Færslur fyrir ágúst, 2011

Laugardagur 27.08 2011 - 23:20

Mannvirkjalög – ekki fyrir arkitekta?

Í greinargerð með frumvarpi til mannvirkjalaga er að finna þessa fróðlegu upptalningu á þeim sem komu að gerð frumvarpsins. Í nefnd um endurskoðun byggingarlagaþáttarins áttu sæti: Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri umhverfisráðuneytinu, formaður Ingibjörg Halldórsdóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu Smári Þorvaldsson, deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu Ágúst Þór Jónsson, verkfræðingur, tilnefndur af forsætisráðuneyti Eyjólfur Bjarnason, tæknifræðingur, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins […]

Miðvikudagur 24.08 2011 - 15:33

Hver á eyðibýlin og hvað eru þau mörg?

  Ég hef fengið margar fyrirspurnir vegna færslna minna um eyðibýli fyrr í mánuðinum. Fólk spyr hvað eyðibýlin séu mörg og hver eigi þau?. Hér koma nokkrar tölur: Á landinu öllu eru skráð 6562 býli, þar af eru 2272 skráð sem eyðibýli. Búið er á 4290 jörðum.  Hagþjónusta landbúnaðarins taldi að í árslok 2009 væru […]

Sunnudagur 21.08 2011 - 20:55

Bessastaðanes–Náttúran-Flugvöllur

Björn Vignir Sigurpálsson blaðamaður sendi síðunni eftirfarandi texta. Þarna drepur Björn á málum sem ekki hafa verið mikið í umræðunni. Hann bendir á mikilvægi Bessastaðaness sem óraskað náttúrusvæði og styðst við skýrslu fræðimanna hvað það varðar. Þessi hugleiðing á  fullt erindi i umræðuna um Reykjavíkurflugvöll og hugsanlega uppbyggingu á Bessastaðanesi. Gefum Birni orðið: Nokkuð virðist […]

Miðvikudagur 17.08 2011 - 23:37

Gehry á suður Jótlandi-„the Bilbao effect“

Frank Gehry er 82 ára gamall stjörnuarkitekt sem hefur gert mörg stórvirki á sviði byggingarlistar víða um heim. Sum verka hans skipta máli í ferðamannaiðnaðinum.  Guggenheim safn Gehrys setti Bilbao á landakortið að sumra mati. Hin síðari ár virðist hafa hlaupið snobb og ofmat á gamla manninn og hans nafni. Sumir málsmetandi  gagnrýnendur telja seinni verk hans […]

Mánudagur 15.08 2011 - 12:27

Reykjavíkurhöfn – Mýrargötuskipulagið

Eftirfarandi barst frá einum lesanda síðunnar sem er áhyggjufullur vegna framkvæmda á Slippasvæðinu við Reykjavíkurhöfn. Hann vitnar í nýjasta eintak af því ágæta blaði Vesturbæjarblaðinu og segir: „Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum. Þessi bókartitill kom í hugann þegar  síðasta eintaki Vesturbæjarblaðinu var flett, en blaðið hefur eiginlega tekið að sér að vera fundargerðagerðabók skipulags- og byggingarmála í […]

Miðvikudagur 10.08 2011 - 11:59

Nýtt vestnorrænt menningarhús í undirbúningi

Nú er undirbúningur að byggingu vestnorræns menningarhúss í Danmörku á lokastigi. Um miðjan júlí s.l. lá fyrir hvaða fimm teymi voru valin til þess að leggja fram tillögur að húsinu sem rísa mun í Odense á Fjóni. Enga arkitektastofu frá Grænlandi, Færeyjum eða Íslandi er að finna í teymunum. Þetta vekur athygli þegar um er að ræða byggingu sem […]

Laugardagur 06.08 2011 - 18:03

Eyðibýli – Vaxandi áhugi

Mér hefur verið bent á að  ýmislegt er að gerast varðandi eyðibýli á landinu.  Mikill fjöldi fólks er að velta fyrir sér framtíð þessarra merku bygginga. Áhuginn er mikill og fer vaxandi, eðlilega. Nýverið styrkti Nýsköpunarsjóður námsmanna 5 vaska háskólanema til tveggja mánaða skráningarvinnu þar sem þeir skrá eyðibýli á suðurlandi. Að þessu verkefni hafa […]

Miðvikudagur 03.08 2011 - 11:33

Eyðibýli á Melrakkasléttu

Í síðustu færslu nefndi ég eyðibýli á Melrakkasléttu sem ég tók eftir á ferðalagi þar um slóðir fyrir nokkru.  Hjálagt eru  nokkrar myndir af einu þeirra. Ég skoðaði húsið lítillega og sá að það hafði verið vandað til þess í upphafi. Viðir voru vel valdir og smíðin til fyrirmyndar. Til að mynda var stiginn í […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn