Fimmtudagur 02.09.2010 - 09:36 - Lokað fyrir ummæli

Er Guð á útleið?

Ekki lengur pláss fyrir Guð sem skapara heimsins segir Stephen Hawking í nýrri, óútkominni,  bók sinni.  Vísindin hafa nú gert Guð óþarfan þegar kemur að sköpun heimsins segir hann á sama hátt og þróunarkenning Darwins sýndi fram á að hann var óþarfur í sköpun lífsins og þar með mannsins.

Spurning Hawkings er annars þessi:  ,,Þurfti alheimurinn skapara“.  Svar hans er einfalt ,,Nei“.  Það þurfti hvorki Guðlega hönnum eða guðlega hönd.  Tilkoma alheimsins laut einfaldlega eðlisfræðilegum lögmálum.  Vegna aðdráttarlögmálsins hlaut alheimurinn að skapa sjálfan sig og kunn eðlisfræði lögmál eru ástæða þess að alheimurinn er til segir hann.

Hawkings taldi pláss fyrir Guð í bók sinni 1988 en hefur nú horfið frá því.  Hann hafnar nú alveg því að á bak við alheiminn sé  ,,heili“ Guðs, eingöngu  sé um að ræða eðlisfræðileg lögmál.

Ég tek ofan fyrir Hawkings.  En Guðsskilningur hans er annar en minn og okkar flestra hygg ég.  Og hann er að skrifa til fólks með mjög bókstaflega guðshugmynd. Við flest hér höfum fyrir margt löngu, held ég,  gert okkur grein fyrir því að Guð er kærleikur og stóð alls ekki í neinum flóknum útreikningum fyrir þúsundum milljónum ára hvað þá að hann hafi setið við að teikna risaeðlur, mýs og menn.  Okkar Guð er hins vegar á bak við allt, kærleiksrík móðir, kærleiksríkur faðir, skapari alls hins góða, verndari fegurðarinnar, svar við trúarþörf mannsins, frelsari mannanna.

Ég ætla því all ekki að skipta um námsgráðutitilinn ,,guðfræðingur“ og tel að enn sé og muni ætíð verða pláss fyrir umburðarlynda og mannelskandi guðfræði . Við höfum hins vegar enga þörf fyrir öfgar og vitleysu sem eru vitaskuld fylgifiskar mannlífsins og vitaskuld þess heldur ef þetta er tóm eðlisfræði.

(Byggt á forsíðufétt the Times í morgun 2. september , en óútkomin  bók Hawkings þar sem hann boðar það að manninum muni brátt takast að setja fram heildstæða vísindalega kenningu um alheiminn, er kynnt þar í dag og hefur þegar vakið athygli og umtal).

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (57)

  • Ertu, Þórhallur, ekki aðeins að einfalda það sem Hawkins segir.

    Og er ekki tilvalið að finna eitthvert annað hugtak en „guð“ fyrir þessa óskilgreindu hugmynd, það ruglar mig amk. að vera að ræða við fólk í sömu andrá um guð þegar það skilgreinir „guð“ annað hvort sem persónugerðan skapara með öllum þeim einkennum sem td. biblían lýsir eða hinir sem tala mjög óljóst um eitthvað óskilgreint.

    Ég væri líka mjög mikið til í að heyra nánar um þessa „guðsmynd“, þeas. hvort meyfæðingar og upprisur rúmast innan hennar.

    Það er ekki hugmyndin hjá mér að vera neikvæður, og klárlega er þetta geðfelldari hugmynd en biblíuguðinn. En þetta er svo rosalega óljóst að það er erfitt að ræða þetta.

    Og ef ég má bæta við spurningu. Þarf fólk með þennan guðsskilning á kirkju og prestum að halda?

  • Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur

    Guð er sem sagt bara ósköp einfalt orkubúnt !!

  • Siggi Silly

    Að tala um „Trúarþörf mannsins“ sem einhverskonar afmarkaða þörf sem sé lífsnauðsynleg er útúrsnúningur – Þessi þörf er ekkert annað en félagsþörfin – það að hafa þörf fyrir að tilheyra ákv hópi

  • Hjalti Rúnar Ómarsson

    Baldur, það væri áhugavert að heyra á hvaða hátt þú telur guð vera „skapara himsins og jarðar“. Mér finnst reyndar nokkuð undarlegt að segja að guð hafi eitthvað með „sköpun“ heimsins að gera ef það reynist rétt að þetta virðist allt bara vera náttúrulegt. Ansi lítið pláss eftir handa guði.

Höfundur