Fimmtudagur 09.12.2010 - 13:25 - Lokað fyrir ummæli

Feitir Sunnlendingar!

Sunnlendingar eru afar feitir.  Sérstaklega Árnesingar.  Af Árnesingum eru Selfyssingar feitastir.  Ég hafði orð á þessu þegar ég kom til starfa við Sunnlenska fréttablaðið fyrir tíu árum.  Hafði búið Í Reykjavík og á Höfn og sá strax að þetta fólk var öðruvísi. Sérstaklega eru ungar konur feitar.  Offita er sem faraldur meðal þeirra.  Fólkið fékk sér kjöt og sósur í hádeginu.  Það hafði ég ekki séð lengi.  Vinir mínir á Höfn og í Reykjavík átu fisk og grænmeti í hádeginu. Nú er komið í ljós að Íslendingar eru afar feitir á heimsvísu.  Að mínu viti eiga Sunnlendingar metið hér innanlands.  Hefur nokkur rannsakað það annars.  Það þarf ekki að taka það fram að samstarfsmenn mínir hlógu að hugarburði mínum  gera sjálfsagt enn.  Hvergi á byggðu bóli taka menn minna mark á því sem aðfluttir segja en á Suðurlandi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (10)

  • Sunnlendingar eru sennilega íhaldsamari en aðrir landsmenn — sem markast kannski af nábýli þeirra og samskiptum þeirra við beljur.

    Og þar er kjöt neytt þar oftar en í öðrum landshlutum.

    Ég man að í gamla daga var aðeins verkaður fiskur á borðstólunum eins og : Sigin fiskur, saltfiskur, söltuð grásleppa og saltaðar murtur uppúr tunnum — sem markaðst örugglega af fjarlægðina við hafið og hafnirnar.

    Þegar maður fékk ferskan fisk í matinn þá var það silungur og lax á sumrin.

  • Björn Guðbrandur Jónsson

    Mín kenning er sú að þunglyndi sé algengara á Suðurlandi en í öðrum landshlutum. Eilíft og yfirgnæfandi fylgi Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi, stórundarlegir kjörnir fulltrúar á hans vegum og annarra flokka er að mínu viti afleiðing af lömun hugans í þessum landshluta. Umrætt holdarfar stafar af sömu 0rsökum, líklega“tröstespis“.

    Sunnlendingar þarfnast hjálpar.

  • Erlendur Fjármagnsson

    kjósa samt heiðarlegustu og árvökulustu menn á þing, menn sem enginn getur blekkt

  • Þetta er alveg rétt hjá þér. Ég sé einmitt mun oft ef ég stoppa á Selfossi í bónus á leið í sumarbústað, maður hefur á tilfinningunni að fólk sé feitara þarna og já ungar konur eru meira feitar þarna, maður tekur eftir því.

Höfundur