Sunnlendingar eru afar feitir. Sérstaklega Árnesingar. Af Árnesingum eru Selfyssingar feitastir. Ég hafði orð á þessu þegar ég kom til starfa við Sunnlenska fréttablaðið fyrir tíu árum. Hafði búið Í Reykjavík og á Höfn og sá strax að þetta fólk var öðruvísi. Sérstaklega eru ungar konur feitar. Offita er sem faraldur meðal þeirra. Fólkið fékk sér kjöt og sósur í hádeginu. Það hafði ég ekki séð lengi. Vinir mínir á Höfn og í Reykjavík átu fisk og grænmeti í hádeginu. Nú er komið í ljós að Íslendingar eru afar feitir á heimsvísu. Að mínu viti eiga Sunnlendingar metið hér innanlands. Hefur nokkur rannsakað það annars. Það þarf ekki að taka það fram að samstarfsmenn mínir hlógu að hugarburði mínum gera sjálfsagt enn. Hvergi á byggðu bóli taka menn minna mark á því sem aðfluttir segja en á Suðurlandi.
Prófaðu að setja orðið grannur fyrir feitur. Væri það ljótt. Í þessu tilfelli er um að ræða að vekja athygli á heilsufarsvandamáli sem í flestum tilfellum á rætur i lífstíl og tíðarfanda. Að þora ekki að nefna vandámálið er heigulsháttur. Að blanda þessu saman við rasisma er gengisfelling -ethic origin eða litárháttur eða trú er ekki sjálfskaparvíti.
Að þessu sögðu er nauðsynlegt að benda á að hjá sumum er offita ekki sjálfskaparvíti. Hins vegar er hvergi vikið að því í pistlinum að offeitir séu með einhverjum hætti verðminni en aðrir. Sá sem les það út úr pistlinum hefur greinilega fordóma í garð feitra. Örugglega einhver grannur. BKv. baldur
Það er satt, ég sé það núna…
Bestu kveðjur,
Kr.