Mánudagur 06.02.2012 - 15:18
- Lokað fyrir ummæli
Lilja Mósesdóttir er að vísu undanútandsérhlaupari en það var nokkuð ljóst frá upphafi að hún passaði ekki inn í pólitíska mynstrið. Það má hins vegar ekki taka frá henni að hún hefur beitt sér fyrir réttlætismálum svo eftir hefur verið tekið og verður gaman að sjá hvað hún hefur fram að færa á morgun. Framboð hennar ætti ekki síst að vera valkostur fyrir gamla kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem vilja gera upp hrunið, Eitthvað verða þeir að geta kosið og Lilja réttlætisins er auðvitað prýðilegur valkostur fyrir þá.
Flokkar: Óflokkað
Með fullri virðingu fyrir Lilju, sem vissulega hefur lagt til ágætar tillögur eins og t.d. lyklaleiðina, þá er útilokað að vinna með henni. Hún getur ekki tekið ákvörðun, finnst alltaf að eitthvað vanti upp á og getur því ekki lokið málum. Þess vegna er það ábyrgðar hlutur af þér að vísa kjósendum á þennan valkost.
Mér sýnist nú ríkisstjórnin búin að standa sig ágætlega við að reka þá alla heim aftur.
En hvað með gamla kjósendur Samfylkingarinnar sem vilja gera upp hrunið? Eitthvað verða þeir að geta kosið og fyrir löngu útséð að sitjandi ríkisstjórn hefur enga löngun til að leggja út í þetta uppgjör.
Eitthvað segir mér að Lilja muni sækja jafn mikið ef ekki meira fylgi til vonsvikinna fyrrum stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar, en það er etv. of beizkur kaleikur fyrir suma að bergja á.
Birgir samfylkingarfólk vill ekki gera upp hrunið heldur lifa áfram í þeirri trú að þeirra sé mátturinn og dýrðin að eilífu AMEN.