Garðurinn Skrúður hlýtur „International Carlo Scarpa Prize for Gardens“ 2013 Garðurinn Skrúður að Núpi í Dýrafirði hefur hlotið alþjóðleg verðlaun „Premio Internazionale Carlo Scarpa per il Giardino“ eða „Alþjóðaverðlaun Carlo Scarpa fyrir garða“. Tilkynnt var um verðlaunin á blaðamannafundi í morgun í Mílano á Ítalíu en þau verða afhent við hátíðlega athöfn á árlegri hátíð […]
Fyrir um 50 árum voru það snjallir ljósmyndarar sem gerðu hús og arkitekta fræga og sígilda. Nú er það internetið. Ég sló upp einum af sterkustu arkitektum Evrópu á árunum um 1970 á leitarvél Google. Ég stimplaði inn arkitektinn og prófessorinn á Konunglegu Akademíunni í Kaupmannahöfn inn á Google,: „Arkitekt Viggo Möller Jensen“ (1907-2003). […]
Síðunni hefur borist eftirfarandi grein frá Sigurði Thoroddsen arkitekt. Sigurður er einn reyndasti skipulagsmaður íslendinga. Hann vann nánast alla starfsæfi sína hjá Skipulagi rikisins (nú Skipulagsstofnun), mestan hluta sem aðstoðarskipulagsstjóri. Hér skrifar hann athyglisverða grein um þróun skipulagsmála í Reykjavík frá 1927 til dags dató. Hann talar um þétta og dreifða byggð. Þetta er fróðleg […]
Það er ótrúlegt að hugsa til þess að samkvæmt áæltlunum Reykjavíkurborgar eru aðeins þrjú ár þar til flugvöllurinn í Vatnsmýri verði nánast lagður af. Það sem gerir þetta sérstaklega ótrúlegt er að ekki hefur enn fundist lausn á flugsamgöngum við höfuðborgarsvæðið sem leyst getur Reykjavíkurflugvöll af og sátt er um. Undanfarna daga hafa þó […]
Í gær var kynnt greinargerð varðandi brú yfir Fossvog fyrir gangandi, hjólandi og jafnvel almenningssamgöngur milli Kársness og Nauthólsvíkur. Greinargerðin var til umfjöllunar í bæjarráði og borgarráði fyrir hádegi í gær. Þarna er fetuð slóð sem er afar áhugavert og metnaðarfull og ber með sér mikla möguleika i skipulagmálum höfuðborgarsvæðisins. Greinargerðin var unnin af verkfræðistofunni Eflu […]
Því hefur verið haldið fram að hús séu eins og fólk. Þau myndist misvel. Og þau hús (fólk) sem mest eru ljósmynduð séu ekki endilega bestu húsin, þau myndist bara betur. Byggingar sem myndast vel fara víða í blöðum og tímaritum meðan hin vilja gleymast þó þau séu jafnvel betri en hin frægu. Ljósmyndarinn skiptir þarna […]
Þegar japanski arkitektinn Hironaka Ogawa kom á staðinn þar sem átti að byggja viðbyggingu við hús verkkaupans sá hann tvö glæsileg tré sem þurfti að fella vegna framkvæmdanna. Í stað þess að láta þau hverfa lagði hann til að þau yrðu tekin upp, berkinum fletta af, þau þurrkuð, reykt og notuð aftur í nýbyggingunni. Þetta er […]