Færslur fyrir október, 2010

Föstudagur 29.10 2010 - 10:41

Þórbergur Þórðarson

Ég leyfi mér að vitna aftur í textabút úr Ofvitanum eftir Þórberg Þórðarson “Allir Íslendingar kunna að lesa bækur. En hversu margir kunna að lesa hús? Það er meiri íþrótt að kunna að lesa hús en að geta lesið bækur. Húsið er hugsun, sem hefur hæð, lengd og breidd. Bókin er vöntun á hugsun, sem […]

Föstudagur 22.10 2010 - 09:20

Að lesa hús

Orðrétt segir Þórbergur Þórðarson í Ofvitanum “…..Ég vildi vekja athygli lesenda minna á því, hvílíkir þekkingar- og stemmningarbrunnar eru byrgðir því fólki sem alla sína ævi hefur verið svo önnum kafið í yfirborðssmálunum lífsins, að það hefur aldrei gefið sér tíma til þess að lesa hús.” Já, “að lesa hús” Þegar arkitekt skoðar hús þá […]

Miðvikudagur 20.10 2010 - 14:42

Eskifjörður – Úrskurður fallinn

  Ekki verður samið við Einrúm um hönnun hjúkrunarheimilis á Eskifirði samkvæmt fyrstuverðlaunatillögu arkitektanna.    Í samkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði komu fram efasemdir um hæfi fagdómara í keppninni. Í framhaldinu var málið kært til Kærunefndar útboðsmála.   Nú liggur fyrir úrskurður kærunefndar þar sem felld er úr gildi ákvörðun kærða, Framkvæmdasýslunnar, um að […]

Mánudagur 18.10 2010 - 22:29

Höll sumarlandsins

Sumarhús voru upphaflega hugsuð sem athvarf borgarbúa úti á landi. Staðir til hvíldar frá annríki borganna.  Sumarhúsin voru oftast lítil í byrjun og illa búin miðað við hvað við þekkjum í dag. Menn byggðu sumarbústaði sína að mestu með eigin höndum. Lítil vinna var aðkeypt. Bygging hússins var hobby í sjálfu sér og hluti af […]

Föstudagur 15.10 2010 - 09:04

Ræsum byggingariðnaðinn

Ekki er með fullu vitað hvað atvinnuleysi er mikið í arkitektastétt. En fram hefur komið að um 40% arkitekta sem störfuðu á einkamarkaði eru nú á atvinnuleysisbótum. Til viðbótar þeim hafa margir fundið sér annað starf, eru fluttir til útlanda eða komnir í nám. Svo eru auðvitað hinir sem eru atvinnulausir án þess að vera […]

Þriðjudagur 12.10 2010 - 11:50

Þingvellir – Staðarvitund

Ég fjallaði um Alvar Aalto í gær og sterka staðarvitund hans sem ég svo tengdi viðhorfum stjörnuarkitekta til staðanna. Það má margt af Aalto læra. Í Morgunblaðinu í morgun er kynnt hugmynd að byggingu hótels á bökkum Öxarár við Almannagjá. Tillagan er athyglisverð fyrir þær sakir að þarna er sett fram hugmynd þar sem höfundar […]

Mánudagur 11.10 2010 - 10:02

Alvar Aalto

  Það eru skiptar skoðanir á hvort Alvar Aalto eða Gunnar Asplund hafi verið fyrri til  að kynna funktionalisman fyrir norðurlandabúum. Sennilega geta þeir skipt heiðrinum nokkuð jafnt á milli sín. En stefnan náði fótfestu á norðurlöndunum eftir Stokkhólmssýninguna árið 1930. Aalto átti gott tengslanet við arkitekta Evrópu í gegnum CIAM (Congrès International d’Architecture Moderne […]

Fimmtudagur 07.10 2010 - 23:34

Einn plús fyrir Philippe Starck

Franski hönnuðurinn Philippe Starck hefur nýlokið við að endurbyggja gamla víngeymslu í miðborg Bilbao og gert hana að menningar- og heilsuræktarmiðstöð. “Alhóndiga Bilbao Cultural and Leisure Centre” samanstendur, að mér skilst,  af þrem byggingum sem voru byggðar árið 1909 og eru hannaðar af Ricardo Bastida. Í byggingunum sem eru um 6000m2 er að finna kvikmyndahús, bókasafn, […]

Þriðjudagur 05.10 2010 - 14:46

BETRI borg BETRA líf

Málflutningur starfsmanna Skipulags- og byggingasviðs Reykjavíkurborgar á málþingi í ráðhúsinu um BETRIBORGBETRALIF í gærkvöld kom mér þægilega á óvart. Þeirra sýn á skipulagsmálin var skynsamleg og framsækin í kynningunni. Ég segi framsækin miðað við það sem áður hefur sést frá sviðinu. Það sem þau töluðu um og þær lausnir sem nefndar voru eru áratuga gamlar […]

Sunnudagur 03.10 2010 - 14:08

Alþjóðlegur dagur arkitektúrs

  Fyrsti mánudagur í október ár hvert er alþjóðlegur dagur arkitektúrs. Sá dagur er á morgunn mánudaginn 4. október. Í tilefni hans verður haldið málþing undir yfirskriftinni, Betri borg, betra líf – sjálfbærni í krafti hönnunar og stendur það frá kl. 16.30 til kl. 19.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þeir sem að málþinginu standa eru Arkitektafélag […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn