Færslur fyrir janúar, 2010

Laugardagur 30.01 2010 - 20:08

Stólar Philippe Starck.

    Philippe Starck hefur hæfileika til þess að vekja á sér athygli eins  og sést þegar bók um verk hans er skoðuð. Þar er sett mynd af honum sjálfum berum að ofan á forsíðu og það sem meira er að á annarri bók er mynd af honum þar sem hann er  einnig ber en […]

Miðvikudagur 27.01 2010 - 16:47

Áleitnar spurningar

Árni Ólafsson setur fram mikilvægar spurningar um staðarval LSH og endurmat þess í athugasemd sinni við síðustu færslu mína.   Árni spyr: “Hver á að hafa frumkvæði að slíku endurmati?  Er það of seint?  Er sjálfvirknin í ákvarðanaferlinu alger?  Kunna menn að hætta við án þess að missa æruna?  Eða þora menn ekki að hætta […]

Þriðjudagur 26.01 2010 - 16:31

Deiliskipulag Landspítalalóðar

Mér hefur borist til eyrna að skipulags- og byggingasvið borgarinnar sé nú að hefja vinnu við gerð forsagnar vegna gríðarlegrar uppbyggingar á lóð Landsspítalans við Hringbraut.   Hugmynd borgarinnar er sú að lýsa í forsögninni áherslum borgaryfirvalda um skipulagsgerðina og uppbyggingu á staðnum.    Forsögnin verði unnin á skipulags- og byggingasviði með aðkomu sérfræðinga þar […]

Mánudagur 25.01 2010 - 15:57

Björn Hallsson – Arkitekt – Kynning

Af einhverjum ástæðum birtust ekki myndir af verkum Björns Hallssonar með síðustu færslu. Ég ætla að bæta úr því í dag og setja nokkrar myndir af nýlegum verkum Björns og kynna hann lítillega fyrir lesendum. Það er vilji minn að kynna lauslega þá arkitekta, landslagsarkitekta. innanhússarkitekta sem tjá sig hér á bloggi mínu um málefni […]

Föstudagur 22.01 2010 - 09:42

Björn Hallsson – LSH

Ég fæ mikinn fjölda sendinga frá lesendum mínum í tengslum við bloggið. Ég er afskaplega þakklátur fyrir það. Björn Hallsson, arkitekt, sendi mér eftirfarandi texta frá Kína þar sem hann starfar um þessar mundir. Björn rak teiknistofu í Chicago um árabil og er tvímælalaust sá íslenski arkitekt sem komið hefur að flestum sjúkrahúsum og byggt […]

Miðvikudagur 20.01 2010 - 19:13

Arkitektar-Verkfræðingar-Samfélagsleg ábyrgð

Því hefur verið haldið fram að arkitektar viti eitthvað um allt meðan verkfræðingar viti allt um fátt. Þetta kom mér í hug á fundi sem mér bauðst að fara á í Boston á mánudaginn var. Þar átti ég tæpra tveggja tíma samtal við Theodore C. Landsmark, president (rektor) í Boston Architecture Collage (BAC) og kollega […]

Þriðjudagur 19.01 2010 - 09:18

Kennisetningar

      Menn hafa látið mörg gullkorn frá sér fara um byggingalistina.  Ég ætla að ryfja nokkur upp sem áhugafólk hefur bæði gott og gaman af að hugleiða. Ég veit ekki til þess að þau hafi verið þýdd á íslensku og bið afsökunar á að þetta sé hér á ensku.   DA VINCI – […]

Fimmtudagur 14.01 2010 - 23:25

Vinnuumhverfi arkitekta

  Ég hef oft á ferðalögum mínum lagt lykkju á leið mína og skoðað arkitektaskóla. Þeirra á meðal eru tveir skólar í Boston, Harvard og BAC, AA í London, Berkeley í  San Fransisco, skólar í Glasgow, Vín, Kaupmannahöfn.o.fl.  Þegar ég skoða verk nemanna skynja ég samhengi milli aðstæðna þar sem námið fer fram og gæða […]

Miðvikudagur 13.01 2010 - 14:19

Hagsmunaaðilar deiliskipuleggja

    Nú sýnist mér að forræði yfir deiliskipulagi Landspítalalóðarinnar sé að færast frá borginni til hagsmunaaðila. Það er að segja að Skipulagsráð kjörinna fulltrúa með sína færustu arkitekta og skipulagsfræðinga hjá borginni eru að afhenda meðferð málsins til verkefnisstjórnar LSH. Það er ekki góð reynsla af því að afhenda hagsmunaaðilum forræðið í deiliskipulagsvinnu. Maður veltir fyrir […]

Mánudagur 11.01 2010 - 14:09

Óróleiki í Alþingishúsinu

  Fyrir utan pólitískan óróa í Alþingishúsinu er þar einnig nokkur arkitektóniskur órói. Ég nefni dæmi. Ef grannt er skoðað sést að hlið Alþingishússins til norðurs er samhverf og sömuleiðis hliðin til suðurs. En það er eins og suðurhliðin og norðurhliðin séu ekki á sama húsinu. Þegar horft er á norðurhliðina blasir við tveggja hæða […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn