxin, gannvaxin eða feitlagin
Nemendur voru líka meðvitaðir um það að allar tegundir útlits ættu að þykja eðlilegar og fallegar þar sem við fæðumst ólík. Sumir eru dökkhærðir, aðrir ljóshærðir, sumir verða hávaxnir meðan aðrir verða lágvaxnir. Eins er holdafar okkar ólíkt frá náttúrunnar hendi.
Þetta verkefni getur verið góð leið til að hefja umræður um hve líkamsstærðir eru ólíkar og hvort líkamsstærðin skipti endilega máli? Feit manneskja getur t.d. verið mjög liðug þótt það sé ekki partur af staðalmyndinni og grönn manneskja getur verið sterk. Allir geta dansað. Að mestu leyti veltur færni ekki á holdafari heldur á þjálfun og hæfileikum sem allir geta ræktað með sér.
Verkefni hvetur vonandi nemendur sem og okkur starfsmenn skólanna til að fagna fjölbreytileikanum.
Greinin birtist upphaflega á sjalfsmynd.com
Rita ummæli