Ekki lengur pláss fyrir Guð sem skapara heimsins segir Stephen Hawking í nýrri, óútkominni, bók sinni. Vísindin hafa nú gert Guð óþarfan þegar kemur að sköpun heimsins segir hann á sama hátt og þróunarkenning Darwins sýndi fram á að hann var óþarfur í sköpun lífsins og þar með mannsins.
Spurning Hawkings er annars þessi: ,,Þurfti alheimurinn skapara“. Svar hans er einfalt ,,Nei“. Það þurfti hvorki Guðlega hönnum eða guðlega hönd. Tilkoma alheimsins laut einfaldlega eðlisfræðilegum lögmálum. Vegna aðdráttarlögmálsins hlaut alheimurinn að skapa sjálfan sig og kunn eðlisfræði lögmál eru ástæða þess að alheimurinn er til segir hann.
Hawkings taldi pláss fyrir Guð í bók sinni 1988 en hefur nú horfið frá því. Hann hafnar nú alveg því að á bak við alheiminn sé ,,heili“ Guðs, eingöngu sé um að ræða eðlisfræðileg lögmál.
Ég tek ofan fyrir Hawkings. En Guðsskilningur hans er annar en minn og okkar flestra hygg ég. Og hann er að skrifa til fólks með mjög bókstaflega guðshugmynd. Við flest hér höfum fyrir margt löngu, held ég, gert okkur grein fyrir því að Guð er kærleikur og stóð alls ekki í neinum flóknum útreikningum fyrir þúsundum milljónum ára hvað þá að hann hafi setið við að teikna risaeðlur, mýs og menn. Okkar Guð er hins vegar á bak við allt, kærleiksrík móðir, kærleiksríkur faðir, skapari alls hins góða, verndari fegurðarinnar, svar við trúarþörf mannsins, frelsari mannanna.
Ég ætla því all ekki að skipta um námsgráðutitilinn ,,guðfræðingur“ og tel að enn sé og muni ætíð verða pláss fyrir umburðarlynda og mannelskandi guðfræði . Við höfum hins vegar enga þörf fyrir öfgar og vitleysu sem eru vitaskuld fylgifiskar mannlífsins og vitaskuld þess heldur ef þetta er tóm eðlisfræði.
(Byggt á forsíðufétt the Times í morgun 2. september , en óútkomin bók Hawkings þar sem hann boðar það að manninum muni brátt takast að setja fram heildstæða vísindalega kenningu um alheiminn, er kynnt þar í dag og hefur þegar vakið athygli og umtal).
Baldur, ég held að ég hafi enn minni hugmynd um hver skoðun þín er eftir að þú sagðist taka undir orð Þórhalls. : S
Þú verður að fyrirgefa mér það, en mér finnst oft prestar vera allt of „dularfullir“ eða „feimnir“ þegar það kemur að því að lýsa trúarskoðunum sínum. Mig grunar stundum að þeir hafi bara einhvers konar barnatrú á „gott afl“.
Setjum ,,gott afl“ inn fyrir ,,Guð“ og við erum stödd á sama stað. Guð er leyndardómur, tilfinning ekki ávöxtur rökvísi. Vonlaust að rökræða í raun.
Ég get ekki að því gert en mér finnst Guð hrekjast úr einu víginu í annað.
Nú er meyfæðingin orðin symbólísk, hvaða dag og ár gerðist það.
Sköpunarsagan vitleysa, það er þá allaveganna gott að það sé frá.
Guð er bara hið góða í manninum, það er mikið skref niður á við frá því að vera skapari alls og almáttugur.
Guð er kærleikur. Þá hefði nú biblían getað verið talsvert styttri!
Eftir smá stund munu kirkjunnar menn og við eiga samræðurnar um að guð hafi í raun verið ágætishugmynd. Og ég mun áfram neita.
Er gott og illt algilt þ.e.a.s. Eru allir jarðarbúar sammála um hvað er gott eða illt? Ég held ekki. Guð er góður. Hvað þýðir það? Til þess að þetta hafi merkingu verða allir jarðarbúar að vera sammála um hvað sé að vera góður.
Guð er kærleikur er líka mjög afstætt og á reiki.