Mánudagur 06.02.2012 - 15:18
- Lokað fyrir ummæli
Lilja Mósesdóttir er að vísu undanútandsérhlaupari en það var nokkuð ljóst frá upphafi að hún passaði ekki inn í pólitíska mynstrið. Það má hins vegar ekki taka frá henni að hún hefur beitt sér fyrir réttlætismálum svo eftir hefur verið tekið og verður gaman að sjá hvað hún hefur fram að færa á morgun. Framboð hennar ætti ekki síst að vera valkostur fyrir gamla kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem vilja gera upp hrunið, Eitthvað verða þeir að geta kosið og Lilja réttlætisins er auðvitað prýðilegur valkostur fyrir þá.
Flokkar: Óflokkað
Held að Lilja verði ágætur valkostur fyrir heiðarlega kjósendur, sem vilja og geta treyst því að stjórnmálamenn ætli að vinna eftir stefnu sinni.
Ég held því að margt af kjósendum VG muni flykkja sér um Lilju Mósesdóttur. Sama á eflaust líka við heiðarlegt Samfylkingarfólk sem hefur verið illa svikið af sínum flokki af sviknum loforðum í lagfæringu á himinháum og óréttlátum vöxtum af húsnæðislánum sínum. Einnig allir þeir fjölmörgu sem vilja að þjóðin standi fyrir utan ESB, þeir munu líka geta treyst Lilju Mósesdóttur í því máli.
Lilja er valkostu þeirra sem vilja gömlu gildin aftur.
Ég hef margoft beðið hana um aðstoð í málum sem snúa að því að jafna stöðu almennings og auðmanna en hún hefur ítrekað greitt því atkvæði sitt að veita auðmönnum margvíslegar ívilnanir sem almenningi bjóðast ekki.
Hvers vegna? Jú, hún segir að þessi ójöfnuður sé nauðsynlegur til að endurreisa landið…
Svoleiðis rök eru bull og augljóst að hún vill ekki aðrar breytingar en þær að komast til valda og raka að sér völdum.
Illa þekkir þú fyrrverandi sjálfstæðismenn, segi ekki meira!
Það er líklegt að Sjálfstæðismenn fari að kjósa gamaldags sósíalista…