Í hvert skipti sem nýtt megrunaræði grípur um sig meðal Íslendinga hugsa ég með skelfingu til allra þeirra barna sem munu nú þurfa að alast upp við þrúgandi megrunar- og holdafarsáherslur á heimilinu. Þau munu fá að kynnast endalausu tali um kíló, fituprósentu, brennslu, hitaeiningar og hvaða matartegundir séu óhollar, fitandi, bannaðar eða beinlínis hættulegar. […]
Ég hef nokkrum sinnum verið beðin um leiðbeiningar varðandi hvernig hægt er að stunda heilsurækt án þess að áherslan sé á þyngd eða þyngdarbreytingar. Það er sáraeinfalt. Þú gerir bara nákvæmlega það sama og venjulega nema þú sleppir því að pína líkama þinn, hunsa þarfir hans eða rembast við að breyta honum. Í praxís lítur […]
Ég hef lengi fjallað um líkamsmynd, megrun og átraskanir á opinberum vettvangi og stundum hefur fólk samband við mig af því það hefur áhyggjur af börnunum sínum hvað þessi mál snertir. Undanfarið hef ég fengið símtöl sem vekja hjá mér ugg þar sem áhyggjufullir foreldrar og íþróttaþjálfarar greina frá því að börn í íþróttum séu […]
Þegar hugað er að matarvenjum barna skiptir máli hvernig umhverfi þeirra er uppbyggt, hvernig andrúmsloft ríkir á heimilinu og hvaða venjur ríkja í tengslum við neyslu matar. Hér á eftir fara nokkrir punktar um hvernig hægt er að skapa heilbrigt og afslappað matarumhverfi á heimilinu, sem auðveldar börnum að tileinka sér góðar matarvenjur og viðhalda […]
Þetta er enn ein furðan. Hér er náungi sem heldur því fram að orsakir offitu liggi í því að fólk hlusti of mikið á líkama sinn, sem er ófær um að gefa rétt skilaboð í offituvænu umhverfi. Hann, eins og svo margir sem aðhyllast offitubaráttuna, telur að mannslíkaminn sé stöðugt svangur (gráðugur) og þess vegna […]