Færslur fyrir nóvember, 2010

Mánudagur 29.11 2010 - 11:48

Þórshöfn í Færeyjum

Guðmundur skrifar athugasemd við síðustu færslu mína og bendir á Þórshöfn í Færeyjum og segir að við ættum að taka hana okkur til fyrirmyndar.   Hann segir “….höfnin þar er enn skemmtileg, veitingastaðir og hótel allt um kring, en höfnin þó full af bátum og skipum og líf á hafnarbakkanum, stundum markaðir og uppákomur. Þar […]

Föstudagur 26.11 2010 - 09:29

Framtíð Reykjavíkurhafnar

  Undanfarin ár hefur átt sér stað umbreyting hafna í allri Evrópu og víðar. Enginn annar staður í borgarlandslaginu hefur tekið jafn miklum og hröðum breytingum og hafnirnar. Flutningagámar, þjónusta skipa og útgerða, kranar, ferjubryggjur og verksmiðjur eru á brott og í þeirra stað hafa komið íbúðir, höfuðstöðvar stórfyrirtækja, hótel og menningarbyggingar. Spurningum á borð […]

Miðvikudagur 24.11 2010 - 16:03

Höfnin í Kaupmannahöfn

Höfnin í Kaupmannahöfn hlaut slæm örlög.  Hún er nú einhvers konar bryggjuhverfi án skipa. Þar sem höfnin var áður eru nú  menningarhús, stjórnsýsluhús, skrifstofur og eitthvað af lúxus íbúðablokkum. Þegar ég bjó í Kaupmannahöfn var hún iðandi af lífi. Brýrnar Langebro og Knippelsbro gengu upp og niður allan daginn. Nýhöfn skiptist í “den pæne side” […]

Mánudagur 22.11 2010 - 13:59

Áhrif Óperunnar í Sydney

  Þann 13. maí árið 1787 hélt Arthur Phillip með 11 skipa flota sinn áleiðis til Ástralíu með 800 dæmda menn auk 200 kaupmanna og 450 menn úr sjóhernum. Rúmum átta mánuðum síðar sigldi hann inn í Botany Bay á austurströnd Ástralíu þar sem honum hafði verið ráðlagt að taka land. Phillip leist ekki á […]

Fimmtudagur 18.11 2010 - 09:53

Reykjavíkurhöfn

  Þegar ég var drengur var oft farið  niður á höfn. Höfnin var spennandi staður þar sem mikið var um að vera. Höfnin var helsta tenging við atvinnulífið og veröldina utan Íslands. Á austurhöfninni var kolakraninn og hafskipahöfn með vörumóttöku. Vestar var bátabryggja, fiskiskipahöfn og slippurinn. Gengið var eftir eiði út í Örfirisey. Eimskipafélagshúsið var […]

Þriðjudagur 16.11 2010 - 14:24

Grín og gæði í byggingalistinni

Innra skipulag verslunarmiðstöðvarinnar Palladíum í Prag (sjá síðasta pistil) var á margan hátt einstakt. Skipulag og fyrirkomulag innandyra er einfalt og rökrétt en um leið  einkenndist það af óreglu af sama toga og gatnakerfi borgarinnar. Þetta virðist vera mótsögn en þannig upplifði ég heimsókn mína í verslunarmiðstöðina.  Það var auðvelt að rata en samt var […]

Sunnudagur 14.11 2010 - 15:26

Palladium, verslunarmiðstöð í Prag

Í stað þess að byggja verslunarmiðstöð í útjaðri borgarinnar á svipaðan átt og tíðkast í Bandaríkjunum og hér á Höfuðborgarsvæðinu ákvað borgarstjórnin í Prag að skapa aðstöðu fyrir stóra „kringlu“ í miðborginni. Þetta var auðvitað gert til þess að styrkja miðborgina og auka verslun og þjónustu þar. Verslunarmiðstöðin í Prag heitir Palladium og hýsir um […]

Fimmtudagur 11.11 2010 - 07:19

„Fast News“ – „Fast Architecture“

Í gærkvöld sat ég kvöldverð þar sem saman var komið fólk frá ýmsum löndum. Umræður við borðið voru málefnalegar og uppbyggjandi þar sem ekkert var um sleggjudóma og enginn endurtók sig. Enginn reyndi að sannfæra neinn um neitt og allir höfðu skoðun og létu hana i ljós. Við mitt borð sátu 12 manns, allt hámenntað […]

Þriðjudagur 09.11 2010 - 08:37

Fangelsi á Hólmsheiði

Síðastliðinn föstudag  skrifaði ég færslu sem var byggð á upplýsingum á heimasíðu danskra arkitekta þar sem þeir kynna hönnun sína á nýju fangelsi á Hólmsheiði. Ég sagði í færslunni að það hlytu að vera á þessu einhverjar skýringar sem ekki liggja í augum uppi. Nú hefur ráðherra svarað í fyrirspurnartíma Alþingis og embættirmenn Dóms- og […]

Laugardagur 06.11 2010 - 19:39

MANNGERT LANDSLAG

Þessi texti eftir Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt er skrifaður í tengslum við sýninguna ManMadeEnviroment sem haldin var í Osló fyrir nokkru. Umfjöllunarefni Einars á fullt erindi í umræðu um náttúru og landslag.  Ég birti hann hér með góðfúslegu leyfi höfundar. MANNGERT LANDSLAG – TIL GAGNS OG GAMANS Einkenni  umræðu um stöðu landslagsarkitektúrs á Íslandi er […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn