Færslur fyrir janúar, 2011

Mánudagur 31.01 2011 - 08:20

Asparblús borgarstjórnar

Síðunni hefur borist eftirfarandi grein frá Einari E. Sæmundsen landslagsarkitekt FILA.  Einar var garðyrkjustjóri í Kópavogi og kom þar að „Borgartrjárækt“ sem hefur þróast sem sérgrein sem kölluð er „Urban forestri“. Borgartrjárækt hefur verið viðfangsefni Einars um alllangt skeið og  fjallar hann um hana hér í þessari stórgóðu  og tímabæru grein. Gefum Einari orðið: Sagt er að […]

Föstudagur 28.01 2011 - 11:44

Bræðurnir Thor og Alfred Jensen

Skömmu eftir að forseti Bandaríkjanna Richard Nixon sagði af sér, var hann spurður í viðtali hvernig hann héldi að hans verði minnst í sögunni?  Nixon svaraði að bragði: ”Það fer eftir því hver skrifar söguna”. Þegar ég hugsa um Alfred Jensen Raavad kom þetta mér í hug og spyr af hverju ég hafi aldrei heyrt […]

Fimmtudagur 27.01 2011 - 09:09

Íslenzk Húsagerðarlist – Alfred Jensen Raavad

Í lítilli bók/hefti   „Íslenzk Húsagerðarlist – Islandsk Architektur“  eftir Alfred Jensen Raavad sem var gefin út  árið 1918 er höfundur að velta fyrir sér framtíð byggingalistar á íslandi.  Bókin er skrifuð bæði á íslensku og dönsku myndskreytt  með nokkrum teikningum.  Hann er greinilega meðvitaður um staðinn og menningararfinn.  Tillöguuppdrættirnir og textinn bera vott um mikla […]

Miðvikudagur 26.01 2011 - 09:02

Alfred Jensen Raavad

Í tengslum við færslu um ”Fingurskipulag” Kaupmannahafnar í síðustu viku vakti Jón Guðmundsson arkitekt athygli  á Alfred Jensen Raadvad.   Jón  upplýsti í athugasemdarkerfinu að Jensen sé álitinn fyrsti skipulagsfræðingur dana og einn helsti hugmyndafræðingurinn að baki fingurplansins.   Hann setti skipulagshugmyndina fram í bók sinni ”borgmesterbogen” sem hann hafði skrifað árið 1914 og endurskoðað og gefið […]

Sunnudagur 23.01 2011 - 20:27

Teiknað með hjartanu

Þegar skáldsaga er lesin þarf lesandinn að vera gagnvirkur ef hann ætlar að njóta lestursins að fullu. Það er að segja að hann þarf að leggja nokkuð til skáldsögunnar. Hann þarf að fylla upp í þær eyður sem rithöfundurinn skilur eftir. Lesandinn þarf að gera myndir í huganum af persónunum og umhverfinu sem sagan gerist […]

Föstudagur 21.01 2011 - 08:29

“The New York Five”

“The New York Five” er nafnið á hóp arkitekta sem sýndu verk sín á MOMA í New York árið 1967.  Allir áttu arkitektarnir það sameiginlegt að aðhyllast modernismann og verk Le Courbusiere á árunum milli 1920 og 1940. Skrifuð var bók um sýninguna árið 1972 og svo kom umfjöllun  eftir fimm arkitekta í Architectural Forum,  […]

Miðvikudagur 19.01 2011 - 16:11

Skipulag Stórkaupmannahafnar

  Þegar horft er á skipulag bæja sér maður oftast einhvern strúktúr eða munstur (pattern) á uppdrættinum. Maður áttar sig oftast fljótt á að munstrið er skipulagt og ekki tilviljunum háð. Allt er annað tveggja: í rökréttu samhengi við skipulagið eða með sögulegri eða pólitískri skýringu. Þetta er ekki alltaf auðséð og stundum óskýrt og […]

Mánudagur 17.01 2011 - 16:55

45 ára gamalt sumarhús

  Kollegi minn minnti mig á sumarhús sem Gehrdt Bornebusch arkitekt teiknaði fyrir tæpum 50 árum í Oddsherred í Danmörku.  Hann var að bera húsið í síðustu færslu minni við þetta gamla hús. Það er margt líkt með þeim. Þau byggja á sömu grunnhugmynd þó þau séu byggð með um 50 ára millibili í sitt […]

Fimmtudagur 13.01 2011 - 16:38

Íbúðarhús í sveitinni

Íbúðarhúsið situr á basaltklöpp milli trjáa og því er gefið form sem tekur fullt tillit til lóðarinnar og aðstæðna þar. Húsið er í Washington fylki í Bandaríkjunum  þar sem í umhverfinu ríkir: vatn, hávaxin tré, basaltklappir, fjalllendi, lágvaxinn undirgróður og dýralíf. Húsið fellur vel að landinu og ekki bara það, heldur er efnisval og litir […]

Þriðjudagur 11.01 2011 - 09:13

Nútíma klisjur í byggingalistinni.

Undanfarin nokkur ár hefur gengið yfir heiminn ákveðin gerð arkitektúrs sem hefur hvorki staðareinkenni né höfundareinkenni að neinu marki. Maður sér þetta um allan heim og stíllinn hefur engin landamæri. Einkennin eru samspil húshluta sem eru kassalaga og raðað saman eftir aðstæðum. Veggfletirnir eru hvítir, þökin hafa flata ásýnd og gluggarnir eru göt í veggjunum […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn