Færslur fyrir desember, 2014

Sunnudagur 28.12 2014 - 16:25

Sigurður Pálsson

  Það var sérlega skemmtilegt og fróðlegt að lesa bók Sigurðar Pálssonar „Táningabók“ sem kom út núna fyrir jólin. Bókin fjallar um tíðaranda sjöunda áratugar síðustu aldar og tengir hann sinni lífsreynslu og vangaveltum.  Sérstök áhersla er lögð á unglingamennigu sem var einstök fyrir um 50 árum. Í bókinni fjallar Sigurður um bókmenntir, myndlist, leiklist […]

Laugardagur 20.12 2014 - 12:52

Margbreytni rýmis

  Gunnlaugur Stefán Baldursson arkitekt hefur sent síðunni áhugaverða grein um arkitektinn Linu Bo Bardi.   Höfundur pistilsins er flinkur og reyndur praktiserandi arkitekt sem er meðvitaður um fræðimennsku byggingalistarinnar þar sem hann hugsar mikið um anda staðanna og regionalismann. Hann hefur skrifað greinar í Lesbók Morgunblaðsina, hér á þennan vef og víðar um mikilvægi „Regionalismans“ […]

Þriðjudagur 16.12 2014 - 04:34

Framúrskarandi sumarhús

Vegna vinnslu bókar um Gunnlaug Halldórsson arkitekt fann Pétur H. Ármannsson arkitekt frumdrög af sumarhúsi sem Gunnlaugur teiknaði fyrir Georgiu og Svein Björnsson forseta Íslands. Húsið átti að byggja við svokallaðan Forsetahól utarlega á Reykjanesi. Húsið var aldrei byggt en það átti að rísa undir grasivöxnum hól, Litlafelli, skammt frá afleggjaranum að Reykjanesvita. Þetta var […]

Mánudagur 15.12 2014 - 10:21

Siðareglur arkitekta

Það vita það ekki allir, en arkitektar hafa með sér öflugar siðareglur. Í siðareglum Arkitektafélags Íslands birtast þær hugsjónir og meginreglur, sem talið er mikilvægt að arkitekt beri að hafa að leiðarljósi í störfum sínum. Siðareglur arkitekta ganga fyrst og fremst út á þrjá meginþætti. Í fyrsta lagi eru það atriði er varða  hag þeirra […]

Þriðjudagur 09.12 2014 - 14:45

Ranakofinn í Svefneyjum – Elsta hús á Íslandi?

  Því var haldið fram þegar ég var í sveit Svefneyjum á Breiðafirði að Ranakofinn væri eldra hús en nokkuð annað í Vestureyjum Breiðafjarðar. Sumir töldu reyndar Ranakofann elsta hús hús á Íslandi. Minjastofnun hefur ekki aldursgreint bygginguna en telur hana vera frá seinni hluta 18. aldar. Hún er sennilega miklu eldri vegna þess að það hafa […]

Föstudagur 05.12 2014 - 11:42

Dýrasta háhýsi heims

    Nú í vikunni voru opinberaðar tölur um byggingakostnað háhýsa. Þar kom fram að nýbygging World Trade Center í New York er það lang dýrasta í heiminum. Byggingin er teiknuð af arkitektastofunni SOM sem er þekkt vegna verka sinna. Þess má geta að Hjördís Sigurgísladóttir arkitekt hjá ArkHD arkitektum hér í Reykjavík vann hjá SOM um […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn