Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Miðvikudagur 16.12 2009 - 09:19

Nýstárleg skólabygging

  Tilkynnt var í síðustu viku að danski arkitektinn og “Íslandsvinurinn” Bjarke Ingels hafi ásamt færeysku arkitektastofunni Fuglark unnið samkeppni um menntasetur skammt fyrir utan Þórshöfn í Færeyjum. Byggingin er í svokölluðu Marknagili og mun standa í brekku í 100 metra hæð ofan við höfuðstaðinn með útsýni til fjalla og yfir bæinn. Skólinn er ætlaður […]

Mánudagur 14.12 2009 - 13:52

LSH-„Tæknileg viðskiptahindrun“?

Í athugasemd vegna síðustu færslu minnar kemur fram hugleiðing um hugtakið  “tæknileg viðskiptahindrun”. Þar skrifar starfsmaður verktakafyrirtækis athugasemd sem má skilja sem svo, að hann telji að kröfur útbjóðanda í forvali geti flokkast undir “tæknilega viðskiptahindrun”. Það er að segja ef kröfur í forvali eru þannig,  að fyrirtækjum er haldið frá verkinu af ástæðum sem […]

Mánudagur 14.12 2009 - 13:31

Föstudagur 11.12 2009 - 10:36

Landspítalinn-Arkitektar-Verktakar

Nú stendur fyrir dyrum að auglýsa arkitektasamkeppni um nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut. Arkitektafélag Íslands hefur skoðanir á framkvæmdinni og hefur lagt þær fyrir verkefnisstjórn um nýjan Landspítala og eru þær til skoðunar þar.   Arkitektafélagið telur að bjóða eigi sjúkrahúsið út í nokkrum áföngum, bæði hönnun og framkvæmd.   Hver hluti yrði milli 5.000 og […]

Miðvikudagur 09.12 2009 - 11:41

Mies van der Rohe

  Ef velja ætti 10 byggingar sem mest áhrif höfðu á byggingarlist tuttugustu aldarinnar þá yrði framlag Þýskalands á heimssýningunni í Barcelona árið 1929 ein þeirra. Nú eru rétt 80 ár síðan skálinn var reistur.   Byggingin var ekki aðeins stefnumótandi heldur þótti hún og þykir enn afburða vel gerð út frá fagurfræðinni einni saman […]

Mánudagur 07.12 2009 - 10:56

“Góðærisarkitektúrinn”.

Það hefur lengi verið vitað að fagurfræði byggingarlistarinnar er nátengd funktion og tilfinningum ýmiss konar, menningu, anda tímans og staðarins. Nú er maður farinn að hafa áhyggjur af því að „góðærisarkitektúrinn“ verði í tímans rás álitinn sá versti í sögu byggingarlistarinnar á Íslandi.  Bæði hvað varðar skipulag, form, funktion og tæknilegar útfærslur. Fóru menn offari […]

Föstudagur 04.12 2009 - 10:38

Einbýlishús án útlits

      Ungir japanskir arkitektar sem kalla sig “Suppose Design Office” hafa vakið athygli.   Þeir sem hafa komið til Japan og gengið um eldri íbúðahverfi, taka eftir þvi að húsin standa oft á mjög litlum lóðum þar sem útsýni er nánast ekkert.     Við þessum aðstæðum er brugðist með þvi að hámarka […]

Miðvikudagur 02.12 2009 - 10:35

Tölvumyndir arkitektanna.

Ég man ekki eftir því að hafa séð byggingu sem lítur betur út í raunveruleikanum en á tölvuteikningu. Arkitektarnir eru farnir að treysta á töfra tölvunnar frekar en færni þeirra með blýantinn eða rýmisgreind viðskiptavinarins og þeirra eigin. Tölvuteikningarnar sýna byggingarnar oft glóandi í kvöldhúminu þar sem húsin virðast gegnsæ og lifandi. Umhverfis húsin og […]

Mánudagur 30.11 2009 - 14:18

Þrautir Hennings Larsen.

Henning Larsen fer mikinn í Reykjavík um þessar mundir og vinnur að byggingu  helstu menningarstofnana landsins, Háskólans í Reykjavík  og Ráðstefnu- og tónlistarhússins við höfnina. Fyrir helgi kom út bók eftir hann sem heitir „De skal sige tak“ og er þar vitnað til orða  Hr. Mærsk Mc-Kinney Möller til arkitektsins í einu samtali þeirra Hennings […]

Föstudagur 27.11 2009 - 09:54

Svona á að byggja í 101

Þegar hugmyndir um uppbyggingu lóðanna á horni Túngötu og Aðalstrætis voru kynntar spunnust nokkrar umræður um þá nálgun og þá lausn sem þar var fundin. Mönnum þótti að þarna væri um hallærislegt afturhvarf til fortíðar að ræða. Um þetta var fjallað í blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Yfirleitt töluðu menn máli nútíma arkitektúrs og vildu að […]

Höfundur

Hilmar Þór Björnsson arkitekt
Tilgangur síðunnar er að kynna arkitektúr, skipulag og staðarprýði ásamt því að stuðla að umræðu um efnið. Það sem fram kemur ber ekki að skilja sem skoðun höfundar heldur hugleiðingu sem sett er fram í þeim tilgangi að vekja lesendur til umhugsunar og skoðanaskipta. Tekið er á móti aðsendum greinum þegar það á við, sem þá eru á ábyrgð höfundar aðsends efnis.
Athugasemdir við færslur eru velkomnar. Þeir sem vilja koma skilaboðum til ábyrgðarmanns beint er bent á netfangið hilmarstofunni@gmail.com
RSS straumur: RSS straumur

Færslusafn